31.10.1978
Sameinað þing: 11. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í B-deild Alþingistíðinda. (253)

325. mál, gildistaka byggingarlaga

Fyrirspyrjandi (Oddur Ólafsson):

Herra forseti. Á þskj. 21 hef ég leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. félmrh.:

„1. Hvað líður setningu reglugerðar í samræmi við 4. gr. byggingarlaga?

2. Hvaða ákvæði verða í væntanlegri reglugerð varðandi umbúnað bygginga til þess að auðvelda ellihrumu og fötluðu fólki að komast leiðar sinnar?“

Ástæðan til þess, að ég flyt þessa fsp., er sú, að á síðasta Alþ. voru samþykkt tvenn lög, sem voru í raun og veru stefnumótandi fyrir framtíðarumferðarmöguleika fatlaðra og aldraðra. Hér á ég við byggingarlög, en byggingarlög taka til hvers konar bygginga ofanjarðar og neðan og annarra mannvirkja, sem hafa áhrif á útlit umhverfisins eins og segir í i. gr. En í 4. gr. segir, með leyfi forseta:

„Í byggingarreglugerð skal mælt fyrir um, hvernig háttað skuli undirbúningi, gerð, tæknilegum frágangi og viðhaldi bygginga og annarra mannvirkja. Í byggingarreglugerð skal kveðið á um þær kröfur, sem gerðar eru varðandi m.a. undirstöður, byggingarefni, burðarþol, einangrun gegn kulda, raka og hávaða“ o.s.frv.

Og þá segir: „Í byggingarreglugerð skal setja ákvæði varðandi umbúnað bygginga til þess að auðvelda ellihrumu og fötluðu fólki að komast leiðar sinnar.“

Enn fremur var í vor samþykkt breyting á skipulagslögum: Þar eru svo hljóðandi ákvæði:

„Þá skal kveða á um, að hið skipulagða svæði geri fötluðu og öldruðu fólki auðvelt að komast leiðar sinnar og tekið skuli að öðru leyti tillit til sérþarfa þess, svo sem varðandi götur, gangstéttir, bifreiðastæði og staðsetningu íbúðarhúsa, sem sérstaklega eru ætluð þessu fólki.“

Nú er ekki vafi á því, að það hefur mikla þýðingu fyrir þessa hópa hvernig byggingarreglugerðirnar verða. Það er enginn undankoma. Það verður að setja ákvæði í þær samkv. þessum lögum. Ég vona að þegar byggingarreglugerðirnar hafa verið settar komi í ljós, að við séum ekki verr settir en aðrar vestrænar þjóðir í þessu efni.

Þessi ákvæði hafa verið alllengi í undirbúningi og töfðust m.a. vegna þess að byggingarlögin voru alllengi að komast í gegnum hið háa Alþ. Nú er sem sagt aðeins eftir að kveða nánar á um, hvað skuli standa þarna. Ég vil taka það skýrt fram, að þetta er ekki heimildarákvæði, heldur stendur að það skuli setja ákvæði varðandi umbúnað bygginga.

Það hefur verið svo, að á undanförnum árum hefur verið mikill áhugi víða um lönd á því að gera byggingar í þéttbýli sérstaklega auðveldar fötluðum í umferð. Augu manna hafa opnast fyrir því, að það er varla hægt að telja að menn njóti lífshamingju án þess að geta komist nokkurn veginn um. Svo einkennilega vildi nú til, að um það leyti sem við vorum að samþykkja þessa löggjöf á Alþ., þá var Jimmy Carter Bandaríkjaforseti að gefa yfirlýsingu um að þriðja vikan í maí árið 1978 og árið 1979 skyldu vera helguð áróðri í þeim tilgangi að auðvelda umferð fatlaðra. Það er einmitt núna víða um lönd sem þessi mál eru í sviðsljósinu. Því vona ég að vel takist til um setningu reglugerða, þannig að við getum sem fyrst farið að njóta þessara ákvæða.

Því er ekki að leyna, að á undanförnum árum hafa verið gerð allmikil átök í þessu efni hérna hjá okkur.

Fatlaðir hafa haft sína ferlinefnd, sem hefur sent upplýsingar til allra arkitekta og þeirra, sem að byggingum vinna um allt land. Þetta hefur verið gert með nokkrum árangri. Sjá má víða að umbætur eru á þeim húsum, sem nú er verið að byggja, og eru þau öðruvísi að gerð en áður var. Einkum má segja þetta um skólahús og ýmsar aðrar opinberar byggingar. Það er greinilegt að þeir, sem að þeim standa, hafa gert sér ljóst að þessi breyting er í vændum. Því leyfi ég mér að spyrja hæstv. ráðh. hvað framkvæmdinni liði.