14.03.1979
Neðri deild: 62. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3264 í B-deild Alþingistíðinda. (2571)

175. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Flm. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Ég vil þakka yfirlýstan stuðning hv. 7. þm. Reykv. við þetta frv. Ég vil taka það fram, að ég held að hv. þm. geri óþarflega mikið úr því, að hv. landbn. Alþ. drepi öll þörf mál, eins og hann komst að orði, og að lítil hætta sé á að landbn. þessarar hv. d. hafi ekki getu til að skoða málið frá almennu sjónarmiði. Ég tel að í sjálfu sér gildi nokkuð einu hvort landbn. eða hv. fjh.- og viðskn. fái mál af þessu tagi til meðferðar. Ég held að öllum eða nær öllum hv. alþm. hljóti að vera ljóst að hér er um einfalt og eðlilegt mál að tefla sem hljóti að fá jákvæða afgreiðslu, og þess vegna hef ég fullt traust á bæði hv. landbn. og hv. fjh.- og viðskn. til þess að fást við mál af þessu tagi og skila frá sér jákvæðu áliti.

Hitt er svo annað mál, að þetta frv. er flutt til breytinga á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins og frv. um það efni hafa ævinlega, frá því að ég kom hingað á Alþ., gengið til landbn. og verið um þau fjallað þar. Þess vegna finnst mér eðlilegt að þeirri þingvenju sé haldið, að frv., sem fjalla um breytingar á þessum lögum, sé vísað til þessarar þn.

Annað, sem hv. þm. Vilmundur Gylfason sagði, skal ég láta liggja á milli hluta. Það er rétt, að það er æskilegt að sjónarmið neytenda komi til athugunar í sambandi við ýmsa þætti landbúnaðarmála og að þeirra sjónarmiða sé þar einnig gætt. Ég held að þetta mál sé þess eðlis, að þess þurfi ekki sérstaklega við hvað snertir athugun á þessu máli.

Ég vil svo aðeins segja það, að það er enn fremur hárrétt, sem fram kom hjá hv. 1. þm. Reykv., að þetta frv. er flutt í framhaldi af fsp. sem hann flutti hér í Nd. Alþ. til hæstv. landbrh. og hann fékk svör við. Við í landbn. Nd. fengum einnig skýr svör við slíkum fsp., þegar við lögðum þær fsp. þar fram. Ég hygg að það sé að meira eða minna leyti af vangá sem þessi ákvæði hafa verið með þeim hætti sem gilt hefur að undanförnu og hér er lagt til að breyta með þessu lagafrv.