20.03.1979
Sameinað þing: 71. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3434 í B-deild Alþingistíðinda. (2678)

113. mál, umbætur í málefnum barna

Flm. (Árni Gunnarsson):

Herra forseti. Ég vil þakka þær undirtektir sem þessi þáltill. hefur fengið hjá þeim hv. þm. sem hér hafa talað. Jafnvel hv. þm. Páll Pétursson sá sér fært að taka undir þessa till., þó að hún væri frá 11 Alþfl.-mönnum, og eru það nokkur tímamót í ræðuhöldum hv. þm. á þingi í vetur. Engu að síður vil ég þakka þessar undirtektir sem ég tel mjög ánægjulegar. Er kannske tímanna tákn að karlmenn skuli fjalla um þessi mál sem fram undir síðasta áratug voru talin nokkurs konar einkamál kvenna, þ. e. a. s. málefni barna. Ég held nefnilega að þessi karlasamkoma, sem við eigum aðild að, hafi — með fullri virðingu fyrir þeim fáu fulltrúum kvenna, sem hér eiga sæti, er þetta fyrst og fremst karlasamkoma — látið þessi mál nánast lönd og leið á undanförnum árum og ekki skipt sér af þeim að nokkru leyti, nema þá í sambandi við umr. um lagasetningu um málefni barna.

Það er hárrétt hjá hv. þm. Helga Seljan, að það er þegar samstarfshópur, sem á að fjalla um ýmis málefni barna, byrjaður að starfa á vegum menntmrn. Þessi till. er hins vegar búin að liggja á þingi frá því löngu fyrir áramót, og ég vænti þess fastlega að mál þessi og till., sem fram koma hér, geti einmitt farið til þessa hóps og væri það vel.

Hér eru vissulega settar fram ítrustu hugmyndir í þeim málaflokki, sem um er fjallað, og dettur varla nokkrum manni í hug að nema brot af þessu nái fram að ganga á næstunni, en engu að síður eru þarna á ferðinni mál, sem hafa fengið mjög ítarlega meðferð á undanförnum tveimur árum hjá Sambandi Alþýðuflokkskvenna, og mál, sem ég vona að sem flestir geti gert að sínum málum.

Ég vil ekki hafa um þetta fleiri orð. Í till. eru margar nýjungar. Það er ekkert undarlegt, eins og oft gerist þegar bryddað er upp á nýjungum, að mönnum verði gjarnt að brosa þegar þeir heyra ýmsar hugmyndir um hvernig halda skuli á málum. En engu að síður er hér á ferðinni málaflokkur sem við höfum almennt látið allt of afskiptalítinn að undanförnu. Er fyllsta ástæða til þess að við förum að huga betur og meir að þessum málum, eins og hv. þm., sem hér hafa tekið til máls, hafa bent réttilega á.