31.10.1978
Sameinað þing: 11. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (249)

326. mál, niðurskurður fjárframlaga 1978

Fyrirspyrjandi (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég skal ekki fjölyrða frekar um þetta að sinni. Ég þakka þetta svar það sem það nær. Ég endurtek að það eru nokkur atriði sem þarf að sundurliða frekar. Það, sem ég nefndi, var Menntaskólinn á Ísafirði, bygging grunnskóla, hvaða grunnskólaframlög það eru sem skorin eru niður, því að þessi upphæð er öll sundurliðuð í fjárlögum ársins í ár, búnaðarskólar, hvaða upphæð er skorin niður til hvors skóla fyrir sig, og svo það, sem mestu máli skiptir og er stærsta upphæðin, framkvæmdir Vegagerðar upp á 100 millj. kr. Það er þetta, sem ég legg áherslu á að fá upplýsingar um. Sömuleiðis væri mjög æskilegt að fá upplýsingar um, með hverjum hætti skorinn er niður Byggingarsjóður verkamanna úr 300 millj. um 50 millj.