14.03.1979
Sameinað þing: 68. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3221 í B-deild Alþingistíðinda. (2520)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Sváfnis Sveinbjarnarsonar, 2. varaþm. Framsfl. í Suðurlandskjördæmi. N. hefur komist að þeirri niðurstöðu, að kjörbréfið er að öllu leyti löglegt, og mælir með samþykkt þess. Þess skal getið, að fyrir liggur einnig bréf frá 1. varaþm. Framsfl. í þessu kjördæmi, Hilmari Rósmundssyni, um að hann geti ekki vegna sérstakra anna heima fyrir tekið sæti á Alþingi.