20.03.1979
Sameinað þing: 71. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3438 í B-deild Alþingistíðinda. (2683)
163. mál, rannsókn á innsiglingaleiðinni í Höfn
Flm. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Ég mun hafa skammar signingar yfir þessari till., svo sjálfsögð er hún, enda degi tekið mjög að halla, þótt færð haldist að vísu enn sæmileg, en hún er um rannsókn á innsiglingarleiðinni í Höfn í Hornafirði.
Á haustdögum bar það við, að við borð lá að hinir minnstu landróðrabátar hættu að geta tekið þá höfn. Ástæðan var breyting á innsiglingunni og við það hefur bæst að landris virðist hafa orðið mikið um þessar slóðir. Menn sáu afleiðingarnar, flutningaskip strönduðu og lágu á strandstað um langa hríð áður en þeim var borgið, og eins og ég segi, allt leit þetta þann veg út að horfði til stórvandræða.
Það þarf ekki að rekja það, hver lífhöfn Höfn í Hornafirði er. Þar er afkastamesta og nýtískulegasta frystihús landsins, sem tekur á móti einhverjum mestum afla allra frystihúsa. Þar eru afkastamestu tvær síldarsöltunarstöðvarnar, sem þjóna miklu fleiri bátum en eru frá Höfn í Hornafirði. Þar er allafkastamikil loðnubræðsla og fiskmjölsverksmiðja. Og það má benda á að þetta er ört vaxandi staður, sem á lífsafkomu sína undir útræði, og Höfn í Hornafirði enn fremur lífhöfn á langri hafnleysu.
Það var ráðin bót á mestu vandræðunum með því að dýpkunarskip var fengið til þess að dýpka bæði í innsiglingunni og í innri höfninni. Breytingarnar eru geysilega miklar. Eins og menn þekkja er innsiglingin til Hafnar um Hornafjarðarós, sem er ós Hornafjarðarfljótanna, og menn hafa reynslu af því að stórbreytingar hafa þarna orðið frá ári til árs. Það þarf að rannsaka — og á það legg ég höfuðáherslu — möguleika á að ráða bót á þessu vandamáli til frambúðar.
Ég legg svo til, herra forseti, að þessari umr. verði frestað og till. vísað til allshn.