14.03.1979
Sameinað þing: 68. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3222 í B-deild Alþingistíðinda. (2526)

165. mál, fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Ég er andvígur því að segja upp samningi við Færeyinga. Ég tel samning við Norðmenn lítils virði fyrir báða aðila og er algerlega í höndum sjútvrh. Íslands hversu mikið Norðmenn fá að veiða hér. Á s. l. ári voru veiðar Norðmanna skornar niður í 2026 tonn úr 3122 tonnum árið áður. Samningurinn við Belga er of hár að mínum dómi, vegna þess að belgískum togurum hefur fækkað frá því að samningurinn var gerður úr 12 niður í 8. Ég er því fylgjandi, að utanrrn. Íslands í samráði við sjútvrn. taki upp frjálsa samninga við Belga um að lækka frá gildandi samningi hámarksafla þeirra úr 6500 tonnum, sem þeir hafa ekki komist upp í á undanförnum árum að veiða, og niður í a. m. k. 4400 tonn og þorskafla þar af um helming frá því sem hann er í gildandi samningi. Með tilliti til þessa segi ég nei.