20.03.1979
Sameinað þing: 70. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3417 í B-deild Alþingistíðinda. (2655)
167. mál, neyðarþjónusta Landssímans
Fyrirspyrjandi (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Á þskj. 323 hef ég leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. samgrh.:
„Hvaða ráðstafanir verða gerðar til að tryggja neyðarþjónustu í símamálum á þeim landssvæðum, sem ekki hafa sjálfvirkan síma, og koma þar með í veg fyrir neyðarástand sem víða er nú í þessum málum, sérstaklega eftir samdráttarráðstafanir póst- og símamálastjórnar á s. l. hausti?“
Á undanförnum árum hafa orðið miklar framfarir á landinu í símamálum. Fjölsímarásir eru komnar um mestallt landið, jarðsímaleiðir og fjölsímaleiðir í uppbyggingu, svo og radíóleiðir. Sjálfvirkum símstöðvum fjölgar með ári hverju og mikill meiri hluti þjóðarinnar hefur aðgang að sjálfvirkum síma. Þessu ber að fagna og stefna markvisst að því, að landsmenn allir búi við sjálfvirkan síma sem allra fyrst.
Þá er það réttlætismál að gjaldskrá Landssímans verði leiðrétt til að minnka þann mikla mun á símagjöldum sem nú er í gildi, þó sjálfsagt sé að meta þá leiðréttingu sem gerð hefur verið nú síðari árin, ekki síst þá breytingu frá 1. mars s. l., að 5. gjaldflokkur var felldur niður, sem nemur verulegu fyrir símnotendur úti um land. Það er t. d. réttlætismál að skrefagjald sé hið sama innan hvers svæðis, svo að eitthvað sé nefnt. En aðalkrafan hlýtur að vera sú, að sama gjald sé alls staðar á landinu.
Samtök sveitarfélaga hafa mjög beitt sér fyrir þessum málum. Liggja fyrir tölulegar upplýsingar, sem Fjórðungssamband Vestfirðinga lét gera á s. l. ári, sem sýna ljóslega hversu gífurlegur þessi aðstöðumunur er. T. d. er meðaltal umframskrefa á ársfjórðung í Breiðholti hér í Reykjavík 1013, en á Egilsstöðum fyrir austan 6372. Umframgjald á síma í notkun á árinu 1977 með söluskatti í Reykjavík var 71544, en á Egilsstöðum 355013. Sama hlutfall er á öðrum svæðum úti um land. Þetta er því ekkert smámál í aðstöðumun, þótt leiðrétt hafi verið að nokkru, t. d. með ráðstöfunum 1. mars s. l.
Þrátt fyrir miklar framfarir í símamálum eru stór svæði á landinu sem ekki hafa sjálfvirkan síma, raunar meiri hluti dreifbýlishreppa landsins. Hefur verið lagður þungi á þá kröfu, að símaþjónusta við dreifbýlið verði bætt með lengingu afgreiðslutíma símstöðva og stefnt verði að sjálfvirkni.
Á s. l. hausti, nánar tiltekið frá 1. des. s. l., tóku gildi nýjar reglur hjá Pósti og síma sem voru í því fólgnar að stytta afgreiðslutíma símstöðva og leggja niður eða breyta neyðarþjónustu. Þessi ákvörðun Pósts og síma, sem er gerð í sparnaðarskyni, bitnar harkalegast á því fólki úti um landið sem hafði fyrir lélegustu símaþjónustuna og þarf öðrum fremur á því öryggi að halda sem síminn veitir. Breytingin á neyðarþjónustunni hefur þegar valdið mikilli röskun og er mildi að ekki hefur hlotist af slys. Á utanverðu Snæfellsnesi, þar sem ég þekki best til, var sú breyting gerð að neyðarþjónustan, sem verið hefur um símstöðina í Ólafsvík fyrir utanvert Snæfellsnes í tæp 20 ár, var lögð niður 1. des. s. l. Í jan. s. l. komu tvisvar fyrir alvarleg veikindatilfelli á þessu svæði þar sem ekki er sjálfvirkur sími, og varð í báðum tilfellum að brjótast áfram langan veg í fárviðri að nóttu til til að vitja læknis, og tók það margar klukkustundir. Sem betur fór varð ekki slys af, en óbreytt neyðarþjónusta hefði leyst þetta vandamál á fljótvirkan hátt.
Ég get verið sammála nauðsyn þess að gera ýmsar sparnaðarráðstafanir í rekstri Pósts og síma. En ég mótmæli því að slíkar ráðstafanir séu fyrst látnar bitna á sjálfsögðustu öryggismálum sem varða læknaþjónustu og slysavarnir og draga saman þjónustu við dreifbýlið með enn styttri afgreiðslutíma símstöðva. Það hljóta að finnast aðrir þættir í þessari starfsemi sem spara á frekar.
Á aðalfundi heilsugæslustöðvarinnar í Ólafsvík í byrjun jan. s. l., þar sem mættir voru allir hreppsnefndarmenn 5 hreppa er að heilsugæslustöðinni standa, var einróma samþykkt að skora á póst- og símamálastjórn, að öryggis- og neyðarþjónustu á Snæfellsnesi verði komið í viðunandi ástand. Á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi 17.–18. nóv. s. l. var gerð eftirfarandi samþykkt um símamál:
„Fundurinn leggur áherslu á, að símaþjónusta við dreifbýlið verði bætt með lengingu afgreiðslutíma símstöðva og stefnt verði að sjálfvirkni. Fundurinn mótmælir harðlega þeirri ákvörðun póst- og símamálastjórnar að stytta afgreiðslutíma símstöðva á Snæfellsnesi svo sem boðað er.“
Herra forseti. Þessi fsp. er gerð í þessu máli vegna þess að það varðar líf og heilsu fjölda fólks í okkar harðbýla landi, að þess sé ávallt gætt að opinber þjónusta, eins og símaþjónusta, veiti íbúunum það öryggi sem nútímatækni á þessu sviði getur frekast veitt.