14.03.1979
Neðri deild: 62. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3242 í B-deild Alþingistíðinda. (2552)
63. mál, tollskrá
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Það er ástæða til að þakka hve greiða afgreiðslu þetta frv. hefur fengiá hér í þessari hv. d., að ekki skuli hafa tekið lengri tíma en að ég hygg 10 daga að afgreiða það gegnum tvær umr. til 3. umr. í þessari d. og fær það örugglega fljóta afgreiðslu þar einnig.
Þetta frv. miðar að því að lagfæra einn hluta af vandamálum þess fólks, sem við skerta starfsorku býr, og suðvelda því þátttöku í hinu daglega lífi. Er ánægjulegt að vita til þess, hversu áhugi og skilningur ráðamanna í þjóðfélaginu fer ört vaxandi á vandamálum líkamlega og andlega fatlaðra.
Ég vil minna á, um leið og ég sé fulla ástæðu til að þakka hve skjóta afgreiðslu þetta mál, sem snýr að öryrkjum, hefur fengið hér á hv. Alþ., að annað frv., sem gæti orðið geysileg lyftistöng í málefnum öryrkja, hefur verið til meðferðar hér í hv. Alþ. frá því í byrjun þings í okt. og er ekki komið lengra en til 2. umr. í fyrri d. og hefur raunar verið á dagskrá nú í 6 vikur í þessari d. án þess að vera tekið til umr., en það er frv. um Framkvæmdasjóð öryrkja. Ég legg áherslu á og þykist raunar vita að forseti þessarar hv. d. mun taka því vel að það mál fái einnig skjóta meðferð og afgreiðslu í þessari hv. d. og ekki dragist lengur að fá það til umr. hér.
Ég verð að lýsa yfir vonbrigðum mínum að í nál. frá fjh.- og viðskn, skuli upphæðin vera lækkuð og fækkað þeim bifreiðum til öryrkja sem frv. gerir ráð fyrir. Í grg. með frv. segir að þeir, sem njóta ívílnunar tolla og aðflutningsgjalda samkv. núgildandi lögum, séu um 350 öryrkjar og nemur ívilnunin nú 500 þús. kr. Í frv. er gert ráð fyrir að hækka þá upphæð í 1 millj. og að slík fyrirgreiðsla nái til 500 öryrkja í stað 350 áður.
Samkv. upplýsingum frá úthlutunarnefnd þeirri, sem sér um umsóknir þær sem berast vegna slíkrar eftirgjafar, hefur fjöldi þeirra öryrkja, sem sótt hafa um slíkar eftirgjafir verið mun hærri en hámarkið 350, gerir ráð fyrir, eða 635 umsóknir 1977 og 830 1978. Í nál. fjh.- og viðskn. er aðeins gert ráð fyrir aukningu á fjölda bifreiðanna um 50 frá því sem nú er í lögum. Virðist þetta því lítið vega til að fullnægja þörfinni, ef miðað er við 1978, sem var 830 bifreiðar, ef fjöldinn verður aðeins samtals 400 í lögum samkv. till. fjh.- og viðskn. Engin ofrausn hefði það verið þótt hv. Alþ. hefði samþykkt að lækka eða fella niður gjöld til 500 öryrkja, eins og frv. gerir ráð fyrir, og auka það þannig um 150 bifreiðar frá því sem nú er. Ætla verður, að það hlutfall sé síður en svo hátt miðað við að skráðir eru kringum 4500 75% öryrkjar hjá Tryggingastofnuninni og ekki óeðlileg tala að 10–15% þeirra séu í mjög brýnni þörf fyrir slíka fyrirgreiðslu sem frv. gerir ráð fyrir.
Frv. gerir einnig ráð fyrir að fella algerlega niður gjöld af 25 bifreiðum árlega fyrir þá sem mestir eru öryrkjar. Er það mjög eðlilegt með tilliti til nauðsynjar þeirra á sérstaklega útbúnum bifreiðum sem geta þá verið mjög dýrar, og það gefur auga leið að starfsgeta slíkra öryrkja hlýtur að vera mjög skert þannig að tekjur eru kannske oft ekki miklu meiri en örorkulífeyririnn. En þó að fjh.- og viðskn. geri einnig aths. við þessa grein og mæli með að það séu aðeins að hluta til felld niður gjöld til þessara öryrkja, til þessara 25 aðila sem mundu fá slíka fyrirgreiðslu, þá vil ég ekki gera aths. eða brtt. við það með tilliti til þess, að það mundi seinka afgreiðslu málsins hér á Alþingi, og vil því ekki gera neina breytingu til þess að það fái hraðari afgreiðslu hér.
Einnig hlýtur sá hópur, sem mundi fá lækkun samkv. 1. mgr. frv., að stórum hluta að vera láglaunafólk með tilliti til að starfsgeta hlýtur að vera skert miðað við 75% örorku. Með tilliti til þess fjölda, sem nauðsynlega þarf á þessari fyrirgreiðslu að halda, og ekki síður að hér hlýtur að vera um láglaunafólk að ræða sem ekki getur eignast slíkar bifreiðar nema með slíkri aðstoð, þá er veruleg ástæða til að rýmka þau ákvæði, sem fyrir eru í lögum um slíkar eftirgjafir til öryrkja. En ég tel, þó að ekki beri að vanmeta neitt sem gert er til að bæta afkomu öryrkja, að aukning um 50 bifreiðar frá því sem fyrir er sé allt of lítil til að mæta þeirri þörf sem er á slíkri fyrirgreiðslu. Ég tel að sá fjöldi bifreiða, sem ráð er fyrir gert í frv., 500 bifreiðar, hefði verulega komið til móts við þarfir öryrkja í þessu efni.