21.03.1979
Efri deild: 71. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3445 í B-deild Alþingistíðinda. (2693)
200. mál, almannavarnir
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég hygg að hér sé hreyft þýðingarmiklu máli, þar sem um er að ræða endurskipulagningu og breytingu á stjórn almannavarna. Það skiptir að vísu ekki meginmáli í þessu sambandi, en þó hygg ég að það megi koma fram og sé nauðsynlegt að komi fram, að frá upphafi var þeirri stofnun eða því fyrirbæri, sem nefnist almannavarnir, ætlað annars konar hlutverk í raun og veru heldur en nú hefur orðið, heldur en þessi stofnun hefur þróast til. Til almannavarna var stofnað á þeim tíma kalda stríðsins þegar viðbúið þótti að meginverkefni þessarar stofnunar yrði að reyna að draga sem allra mest úr því tjóni sem við blasti að þessari blessuðu þjóð væri búið af erlendri hersetu. En nú, þegar heldur hefur hlánað í alþjóðaviðskiptum, hefur megináherslan verið lögð á aðra þætti, en almannavarnaráð þó raunar aldrei búið til þess starfs af fullkominni alvöru.
Ég ætlaði mér ekki að rekja forsöguna eða „filósófera“ um eðli almannavarnaráðs eða frumhugsunina að því, heldur var tilefni þess, að ég kom upp í ræðustól, síðasta aths. hæstv. dómsmrh., sem hné að því hversu vanbúinn landssíminn væri að stöðvum til fjarskipta í þágu þess arna. Það hygg ég muni vera rétt. En ég vil vekja athygli á því, og það mætti vera vísbending í þá átt, að ýmis tæki kunna að vera til í landinu. Hér er því e. t. v. fremur um að ræða skipulagsatriði en bara beinlínis skort á tækjum.
Á landi hér eru taldar vera um eða yfir 9000 svonefndar CBS-talstöðvar, flestar hverjar framleiddar í Bandaríkjunum, með mörgum talrásum. Eins og skammstöfunin bendir til þýdd á enska tungu eru þessar talstöðvar ætlaðar til borgaralegra nota fyrir einstaklinga þar vestra, og þannig eru þær notaðar þar. Hér eru þessar stöðvar í gangi í allt að því svo mörgum bifreiðum sem ég nefndi áðan. En þrátt fyrir margra ára tilraunir eigenda þessara stöðva og síðan félags, sem þeir stofnuðu með sér, hefur það ekki fengist fram, að landssími Íslands héldi uppi hlustvörslu á neyðarbylgju þessara stöðva á þeim símstöðvum þar sem radíóvakt er annars. Engin frambærileg ástæða hefur komið fram fyrir þessari synjun Pósts og síma, því að við blasir að hægt er lögum samkv. fyrir Póst og síma að taka afnotagjöld af stöðvum þessum, þótt þær séu í eigu einstaklinga, heldur virðist hér vera um að ræða þráa gróinnar stofnunar og um eðli slíks þráa mætti vísa til merkrar bókar sem á sínum tíma kom út á Íslandi og nefndist „Parkinsonslögmálið“. Ég er ekki að sveigja hér að einstaklingum í yfirstjórn Pósts og síma, heldur virðist hér hafa komið fram eðli umfangsmikillar og flókinnar stofnunar. Þessar litlu, tiltölulega ódýru, en tæknilega vel gerðu talstöðvar eru, eins og ég sagði áðan, í nærri tug þúsunda bifreiða hér á landi. Notendur þessara stöðva hlusta á neyðarbylgjunni og kallbylgju að öðru jöfnu. Hér er um að ræða e. t. v. fullkomnasta upplýsinganet í neyðarþjónustu sem mögulegt væri að koma upp á Íslandi, ef því væri sinnt af opinberri hálfu að nota þá tækni sem við eigum í CBS- stöðvunum, sem eru í svo mörgum bifreiðum, og eins og líkur benda til er, þegar færð leyfir akstur um vegina, sjaldan mjög langt á milli bíla sem búnir eru þessum stöðvum.
Nú er rætt um yfirvofandi og meira og minna fyrirsjáanlegar náttúruhamfarir. Ef mér leyfist, herra forseti, að gera aths., vildi ég gjarnan að okkur tækist að finna eitthvert annað orð eða fleiri orð, sem næðu yfir hin ýmsu stig válegra umbyltinga höfuðskepnanna, en þetta eina orð: náttúruhamfarir. En einmitt þegar við hugleiðum möguleika okkar á að því að búa okkur undir slíka atburði, þá hygg ég að við ættum að hugsa mjög alvarlega um að nýta þau tæki og þá tækni, sem við höfum fyrir í landinu, og að reyna að vinna bug á tregðu opinberra stofnana í líkingu við þá sem ég nefndi áðan, sérstaklega þegar brottnám þess háttar hindrana mundi e. t. v. kosta bókstaflega ekki neitt.
Ég ítreka það enn, herra forseti, að ég beini ekki þessari gagnrýni minni að þeim einstaklingum sem nú stjórna Pósti og síma. Við höfum fleiri slík dæmi um hindranir sem eiga rætur að rekja til kerfisins, hindranir á því að beita ýmsum eignum okkar og tækjum á þessu landi til almannaheilla.