19.03.1979
Neðri deild: 63. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3399 í B-deild Alþingistíðinda. (2639)

125. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Frsm. meiri hl. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Síðasti ræðumaður, hv. þm. Páll Pétursson, er kannske dálítið dæmigerður um það, hvernig umr. fer fram um þessi mál og hver samstaða er í raun og veru um þau.

Eins og ég reyndi að segja í framsöguræðu minni voru störf landbn. þannig, að menn skiptust á skoðunum um hvaða leiðir væri hugsanlegt að fara til samkomulags. Og einmitt vegna þess að þetta voru fyrst og fremst leiðir sem Eyfirðingar mótuðu og ég hefði orðið var við að sumt af því var mér eignað hafði ég þann háttinn á að hafa aðstoðarmann hæstv. landbrh, á þessum fundum til þess að hann setti á blað hvaða leiðir hann teldi, eftir að hafa hlustað á allar umr., að væru færar. Það voru sem sagt ekki till. mínar, heldur voru það till, sem hann setti á blað er hann hlustaði á þær umr. sem fóru fram í landbn. Ég lagði áherslu á það allan tímann, að heimildir væru sem rýmstar, en þetta varð niðurstaðan, — niðurstaða hans, ekki mín. Ég taldi að bændastéttin stæði betur að vígi með því að fá þessar heimildir en að fá ekki samstöðu um neitt. En það virðast vera skoðanir vissra þm. að besta leiðin sé að fá ekkert. Kannske að hafísinn bjargi því?

Ég kom aðallega upp í þennan ræðustól vegna þeirra ummæla sem hafa komið hér fram, að forráðamenn Stéttarsambandsins hafi talið að till., eins og þær liggja fyrir frá meiri hl. hv. landbn., væru ekki framkvæmanlegar. En þegar ég ræddi þessi mál í dag í framsöguræðu minni, las ég einmitt upp bréf frá stjórn Stéttarsambands bænda um till. Ég vissi nefnilega alveg fyrir fram hvað menn mundu segja hér. Ég hafði því vaðið fyrir neðan mig og sendi till. til stjórnar Stéttarsambandsins til umfjöllunar áður en væri gengið frá þeim. Stjórnin benti á tvö atriði, og það var orðið við því að breyta samkv. því. Í þessari bókun, sem er úr fundargerð stjórnar Stéttarsambandsins, segir, með leyfi forseta:

„Stjórnin mælir með samþykkt frv. með þessum breytingum, en telur sér ekki fært á þessu stigi að gefa yfirlýsingar um hvaða leið verði farin.“

Hún mælir með. Svo koma menn hér umvörpum og segja að sagt hafi verið að þetta væri óframkvæmanlegt. Hér er þetta skjalfest, formaður Stéttarsambandsins skrifar undir. Svona er nú málflutningurinn!

Menn ræða um muninn á verðjöfnunargjaldi og þessari leið, kvótafyrirkomulaginu. Munurinn er fyrst og fremst sá, að bóndinn veit fyrir fram fyrir hvað hann má framleiða til þess að hann fái fyrir þá framleiðslu fullt verð. En þegar er um verðjöfnunargjald að ræða kemur það eftir á og hann fær það á hverja einingu, hvað sem hann framleiðir, hvort sem það er minna eða meira. Þetta er munurinn. Ég held að það sé ólíkt skynsamlegra fyrir bændastéttina að vita fyrir fram fyrir hvað mikla framleiðslu hún fær fullt verð en að láta setja verðjöfnunargjald eftir á, enda treysti ég því, ég þekki marga bændur, að þeir muni haga framleiðslu sinni eins og kemur þeim best, ef þeir vita þetta fyrir fram.

Ég ætla svo ekki að ræða þetta frekar, það eru orðnar langar umr., nema ég vil segja það við hv. þm. Pálma Jónsson, að eðlilegust vinnubrögð í landbn. eftir 10 fundi hefðu verið að þeir hv. þm. Sjálfstfl. í n. hefðu komið fram með till. sínar í n., eins og hv. þm. Lúðvík Jósepsson gerði og hv. þm. Finnur Torfi Stefánsson, til þess að vita, ef þeir hefðu viljað fá samstöðu í n., hvort menn vildu fallast á till. þeirra. Þetta var ekki gert. Það var það sem ég átti við. Það kalla ég eðlileg vinnubrögð, hitt óeðlileg.

Ekki mun standa á mér að reyna að finna lausn á þessu máli ef hægt er að finna lausn, og ég vil treysta því enn að menn vilji taka á þessu máli nú, en ekki að segja: Ég vil þetta, hinn hitt, — menn vilji frekar fá eitthvað fram til þess að bændur geti stjórnað þessari framleiðslu eins og þeir hafa beðið um. Ég sé ekki betur og ég skil ekki till. meiri hl. n. á annan veg en þetta sé í raun og veru allt sett í hendur Stéttarsambands og Framleiðsluráðs með samþykki landbrh., þannig að þó í till. þeirra hv. þm. Pálma Jónssonar og Eggert Haukdals sé minnst á ákveðin atriði felist heimildirnar í till. meiri hl. n., að Stéttarsambandið hafi heimild til að fara allar þessar leiðir og hvernig sem Stéttarsambandsfundur samþykkir að ganga frá málinu.