13.03.1979
Sameinað þing: 66. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3208 í B-deild Alþingistíðinda. (2503)

343. mál, fjármögnun virkjunarframkvæmda og skuld Landsvirkjunar við ríkissjóð

Fyrirspyrjandi (Jón G. Sólnes):

Herra forseti. Aðeins örstutt aths. — Til að fyrirbyggja misskilning vil ég geta þess, að þær upphæðir, sem hér hafa verið upplýstar, eru ekki skuldir Landsvirkjunar erlendis heldur skuldir Landsvirkjunar við ríkissjóð Íslands. Það er ríkissjóður Íslands sem hefur veitt þetta lán. Og ég hef m. a. s. hér afrit af lánssamningnum eins og gengið er frá honum. Þetta eru ekki skuldir á nafni Landsvirkjunar erlendis, heldur skuld við ríkissjóð Íslands — ekkert annað. Og það er það sem ég var að tala um að gæfi ástæðu til samanburðar. (Gripið fram í.) Þessir 3 milljarðar 430 millj. kr. í árslok 1978 eru skuld við ríkissjóð Íslands.