14.03.1979
Neðri deild: 62. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3244 í B-deild Alþingistíðinda. (2554)

63. mál, tollskrá

Frsm. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég skal ekki tefja þessa umr. Ég vil aðeins vekja athygli á því, að fjh.- og viðskn. Nd. gerði enga breytingu á frv. frá því sem upphaflega var. Það var gert í hv. Ed. Það var mat allra fjhn.-manna í Nd., að brýna nauðsyn bæri til að hraða málinu og þó þeir hefðu gjarnan viljað hafa það á annan veg, þá vildu þeir ekki fara að gera breytingu til að senda það á milli deilda. Þess vegna samþykkti n. einróma að leggja til að frv, yrði samþ. óbreytt. Nm. var kunnugt um að eftir málinu er beðið, og þess vegna vildu þeir að frekari breytingar yrðu að koma síðar, en leggja alla áherslu á að fá málið afgreitt eins og það liggur nú fyrir hv. deild.