21.03.1979
Neðri deild: 64. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3471 í B-deild Alþingistíðinda. (2720)

148. mál, orlof

Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Félmn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um breyt. á l. nr. 87 24. des. 1971, um orlof. Hér er um að ræða eitt af þeim frv. sem flutt eru í samræmi við fyrirheit ríkisstj, um umbætur í félags- og réttindamálum, sem gefin voru samfara lagasetningu um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu frá 30. nóv. s. l.

Meginefni frv. er að launagreiðanda er skylt að veita innheimtuaðila orlofsfjár upplýsingar um greitt og vangreitt orlofsfé starfsmanna sinna. Ef slíkt er talið nauðsynlegt til að staðreyna upplýsingar er heimill aðgangur að bókhaldsgögnum launagreiðenda.

Fram kom hjá n., að nauðsynlegt væri að leita leiða til að verðtryggja betur orlofsfé en verið hefur til þessa, en vextir af orlofsfé eru nú aðeins 5% og hefur slíkt lítið að segja í þeirri verðbólgu sem við búum við.

N. varð sammála um að mæla með samþykkt frv., en Gunnar Thoroddsen og Eggert Haukdal skrifa undir nál. með fyrirvara um að þeir eru andvígir síðari mgr. 1. gr. frv., sem kveður á um heimild innheimtuaðila til að hafa aðgang að bókhaldsgögnum launagreiðenda ef nauðsyn krefur að staðreyna þau ákvæði sem frv. kveður á um.