19.03.1979
Neðri deild: 63. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3389 í B-deild Alþingistíðinda. (2637)
125. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Mál þetta er nú þegar orðið allmikið rætt. Er það kannske nokkuð að vonum, jafnmikil umr. og fram hefur farið um þessi efni í þjóðfélaginu á undanförnum mánuðum og raunar missirum og svo mjög sem þeim, sem um þetta mál hafa fjallað, hefur sýnst sitt hverjum oft og tíðum. Ég vil leyfa mér að gera að umtalsefni nokkur atriði sem fram hafa komið í máli þeirra sem tekið hafa til máls.
Hæstv. landbrh. tók vinsamlega á þeim till., sem hér hafa verið lagðar fram, og gat þess um ýmsar þeirra, að hann hefði ekki neitt við það að athuga þó að þær væru settar fram og, að manni skildist, samþykktar. Hann gerði hins vegar örfá atriði úr þessum till. að umtalsefni og á ég þá einkum við þær till. sem fluttar hafa verið á þskj. 466 af okkur hv. 1. þm. Suðurl.
Hann drap á þá leið, sem fyrst er fjallað um í a-lið, að greiða hluta af niðurgreiðslum til framleiðenda, þ. e. að greiða niður verð vörunnar á frumstigi, og vitnaði til útreikninga sem gerðir hafa verið eftir ákveðnum formúlum af hálfu starfsmanna Stéttarsambands bænda og gert hefur verið m. a. til þess að svara fsp. frá hv. þm. Eyjólfi K. Jónssyni. Það er rétt, að í þeim útreikningum er miðað við að greiða niður allt að tilteknu hlutfalli framleiðslukostnaðar, frá 25% og upp í 62%, greiða það til framleiðenda á frumstigi og í bústærð allt að 400–500 ærgildi. Þessi mörk hafa verið sett á blað til þess að reyna að glöggva sig á því, hvernig slíkt fyrirkomulag mund koma út eftir þeim formúlum sem þar eru valdar. Ég er hæstv. ráðh. sammála um að með því fyrirkomulagi, sem þar er sett á blað, mundu þær byrðar, sem lagðar væru á stóru búin, sennilega verða of þungar, eins og hann komst að orði. Svipaðar aths. komu rétt áðan frá hv. þm. Stefáni Valgeirssyni. En eins og þetta er orðað í brtt. okkar, þá er þetta allt sett á vald Stéttarsambands bænda og Framleiðsluráðs og með samþykki hæstv. ráðh. Ég vænti þess, að verði þessi leið farin, sem hér er bent á, verði fundnar formúlur fyrir greiðslum af niðurgreiðslufé til frumstigs framleiðslunnar, þannig að menn verði nokkuð ásáttir um að þar sé sanngjörn leið farin, og það, sem á vantar, deilist nokkuð sanngjarnlega niður á bændastéttina. Ég held því að þær aths., sem hér hafa verið gerðar við þennan þátt í brtt. okkar hv. þm. Eggerts Haukdals, séu algerlega út í hött, og ég treysti því, að ef það á annað borð sýnir sig, sem nú standa yfir athuganir á, að þetta sé ábyrg leið og góð leið til þess að jafna þessum byrðum á bændastéttina, sem við erum allir að tala um, þá takist að finna þar framkvæmdaleið sem ekki vegur of þungt að einhverjum hluta bænda um leið og öðrum er ívilnað. Þessu treysti ég alfarið.
Það er auðvitað margt um þetta hægt að segja, en ég skal ekki þreyta menn á því. Ég vil aðeins segja það, að niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum á frumstigi eru tíðkaðar í ýmsum öðrum löndum og að ýmsu leyti getur verið hyggilegt að hafa opna leið til þess í lögum að gera það einnig hér á landi. Það kann að vera að þetta sé lítils virði og nái lítt tilgangi sínum ef farið verður eftir till. þeirra hv. framsóknarmanna, miðað við það sem er í frv. hæstv. forsrh., eins og hér hefur verið vikið að, sem ekki verður skilið á annan veg en að fella eigi niður niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum á næstu þremur árum, a. m. k. miðað við orðanna hljóðan í aths. með þeirri grein frv. Hæstv. landbrh. hefur sagt að hann hafi ekki skilið þessa grein frv. á þann veg sem hún er túlkuð í aths., og vel má vera að þessu verði breytt í meðferð málsins, en eins og aths. með frv. hæstv. forsrh. hljóðar verður það ekki skilið á annan veg en hér hefur verið sagt og þarf naumast að ítreka það. Þar segir, að til þess að ná þeim markmiðum, sem frvgr. gerir ráð fyrir, þurfi væntanlega að lækka niðurgreiðslur um 5400–6700 millj. kr. á ári, og eins og fram kemur í greininni er ætlunin að þetta gerist í áföngum á næstu þremur árum. Þetta er allt saman sagt berum orðum. En ég skal ekki um það segja, hvort þetta verður niðurstaðan. Það er auðvitað ekki alveg samhljóða vilji fyrir slíku og reikna má frekar með því að einhverjar niðurgreiðslur verði á búvörum á komandi árum, og þá er gott að hafa heimildir til þess að geta einnig ráðstafað þeim á frumstig framleiðslunnar ef það sýnist henta betur. Ég óttast ekki að Framleiðsluráði og Stéttarsambandi bænda takist ekki að finna leið til þess að framkvæma slíkt með nokkuð sanngjörnum hætti í garð bænda eftir mismunandi ástæðum þeirra.
Hæstv. ráðh. sagðist út af fyrir sig, eins og frv. er úr garði gert, miðað við brtt. meiri hl. n. og brtt. okkar Eggerts Haukdals, vel geta sætt sig við að sá málsl. væri felldur niður sem gefur heimildir til þess að jafna búskaparaðstöðu bænda, eins og þar segir, og m. a. með því að greiða niður flutningskostnað á fóðurvörum. Ég tel, eins og ég hef þegar sagt, að þessi ráðstöfun þess fjár, sem hér er um að tefla, eigi ekki heima í frv. þessu, ekki í þessari grein laganna. Hins vegar er ég því sammála, og ég hygg að a. m. k. flestir nm. í landbn. séu því sammála, að æskilegt sé að koma slíkri verðjöfnun við, og ég vil fagna því, sem hæstv. ráðh. sagði, að hann mundi beita sér fyrir að slík heimild yrði veitt eftir öðrum leiðum. Ég held að sé rétt að það verði gert, þó að það eigi ekki heima í þessu frv. sem aðeins fjallar um að veita fleiri heimildir til töku verðjöfnunargjalda og heimild til takmarkaðs fóðurbætisskatts og síðan ráðstöfun þess fjár til þess að dreifa þeim byrðum sem á bændastéttinni lenda, miðað við horfur, á þann hátt sem talið verður skynsamlegast.
Hæstv. ráðh. sagði að það væri mjög óljóst orðað, bráðabirgðaákvæðið í till. okkar hv. 1. þm. Suðurl., og ekki ljóst hvað það þýddi. Nú er það svo, að þetta bráðabirgðaákvæði er fremur rúmt orðað. En það hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Á árinu 1979 er heimilt að leggja fram nauðsynlegt fé úr ríkissjóði til þess að greiða fyrir sölu á óverðtryggðri framleiðslu búvara á þessu verðlagsári og birgðum búsafurða sem til eru í landinu þegar lög þessi öðlast gildi.“
Það er mjög svo erfitt að leggja þann skilning í þetta orðalag sem hæstv. ráðh. gerði, að það þýddi að tryggja ætti bændum fullt verð fyrir alla þessa framleiðslu. Ég held að þó að við, sem höfum starfað í hv. landbn. og hér höfum tekið til máls flestir í dag, viljum veg bænda góðan og viljum margt fram leggja til þess að leysa vanda þeirra, finnist tæplega pólitískur vilji til þess að ríkissjóður taki á sig allan þennan halla. Ég á ekki von á því og það er ekki ætlunin með þessari till. Heimildin er að vísu nokkuð rúm, en það er hægt að hugsa sér þetta eftir ýmsum leiðum, eins og ég gat um í minni fyrri ræðu, og það getur t. d. í sambandi við íslenskan iðnað þurft að breyta ákvæðum, sem gilt hafa, til þess að heimilt sé að veita sambærilega aðstoð og útflutningsbótafé er eða jafnvel að láta niðurgreiðslufé ná yfir það magn sem fer til sumra þátta í iðnaðarframleiðslunni. Það eru ýmsar hömlur á því að hægt sé að koma þessu við þannig að út komi skárri niðurstaða fyrir ríkissjóð og fyrir framleiðendur annars vegar og verði þó um leið framleiðendum iðnaðarvörunnar til hagsbóta. Þannig er ýmislegt í þessu sem þarf að greiða fyrir, þarf að lagfæra og liðka til þannig að hægt sé að nota þau tækifæri sem möguleg eru. Ástandið er það alvarlegt að það þarf að nota öll tækifæri.
Hæstv. ráðh. spurði, sem ekki var óeðlileg spurning: Hvar á að taka þetta fé? Vilja hv. fulltrúar Sjálfstfl. leggja til að það verði lagðir á auknir skattar, eða hvar vilja þeir ná þessu fé? — Mér finnst þetta eðlileg spurning. Hæstv. ráðh. vísaði fyrir sitt leyti á jarðræktarlögin og hann vísaði á fyrirframgreiðslu útflutningsuppbóta. Þessum leiðum vil ég ekki endilega mæla með eins og sakir standa. Það kann að vera að við þurfum þá verðtryggingu sem felst í útflutningsuppbótum á næstu árum, ef ekkert annað kemur í staðinn, og a. m. k. á þessu ári er búið að framkvæma í trausti þess að jarðræktarframlög fáist greidd, svo að það væri nú að koma aftan að mönnum að fara að kippa þeim til baka. Ég vil því hafa allan fyrirvara á um þær leiðir. En ég vil minna á það t. d., að við fjárlagaafgreiðslu lögðum við fulltrúar stjórnarandstöðunnar fram till. um tveggja milljarða kr. sparnað í ríkisútgjöldunum. Nú er liðið nokkuð á árið og það þyrfti að grípa til annarra og meiri niðurskurðartillagna til þess að unnt væri að ná 2 milljarða sparnaði. En það var einnig boðað við afgreiðslu fjárl. af fulltrúum beggja aðila, bæði stjórnarliða og stjórnarandstöðu, að fjvn. í heild — stjórnarandstaðan ekki undan skilin — mundi halda áfram athugunum sínum á því, hvort ekki mætti koma við auknum sparnaði í ríkisrekstrinum. Það hefur lítið farið fyrir athugunum af þessu tagi, væntanlega verður það gert á næstu vikum, en það er þörf á að taka þau mál til athugunar áður en of langt líður á árið, ef slíkt á að verka að einhverju marki á þessu ári. Ég hygg að það sé margt til athugunar í þessu efni. A. m. k. ætti hæstv. landbrh. ekki að kvarta yfir því að fá inn í þessi lög heimildir eins og um er að tala í bráðabirgðaákvæði þessu.
Út af ræðu hæstv. ráðh. skal ég ekki lengja mál mitt. Hann talaði í þeim tón, eins og hann hefur raunar áður gert iðuleg, að vilja ná samkomulagi um mál það, sem hér er á ferðinni, og hann lauk máli sínu með því að bera fram ósk um að brtt. væru dregnar til baka til 3. umr., þannig að hv. landbn. gæti athugað þær á milli umr. Ég tel það sjálfsagt mál fyrir hönd okkar, sem flutt höfum brtt. á þskj. 466, að verða við þeirri ósk, þannig að hv. n. gefist betra tóm til þess að átta sig á þeim brtt. sem þar eru fluttar.
Hv. þm. Kjartan Ólafsson gerði nokkrar aths. við einstaka liði frv., eins og það lítur út með brtt. frá meiri hl. n., og sagðist óttast að byrðinni yrði dreift þannig að litlu búin bæru of mikið, það væri óhjákvæmilegt að finna leiðir til þess að byrðinni yrði dreift réttlátlega, en hann taldi að mikil hætta væri á því, miðað við orðanna hljóðan í brtt. frá n., að litlu búin bæru einnig verulegan hluta byrðanna, bæði að því er snertir það sem segir í a-lið, þar sem heimilt er að ákveða framleiðendum fullt grundvallatverð fyrir ákveðinn hluta framleiðslunnar og útflutningsverð fyrir það sem umfram er, og einnig eins og b-liður hljóðar, um kjarnfóðurgjald. Hann tók sig nokkuð á, þegar hann leit í till. okkar hv. þm. Eggerts Haukdals, hvað fyrra atriðið snertir, en þar segir um þá kvótakerfisleið:
„Heimilt er að ákveða að skerðing grundvallarverðs sé engin eða hlutfallslega minni hjá bændum með meðalbú og minna.“
Þessa leið er hægt að fara og nálgast hún a. m. k. það sjónarmið sem fram kom hjá hv. þm. Kjartani Ólafssyni. Einnig er í till. okkar hv. þm. Eggerts Haukdals gert ráð fyrir því, að hið gjaldfría magn kjarnfóðurs skuli miða við fram talið magn afurða og bústofns á skattframtali. Nálgast það einnig það sjónarmið hv. 3. þm. Vestf., Kjartans Ólafssonar, sem hann kvartaði undan að ekki væri gert eða búast mætti við að gæti orðið framkvæmt á þann hátt að hann gæti ekki fellt sig við. Þess vegna hefði ég haft tilhneigingu til þess að ráðleggja honum að lesa vel þær brtt. sem við Eggert Haukdal, hv. 1. þm. Suðurl., höfum flutt, til þess að átta sig á að í þeim till. er þessum sjónarmiðum mætt. Enda þótt heimildir séu rúmar og unnt að fara í aðra átt held ég að flestir séu um það sammála, að litlu búin þurfa a. m. k. að bera minni byrðar en þau stærri.
Það er rétt hjá hv. þm. Kjartani Ólafssyni, að þau tilvik, sem um er fjallað í 3. gr. frv. eins og það var lagt fram af hæstv. ráðh., þarf að taka til athugunar þegar lögin í heild verða endurskoðuð. Þar geta verið staðbundnar aðstæður sem þarf að muna eftir í heildarlöggjöf. Ég fagna því hjá hv. þm. Kjartani Ólafssyni, að hann taldi að útilokað væri að ætla bændastéttinni að bera allan þann halla sem fyrirsjáanlega verður af þeim birgðum sem til eru í landinu af framleiðslu þessa árs, sem af framleiðslu þessa árs einni eru um 5 milljarðar kr., og taldi óhjákvæmilegt að finna leiðir til þess að dreifa byrðinni á þjóðina í heild. Þessum sjónarmiðum vil ég fagna og vænti þess, að þessi sjónarmið eigi ríkan hljómgrunn.
Hv. þm. Stefán Valgeirsson var byrjaður að tala meðan ég var enn frammi á gangi. Ég heyrði þó fljótt raust hans. En ég hef vanist því, að hæstv. forseti hringdi bjöllu sinni áður en fundur hefst, og missti því víst af fyrstu setningunni, en hún var, að mér er sagt, eitthvað á þá lund, að hann kvartaði yfir því að þeir, sem tekið hefðu til máls í umr. þessum, væru ekki mættir. En þó ég hafi misst af einni setningu hjá hv. þm. Stefáni Valgeirssyni að þessu sinni, sem gerist ekki oft, verð ég að segja að ræða hans kom mér í sjálfu sér dálítið á óvart. Við erum búnir að starfa að þessu máli margar vikur, jafnvel mánuði, og mér hefur ekki fundist hann vera í neinum sérstökum bardagaham, þó við höfum verið að vinna að því að reyna að negla þetta mál saman þannig að menn gætu sæmilega við unað. En það var eins og hann væri kominn í einhvern bardagaham þegar hann kom upp í ræðustólinn áðan og kvartaði undan ýmsu og þó fyrst og fremst okkur þm. stjórnarandstöðunnar.
Hann taldi að till. okkar sjálfstæðismanna kæmu á óvart. Ég held að hann hafi varla getað ætlast til þess að við flyttum ekki till. Ég gerði auðvitað grein fyrir því strax þegar skrifað var undir nál., að till. yrðu fluttar, enda skrifa ég ekki undir nál. með fyrirvara án þess að eitthvað búi undir. Hv. þm. taldi að ég hefði breytt um stefnu og tekið upp greinar eða ákvæði í þessar brtt. okkar sem hann hefði ekki átt von á, og þar átti hann fyrst og fremst við heimild til þess að greiða niður vöruverð á frumstigi. Ég get sagt hv. þm. Stefám Valgeirssyni það, að alla stund síðan ég fór að tala um þessi mál hef ég og fleiri rætt um þann möguleika að greiða niður vöruverð á frumstigi sem einn af þeim möguleikum sem þyrfti að athuga alltaf öðru hvoru. Og svo vill til, eftir því sem þeir segja mér forustumenn Stéttarsambandsins, að nú sýnist þessi leið ekki óálitleg. Það er í fullu samkomulagi við þá menn að heimild þessi er sett inn í brtt. okkar. Og ég verð að segja það, að ég fagna því ef það lítur nú betur út með þessa leið en stundum hefur gert áður.
Hv. þm. talaði um það með líkum hætti og hæstv. ráðh., að bú yfir 400–500 ærgildi ættu að fá alla skerðinguna. Það er bara ekkert áskilið í þessum till. Ég er sammála því, að ef t. d. bú yfir 500 ærgildi ættu að taka á sig alla þá bagga, sem virðast blasa við fyrir bændastéttina, og hið opinbera kæmi ekki þar til aðstoðar, þá mundi það ríða a. m. k. mörgum þeirra að fullu eins og sakir standa. Þannig má náttúrlega ekki að þessum málum standa og ég treysti Framleiðsluráði og Stéttarsambandinu til þess að haga málum á skynsamlegri máta.
Hv. þm. sagði að ég hefði talað um að ég vildi að við næðum samstöðu um þetta mál. Honum þótti einkennilegt að það hefðu verið haldnir 10 fundir í landbn. og samt væri samkomulagið ekki betra en raun er á. Ég tel mig vera að mæla fyrir brtt. í því skyni m. a. að ná samstöðu. Þær eru ekki fluttar í þeim anda að vera nein árás á hv. formann landbn. eða aðra þá sem skrifað hafa undir nál. Það er langt frá því. Hv. þm. sagði sjálfur, að svo væri um mannanna verk að þau mætti lengi bæta og átti þá við þær till. sem við Eggert Haukdal höfum flutt. Ég er ekkert að efa að þessar till. má enn bæta. Og þó að till. og ýmis orð hv. þm. Stefáns Valgeirssonar séu gáfuleg og með miklum ágætum, þá er jafnvel hægt að haga orðavali á betri máta á stundum en hann gerir, og svo er um öll okkar mannanna verk. Þess vegna er það síður en svo að það sé ástæða fyrir hv. þm. að vera að finna að því að þessar till. séu fluttar. Það er gert til þess að freista þess að bæta þetta mál, að ná fram því orðalagi sem túlkar það, sem við vildum í raun og veru gera, og túlkar það sem forustumenn Stéttarsambands bænda telja að sé framkvæmanlegt. Auðvitað eru þarna inni á milli nokkrar till. sem varða efnisatriði, og þeim gerði ég grein fyrir. Þó að þær séu fluttar, þá hef ég fulla heimild til þess að flytja slíkar till. ef ég tel að þær stefni í rétta átt og séu til bóta.
Ég tel að ég hafi ekki talað í það miklum áreitnistón í fyrri ræðu minni að ástæða væri til þess að nota það sem tilefni til þess að bendla það við einhverja óbilgirni í þessum efnum. Ég er alveg hissa á því ef svo er. Ég hafði búist við því að við mundum áfram, við hv. þm. Stefán Valgeirsson, reyna að ná þessu saman á þann hátt sem okkur sýndist best. Auðvitað kann svo að fara að okkur greini á, og þá geta leiðir skilið í vissum atriðum, en væntanlega getum við orðið um flesta þessa hluti sammála. Öll sú vinna, sem í þetta hefur verið lögð, hefur auðvitað verið til þess gerð að freista þess að ná því fram sem skárra er um leið og hafnað væri hinu sem lakara er.
Hv. þm. Stefán Valgeirsson kastaði nokkrum hnútum að hv. 1. þm. Suðurl. og spurði í tilefni af því að hv. þm. Eggert Haukdal hafði það eftir starfsmönnum Stéttarsambands að till. eins og þær komu frá n. væru lítt eða ekki framkvæmanlegar, hver væri þá munurinn á till. n. og brtt. okkar Eggerts Haukdals. Munurinn er kannske fyrst og fremst sá, ef við höldum okkur við aðalefni málsins, að í a-lið, eins og till. koma frá meiri hl. n., er bent á eitt atriði sem forustumenn Stéttarsambands bænda eru ekki sannfærðir um að sé framkvæmanlegt enn sem komið er. Sá liður er hvað hæpnastur í þeirri upptalningu sem við hv. 1. þm. Suðurl. setjum hér á blað, en hann er þó með í trausti þess að hann verði notaður því aðeins að hann sýnist framkvæmanlegur, ef sú leið er ekki framkvæmanleg eða fær verði aðrar leiðir farnar. Þessi leið er gerð að aðalatriði í till. frá n. og því hefur verið lýst yfir af formanni Stéttarsambands bænda, og hann ber fyrir sig lögfræðing Stéttarsambandsins, að þeir telji sér skylt að fara þessa leið frekar en aðrar miðað við orðanna hljóðan í þeim brtt. sem frá n. koma. Í brtt. okkar Eggerts Haukdals eru aftur á móti þrjár aðalleiðir gerðar jafnréttháar í a-lið og þeirri fjórðu er bætt við, sem er raunar jafnrétthá líka, sem er um að heimila að framleiðendum séu greiddar sérstakar verðbætur til að draga úr framleiðslu sinni, en sú leið er þó auðvitað nokkuð annars eðlis. Uppsetningin er þannig, að þessar leiðir eru jafnréttháar, og Stéttarsamband bænda, Framleiðsluráð og landbrh. hafa þar frjálst val eftir því hvað sýnist henta best. Þetta er auðvitað aðalmunurinn á þessum tveimur till. Síðan eru orðalagsbreytingar að því er varðar b-liðinn, en þær eru allar í þá átt, í nánu samráði við forustumenn Stéttarsambandsins, að koma þessu þannig á blað að telja megi að það sé framkvæmanlegt. Eins og gengið er frá b-liðnum í brtt. frá meiri hl. n. stangast það nokkuð á. — Þetta er það sem hv. þm. Eggert Haukdal átti við, að ég hygg.
Hv. þm. Stefán Valgeirsson sagði að bændur hefðu beðið um jöfnun flutningskostnaðar. Ég hygg að þetta sé rétt. Hins vegar er það ekki inni í frv. frá sjömannanefndinni. Það er sú skýring á því, að sjömannanefndin, eins og við hv. þm. Eggert Haukdal, telur að þetta eigi ekki heima í þessari grein laganna.
Ég skal ekki fara mörgum orðum um þetta frekar. Ég vænti þess, að hv. þm. Stefán Valgeirsson átti sig á því, að það er ekki verið að kasta neinni rýrð á þá vinnu sem unnin hefur verið í hv. landbn. undir hans forustu þótt brtt. komi fram, að miklu leyti um orðalag, en í öðru lagi um ný efnisatriði, sem allt er til þess að freista þess að koma þessu máli frá Alþ. á þann hátt sem skást má teljast.
Hv. þm. Stefán Valgeirsson sagði að nú væri framleiðsla svo mikil að hana mætti ekki aðeins draga saman á stórum búum, heldur einnig á litlu búunum. Ég er sammála því, að framleiðsla er nú mikil, hún er meiri en þörf er á og æskilegt er, mjólkurframleiðslan sérstaklega. Í raun og veru þarf að draga saman mjólkurframleiðsluna um ca. 20 millj. lítra á ári. Ég efast miklu meira um að sauðfjárframleiðslan sé of mikil.
Ég hef lagt fram ásamt fleiri þm. Sjálfstfl. till. um stefnumörkun í landbúnaði. Eitt aðalatriði þeirrar till., þegar kemur að því að velja leiðir til að ná aðalmarkmiðunum, er að gerð verði úttekt á svokallaðri umframframleiðslu í landbúnaði — úttekt sem skiptist á milli höfuðbúgreina. Það er nauðsynlegt að þeirri úttekt sé skipt annars vegar á milli mjólkurframleiðslu og hins vegar sauðfjárframleiðslu. Það blasir raunar við öllum að draga verður saman mjólkurframleiðsluna. En það er einnig nauðsynlegt að fá úr því skorið hvert er þjóðhagslegt gildi sauðfjárframleiðslunnar. Þó að ég geti sagt hér, að ég trúi því og ég treysti því að hægt sé að sanna að sauðfjárframleiðslan mestan part, a. m. k. eins og hún er í dag, sé þjóðhagslega hagkvæm, þá stendur ekkert annað en trú eða vissa mín þar á bak við. Það er eftir að sanna þetta og það þarf að sanna með úttekt á þjóðhagslegum grunni, eins og gert er ráð fyrir að gert verði í till. sem ég hef flutt og fleiri sjálfstæðismenn, Það þarf að setja í málið nefnd sem sé skipuð fulltrúum frá bændasamtökum, frá opinberum stofnunum — helst frá Hagstofu Íslands, frá samtökum iðnaðar og fleiri aðilum, er geri slíka úttekt. Það er allmikið verk og það er vandaverk, en það þarf að hverfa að því verki sem allra fyrst. Þegar sú úttekt liggur fyrir vænti ég þess, að hún sýni að sauðfjárframleiðslan sé ekki of mikil í landinu miðað við þjóðhagslegt gildi hennar. Þess vegna dreg ég mjög í efa að það sé rétt, sem hv. þm. sagði, að líka ætti að draga mjög saman litlu búin hvað sauðfjárframleiðsluna snertir.
Ég vil einnig taka það fram, að auðvitað er nauðsynlegt að mörkuð verði sú stefna í landbúnaðarmálum og þeirri stefnumörkun verði fylgt eftir með lagasetningu sem geri kleift að vinna að því með samkomulagi fulltrúa ríkis og bænda að ná framleiðslumagninu að því marki, sem talið er hagkvæmt þjóðfélaginu, á nokkrum árum. Þetta verður ekki gert með því að setja upp áætlanir, heldur verður að gera þetta með samningum til nokkurra ára — samningum sem verða því aðeins virkir að verðtrygging fylgi á því heildarmagni sem samið er um. Að þessu efni öllu er komið ítarlega í þeirri stefnumörkunartillögu sem við sjálfstæðismenn höfum flutt, og ég vænti þess, hvort sem það verður nú fyrir þinglok eða á næsta Alþ., að takist að breyta framleiðsluráðslögum á þann hátt að þessi stefna verði virk. Þá þarf einnig að vera búið að gera þá þjóðhagslegu úttekt, sem ég hef hér gert að umtalsefni, og byggja m. a. á henni þau framleiðslumarkmið sem sett verða, til þess að við þurfum ekki að vera með endalausar spásagnir um það, hvert við eigum að stefna í framleiðslumálum í landbúnaði okkar.
Ég skal svo ekki, herra forseti, lengja þessar umr. Ég hef tekið það fram, að ég tel sjálfsagt að fresta afgreiðslu á þeim brtt! sem ég hef mælt fyrir, sem og öðrum sem fram hafa komið. Ég vænti þess, að þær verði ekki skoðaðar sem einhver árás á störf landbn. Nd., því síður á störf formanns n., sem yfirleitt hefur starfað að þessu máli eftir þeim leiðum, að mér hefur virst, að vilja komast að bestri niðurstöðu. Þó út af bregði þegar hann kemur í vígaham í ræðustól, þá rennur sá vígamóður af og hinn rétti hv. þm. Stefán Valgeirsson tekur til starfa þegar með birtingu í fyrramálið og þá mun renna upp fyrir honum það ljós að þær till., sem við hv. þm. Eggert Haukdal höfum flutt, séu allar til bóta.