14.03.1979
Neðri deild: 62. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3262 í B-deild Alþingistíðinda. (2569)

175. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að lýsa yfir eindregnum stuðningi við þetta frv. og þá grundvallarhugsun sem þar liggur að baki. Ég vil fyrir mitt leyti eiga þátt í því að þetta frv. verði gert að lögum nú þegar á þessu þingi. Það er auðvitað svo, eins og hér hefur komið fram í umr. áður, að að minni hyggju telst það til þess að vera meiri háttar hneyksli, að umboðslaun af þeirri útfluttu vöru, sem hér um ræðir, skuli hafa verið greidd — ekki af verðinu, sem fyrir vöruna fæst, heldur af þeim niðurgreiðslum einnig sem frá ríki og þar með skattgreiðendum koma. Þarf auðvitað ekki að fara um það mörgum fleiri orðum, hvers konar óhagræði hlýtur að hafa leitt af þessu, hvernig þetta hlýtur að hafa slævt hvatann til þess að leita hagstæðra markaða og hvernig eðlileg viðskiptalögmál eru gersamlega fótum troðin. Kjarni málsins er engu að síður sá einnig, að sú n., sem þetta mál fær til umfjöllunar, ætti jafnframt að leita þeirra upplýsinga, sem hv. frsm. ræddi um, en kvaðst ekki hafa fengið, hvað miklir fjármunir hafa á undanförnum árum verið færðir frá skattborgurum til útflytjenda þessara vara, hvað fjallar þetta um stórar upphæðir, því að skattgreiðendur eiga auðvitað að hafa til þess rétt og eiga á því heimtingu að fá um slíkt að vita.

Almennt um þetta mál má segja að það hefur efalítið verið til mikils skaða í þessu þjóðfélagi, að neytendur og fulltrúar þeirra hafa ekki fjallað nógsamlega um þennan mikilvæga málaflokk, þ. e. landbúnaðarmál, og hvernig þeim málaflokki skuli sem haganlegast fyrir komið. Dæmi um þetta er m. a. það sem kalla mætti á vondri íslensku „landbúnaðarlobbýið“ hér á hinu háa Alþ. Það safnast saman í eina nefnd, og mér hefur sýnst að þær landbúnaðarnefndir, sem mér þykja ekki vera hinar róttækustu hér á hinu háa Alþ., hafi sér það helst að marki og miði að drepa hvert einasta framfaramál sem að landbúnaðarmálum lýtur. En þess vegna segi ég þetta, að ég er ósammála því niðurlagi ræðu hv. frsm. þessa máls, að þetta mál verði sent til landbn. Ég sé enga ástæðu til þess. Þvert á móti geri ég það að till. minni að þetta mál verði sent til fjh.- og viðskn. Þetta frv. er um fjárhagsmál, og það er líklegra að þar sitji menn sem hafa til þess getu að skoða þetta frá almennari sjónarhóli heldur en hinir, sem í landbn. sitja. Þess vegna, herra forseti, vil ég gera það að till. minni, að þessu máli verði vísað — ekki til landbn., heldur til fjh.- og viðskn. Mér sýnist að þar megi mæla af nokkurri reynslu, að með þeim hætti kunni að vera á því líkur að þetta mál verði afgreitt á þessu þingi. Fari það hins vegar til landbn. tel ég alveg vitavonlaust að þetta mál verði afgreitt á þessu þingi.

Neytendur ættu að hafa meiri afskipti af og áhuga á þessum málaflokki en þeir hafa haft. Það er nú einu sinni svo, að öðrum megin á þessum ferli eru framleiðendur vörunnar, en hinum megin á sama ferlinum eru neytendur þessarar vöru, sem að stórum hluta auðvitað búa í þéttari byggðum þessa lands. Hin æskilegasta lausn liggur í stórum sáttmála og samvinnu þessara tveggja aðila, neytenda og framleiðenda. Sú einstefna, sem í þessum málum hefur verið rekin og þá ekki síst hér á hinu háa Alþ., m. a. með því kerfi að helstu hagsmunaaðilar í þessum málaflokki safnast saman í nefndir, sem varla yrðu taldar umbótasinnaðar, — ég tel að hún hafi ekki orðið til góðs og ítreka þá ósk mína, herra forseti, að þessu máli verði vísað til fjh.- og viðskn.