15.03.1979
Sameinað þing: 69. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3281 í B-deild Alþingistíðinda. (2592)

78. mál, smíði brúar yfir Ölfusá við Óseyrarnes

Eggert Haukdal:

Herra forseti. Ég var því miður ekki viðstaddur er fyrri hluti umr. um Ölfusárbrú fór fram í síðustu viku, en ég vil þakka hv. 3. þm. Suðurl. fyrir frumkvæðið að koma Ölfusárbrúnni á dagskrá og þar með vekja athygli Alþingis og þjóðarinnar á því nauðsynjamáli sem þessi brú er fyrir Sunnlendinga. Það er sannarlega þörf á að setja fullan kraft í allan nauðsynlegan undirbúning, þannig að fullnaðarhönnun liggi sem fyrst fyrir.

Ég harma hins vegar að hv. þm. skyldi ekki hafa samstarf við aðra þm. Suðurl. um flutning till., og hefði þá mátt koma í veg fyrir að orðalag till. væri svo veikt sem það er og einnig villandi að því leyti að þó nokkur hönnun hefur þegar átt sér stað. Ég mun því flytja brtt. við þáltill. Henni hefur þegar verið útbýtt og skal ég því ekki fara nánar út í að lýsa henni. Þm. geta borið hana saman við till. eins og hún liggur fyrir.

Þó brú á Ölfusá við Óseyrarnes sé lengi búin að vera í vegalögum má segja að tæknilegur undirbúningur hafi fyrst hafist í ráðherratíð Ingólfs Jónssonar, en segja má að hinar miklu hraðbrautaframkvæmdir á því tímabil hafi tafið fyrir þessu nauðsynjamáli. Samkv. upplýsingum Vegagerðar ríkisins hefur á árunum 1962–1969 verið veitt til grundvallarrannsókna 200 þús. kr., sem þýðir 3.4 millj. á ríkjandi verðlagi. Á árinu 1971 voru veittar 300 þús. kr., á árinu 1975 voru veittar 5 millj. kr. og á árinu 1976 var 1 millj. veitt. Samtals er því búið að veita til undirbúnings og hönnunar brúarinnar um 20–25 millj. kr. á núverandi verðlagi. Fyrir þetta fjármagn hafa verið framkvæmdar landmælingar og gerð korta af svæðinu. Ísalög hafa verið athuguð og gerðar vatnafræðilegar mælingar af ýmsu tagi. Jarðfræðirannsóknir hafa einnig verið gerðar á svæðinu. Á grundvelli þessara athugana hefur veglina verið ákveðin í megindráttum og hún staðfest sem skipulag. Þá hafa verið gerðir fyrstu uppdrættir að brú svo og lauslegar áætlanir um kostnað við veg og brú. Sú kostnaðaráætlun er allt að 2 milljarðar á verðlagi í ágúst 1978.

Gerð hefur verið umferðarspá fyrir þetta vegasamband og arðsemi þessarar framkvæmdar. Samkv. þeim athugunum skila þessar framkvæmdir ekki arði, ef eingöngu er miðað við núverandi umferð og aðstæður sem hið lélega vegasamband Þorlákshafnar við Suðurland gefur. En til þess að fá rétta mynd af arðseminni þarf að sjálfsögðu að taka inn í dæmið þá umferð, sem mundi verða vegna stórbættra atvinnuskilyrða svo og félagslegra og menningarlegra tengsla þegar brúin væri komin, eins og fyrri ræðumenn, sem hafa talað í málinu, hafa réttilega tekið fram.

Nú búa á Árborgarsvæðinu hátt í 7 þús. manns. Með tilkomu brúarinnar mundu skapast stórauknir möguleikar til atvinnuuppbyggingar og eflingar þessa svæðis vegna beinna tengsla við höfnina í Þorlákshöfn. Atvinnuvandamál Eyrarbakka og Stokkseyrar, sem mögnuðust við náttúruhamfarirnar 1976–1977, leysast ekki nema með tilkomu þessarar brúar. Því er þessi framkvæmd bæði vegasamband og hafnarframkvæmd gagnvart kauptúnunum austan Ölfusár.

Af framansögðu er því ljóst að það þolir enga bið að tekin sé endanleg pólitísk ákvörðun um framkvæmd verksins þannig að fullnaðarhönnun geti legið fyrir og þar með framkvæmd brúargerðarinnar hafist strax og veitt hefur verið til þess fé.

Þm. Sjálfstfl. úr öllum kjördæmum landsins hafa lagt fram till. á Alþ. um vegagerð, þar sem Ölfusárbrú er sem sérverkefni. Rétt fyrir jólin mátti heyra það á öldum ljósvakans hjá einum ráðh. í ríkisstj., að í samstarfsyfirlýsingu núv. ríkisstj. væri þessi brú niðurnegld, og er það vissulega vel ef rétt er.

Því miður er hæstv. samgrh. ekki viðstaddur, en ég hefði viljað beina til ráðh. þeirri spurningu, hvort svo sé, að brúargerðin sé ákveðin og þá hvenær megi vænta þess að framkvæmdir hefjist af fullum krafti.