15.03.1979
Sameinað þing: 69. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3269 í B-deild Alþingistíðinda. (2576)

220. mál, könnun á stærð selastofnsins

Forseti (Gils Guðmundsson):

Ég vil lýsa því yfir, að ég hef ekki enn heimilað umr. utan dagskrár. Það hefur verið svo, að þeir, sem hafa æskt þess að taka upp umr. utan dagskrár, hafa a. m. k. látið forseta vita áður en þeir tækju til máls, og ég vænti að hv. alþm. almennt geti fallist á að það sé sanngjarnt.

Hv. 4. þm. Reykv. hafði fyrir skömmu samband við mig um það, að hann æskti þess að taka til máls utan dagskrár, þegar hæstv. forsrh. væri kominn í salinn, en það hafði ekki þá náðst til hæstv. forsrh. í sambandi við þau tilmæli.