14.03.1979
Efri deild: 69. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3224 í B-deild Alþingistíðinda. (2538)
95. mál, leiklistarlög
Frsm. meiri h1. (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Þetta frv. er komið aftur til okkar frá Nd. þar sem Nd. hefur gert á því nokkra breytingu — breytingu reyndar á orðalagi sem var mjög til umr. fyrir áramótin. Þá var mjög um það rætt, hvort niður ætti að fella úr 2. gr. setningu, sem þá hljóðaði eitthvað á þá leið, að starf leiklistarráðs skyldi að því beinast að stuðla að stefnumótun á sviði leiklistarmála, og um það var einnig flutt sú brtt. hér að það orðalag félli niður. Nú hefur Nd. gert þá breytingu á þessu orðalagi, að í stað þess að standi:„að stuðla að stefnumótun á þessu sviði“ — stendur nú: að vera vettvangur umræðna um leiklistarmál og stuðla að því að leiklistarstarfi séu búin þroskavænleg skilyrði.
Ég tel að vísu að fyrra orðalagið hafi verið betra og held mig við það, en ég hef haft samband við velflesta nm. í menntmn. Ed. og ég hygg að þeir geti fyllilega sætt sig við þetta orðalag, hef tryggingu fyrir því. Þá er úr sögunni deilumálið um það, hvað þessi orð tákni, hvort þau séu svo hættuleg sem sumir hafa viljað vera láta, og kannske einhverjum í Nd. hefur þótt ástæða til að breyta af þeim ástæðum. Alla vega er þetta komið í það horf nú, að menn ættu almennt að geta sætt sig vel við það. Ég segi enn og aftur, með tilliti til þess hvernig þetta orðalag var upphaflega komið inn í lögin, að ég hefði frekar kosið það orðalag, þó ég sætti mig við þetta. Ég geri varla ráð fyrir því, að við þurfum að halda sérstakan fund í menntmn. um þetta mál, nema þess verði þá sérstaklega óskað.