12.03.1979
Efri deild: 68. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3185 í B-deild Alþingistíðinda. (2483)
24. mál, félagsheimili
Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Menntmn. hefur haft til meðferðar tvö frv. til breyt. á lögum um félagsheimili. Hið fyrra, 24. mál, á þskj. 25, er um að sjómannastofur skuli eftirleiðis njóta byggingarstyrks úr Félagsheimilasjóði. Síðara frv., sem er 48. mál, gerir ráð fyrir að gerðar verði nokkrar breytingar á starfsháttum Menningarsjóðs félagsheimila. Leggur n. til að þessi frv. verði sameinuð í eitt og að því lúta brtt. n. á þskj. 379. Þar er lagt til að ákvæðið um sjómannastofur verði látið standa óbreytt eins og það er í fyrrnefndu frv. Varðandi síðara frv. er þess að geta, að tveir þm. hafa flutt frv. um sama efni í Nd. Formaður menntmn. ræddi við flm. beggja frv. Féllust þeir á að gerðar yrðu þær breytingar á málinu í meginatriðum, sem felast í brtt. n., enda er þá efnisatriðum að mestu haldið.
Hér er lagt til að skipuð verði þriggja manna n. sem geri till. til ráðh. um úthlutun úr Menningarsjóðnum. Skipar menntmrh. einn nm. samkv. sameiginlegri tilnefningu Ungmennafélags Íslands og Bandalags ísl. leikfélaga, einn samkv. tilnefningu Sambands ísl. sveitarfélaga og svo formann án tilnefningar. Það þótti rétt að hafa n. fámenna. Samband ísl. sveitarfélaga er hér valið vegna þess hvað sveitarfélögin eiga yfirleitt mikla fjárhagslega aðild að félagsheimilum. Aftur um hina tilnefningaraðilana er það að segja, að einhver umfangsmesta starfsemi, sem fram fer í félagsheimilum, er tengd leiklistinni, og svo er Ungmennafélag Íslands samnefnari félaga sem eru öllum opin og ná yfir allt landið. Allir þessir aðilar þrír hafa starfsemi og skrifstofur á höfuðborgarsvæðinu og eiga því væntanlega að geta tilnefnt í n. fólk sem getur komið á fundi með litlum fyrirvara. Ég held að það reynist æskilegt og raunar óhjákvæmilegt vegna þess, hvers eðlis starf þessarar n. er, þ. e. að vera ráðgefandi fyrir ráðh. um úthlutun úr Menningarsjóðnum, að sú nefnd sé ekki þunglamaleg stofnun, heldur tiltæk og líkleg til að vinna greitt sitt verk. Auðvitað gátu komið til greina ýmis fleiri bandalög, eins og fram kemur í sumum þeim till. sem fyrir liggja. En þetta var valið og af þeim ástæðum sem ég nú greindi.
Samkv. gildandi lögum má Menningarsjóður félagsheimila því aðeins veita styrki til menningarstarfsemi að hún fari fram í félagsheimili. Þannig er þetta núna. Þessi löggjöf, sem hér um ræðir, fjallar um félagsheimili og um Menningarsjóð félagsheimila. Þess vegna þótti n. ekki rétt að ganga lengra en svo að veita heimild til að styrkja menningarstarfsemi sem fram fer utan félagsheimila ef sérstaklega stendur á, eins og segir í brtt. n. En reynslan hefur sýnt að nauðsynlegt er að veita slíka heimild. Ég get aðeins nefnt sem dæmi, að það getur naumast talist réttmætt og alls ekki heppilegt að binda styrk til tónlistarflutnings við félagsheimili á staðnum, ef t. d. kirkjan eða eitthvert annað hús býður betri skilyrði, t. d. betri hljómburð.
Bent skal á það, að enda þótt fjórar mgr. séu hér teknar upp í heild í frv. á þskj. 25 og í brtt. n., þá eru breytingarnar aðeins fólgnar í þeim atriðum sem hér hefur verið vikið að. Það þótti greinilegra að taka mgr. alveg upp heldur en flytja till. um breytingar á þeim, en það var leitast við að hafa þessar breytingar sem umfangsminnstar og þannig að þær féllu sem best að lögun
um eins og þau eru núna og eins og þau hafa verið framkvæmd.
N. leggur sem sagt til að málið verði afgreitt með þeim hætti sem greinir í brtt. á þskj. 379.