20.03.1979
Sameinað þing: 70. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3425 í B-deild Alþingistíðinda. (2664)

167. mál, neyðarþjónusta Landssímans

Fyrirspyrjandi (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég vil þakka svör hæstv. ráðh. og þær ágætu umr. sem hér hafa nú þegar farið fram um þetta áhugaverða mál.

Það kemur mér á óvart að það sé ekki í verkahring Pósts og síma að veita neyðarþjónustu í símaþjónustu úti um landið. Það kemur einnig fram í svari stofnunarinnar staðfesting á því, að samdráttur í þjónustu hennar hefur bitnað fyrst og fremst á þeim sem síst skyldi, þeim sem búa í strjálbýlinu. Ég vænti þess, að hv. þm. geti sett sig í spor þess fólks sem getur ekki notað símtækið hvað mikið sem liggur við.

Ég vil taka undir með hæstv. ráðh. í sambandi við nauðsyn á framkvæmdum í símamálum og sérstaklega að vinna að því að hraða því að sjálfvirkur sími komist sem víðast og raunar til allra símnotenda landsins. Það þarf ekki að undrast í raun og veru að sá óraunhæfi vísitölugrundvöllur, sem hefur verið rætt um oftar en einu sinni, skuli einnig hamla gegn svo sjálfsögðu máli sem jöfnun símagjalda, og það rennir stoðum undir þá nauðsyn að taka vísitölugrundvöllinn til rækilegrar endurskoðunar, eins og sem betur fer er nú þegar hafinn undirbúningur að.

Ég vil nota þetta tækifæri til að fagna því sérstaklega í sambandi við fjárlagagerðina 1979, sem var ákaflega mikilvægt fyrir okkur á Snæfellsnesi, sem búum við mjög lélegar aðstæður að þessu leyti, að forustumenn Pósts og síma skyldu leggja á það aðaláherslu að þær framkvæmdir, sem yrðu í símamálum 1979, yrðu einmitt á okkar svæði, þ. e. í sambandi við jarðsímalögn og radíóleiðir. Það var vel að þessu staðið og staðfest hér á hv. Alþ. með samþykkt fjárl., þannig að við eigum von á verulegum úrbótum á þessu sviði nú á þessu ári. Því vil ég sérstaklega fagna.

Ég vil einnig taka undir það með hv. 2. þm. Vesturl., að vöntun á strandstöð á Snæfellsnesi, þar sem mikil útgerð er, er mjög mikið vandamál. Við höfum reynt á undanförnum árum að fá þetta lagfært með stuðningi Slysavarnafélags Íslands, en því miður hefur það ekki tekist. T. d. í mínu byggðarlagi er það Ólafsvíkurhöfn sem rekur sérstaka radíóstöð fyrir bátaflota okkar sem er kostuð af höfninni og útgerðaraðilum á staðnum, þannig höfum við reynt að leysa þetta mál. En heildarlausn er nauðsynleg, og ég vænti þess, að með nýrri tækni, sem kemur til á þessu svæði, verði úr þessu bætt, eins og raunar er þörf á víðs vegar um landið eins og hér hefur komið fram.

Ég endurtek þakkir til ráðh. fyrir svör hans og fyrir þann áhuga sem hv. þm. hafa á þessu máli.