14.03.1979
Neðri deild: 62. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3259 í B-deild Alþingistíðinda. (2565)

223. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Flm. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. félmrh. fyrir hans hlýju orð í minn garð, og ég tek á móti ummælum hæstv. ráðh. fyrir hönd minna samstarfsmanna. Það hefur verið með eindæmum gott samstarf um þessi mál í borgarstjórn Reykjavíkur og hefur þar ekki farið eftir neinum pólitískum skoðunum eða flokkum, allir hafa unnið jafngott starf, og það hefur verið mér ánægja að starfa að þessum málum. Ég tel ómetanlegt að hafa þessi hlýju orð sem fararnesti frá hæstv. félmrh.

Það er rétt að undirstrika þá ósk mína, að þessu frv. verði hraðað í gegnum n., og ég vona að hæstv. ráðh. veiti því brautargengi og aðstoð á leið þess gegnum Alþingi.