20.03.1979
Sameinað þing: 70. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3410 í B-deild Alþingistíðinda. (2648)
339. mál, útgáfa fiskikorta
Fyrirspyrjandi (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Á þskj. 257 á ég fsp. til hæstv. sjútvrh. um útgáfu fiskikorta sem hljóðar svo:
„Hvað liður útgátu fiskikorta, sem Alþ. ályktaði að út skyldu gefin með samþykkt sinni hinn 15. mars 1977?“ Ég spyr vegna þess að ég átti sannarlega von á því að við afgreiðslu fjárl. í desember s. l. yrði gert ráð fyrir fjármögnun á útgáfu þessara fiskikorta. Enda þótt þar væri ekki slíkan lið að finna bar ég enga brtt. fram við fjárl. í þessu skyni þar sem ég ber ekki hækkunartillögur fram við fjárlög. En mér hefur verið tjáð hins vegar að hv. fjvn. hafi hafnað till. rn. um fjárveitingu til útgáfu þessara fiskikorta. Að sjálfsögðu er það óhæfa að fjvn. eftir viljayfirlýsingu Alþingis hafi nokkurn rétt til þess að grípa þannig fram fyrir hendurnar á fyrri ákvörðunum Alþingis. Ég spyr vegna þess að þetta er mjög mikilvægt mál. Hér er um útgáfu fiskikorta að tefla sem okkur sárlega skortir. Við studdumst í gamla daga við ensk fiskikort, en vegna nýrrar tækni og eins vegna þess að við erum hættir að láta Breta þjónusta okkur að þessu leyti a. m. k., þá ber brýna nauðsyn til útgáfu þessara korta. Þau gætu vegna C-lóranlínunnar orðið skipum til hins mesta bjargræðis. Þar er hægt með ótrúlegri nákvæmni að setja niður skipsflök og aðrar festur sem mundi stórspara veiðarfæri. Það er hægt að staðsetja skip næstum því að segja nákvæmlega þannig að ekki muni breidd þeirra að kalla má. Vegna þessarar brýnu nauðsynjar, sem Alþ. hefur áður tekið undir með samþykkt sinni um útgáfu þessara korta, er þessi fsp. fram komin og vegna grunar míns að gefnu tilefni um það, að ekki sé staðið að útgáfunni eins og ætlast hafi verið til.