22.03.1979
Sameinað þing: 71. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3525 í B-deild Alþingistíðinda. (2747)

14. mál, rannsóknarnefnd til að kanna rekstur Flugleiða og Eimskipafélags Íslands

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Eftirlitsnefndir Alþingis eiga að minni hyggju að vera einar af styrkustu undirstöðum í nútímalegu samfélagi, undirstöðum lýðræðis og þess nauðsynlega aðhalds sem kjörnir fulltrúar eiga að hafa með öðrum þáttum samfélagsins, og þá fyrst og fremst auðvitað bæði í embættismannakerfi og í viðskiptalífi. Ég vil taka undir það með hv. 1. flm. þessa máls, að það er út af fyrir sig rétt að orðið „rannsóknarnefndir“ hefur orðið til nokkurs skaða öllum þessum málflutningi, vegna þess að sú hætta er fyrir hendi að orðið sé notað neikvætt, það þykir fela í sér dómsfellingu fyrir fram, og beinlínis að orðið sé neikvætt og hlutdrægt. Orðin „eftirlitsnefnd“ eða „eftirlitshlutverk“ eru sennilega af þessum ástæðum betur til þess fallin að lýsa því sem við er átt.

Þessi till., sem hér er til umr., gengur út á það að setja upp sérstaka rannsóknarnefnd og þá samkv. 39. gr. stjskr. (Gripið fram í.) Það mun að vísu vera rétt, að það urðu umr. um formið á sínum tíma, en efnislega geri ég ráð fyrir að það sé eins hugsað og 39. gr. gerir ráð fyrir. Allt um það vil ég lýsa þeirri almennu skoðun minni, að ég væri frekar þeirrar skoðunar og tel að það ættu að vera hin almennu vinnubrögð að einstakar sérnefndir Alþ., og þá í þessu tilfelli samgn., tækju að sér slík verkefni. En það er út af fyrir sig réttur skilningur hjá hv. 1. flm., að ég hygg, að bæði hefur vantað á að þessi skilningur sé til staðar og meðan svo er ekki er varla annað fært en fara að eins og hann gerir, þ. e. a. s. flytja till. um sérstaka rannsóknarnefnd, því að það orð er til staðar í íslenskri stjórnarskrá.

Ég fyrir mitt leyti mun styðja þessa till. Ég tel að að vísu hafi það skeð að of miklir dómar hafi verið felldir of snemma um þetta mál, og flm, hefur í dag gert grein fyrir af hverju hann hafi talið það vera nauðsynlegt. En það er út af fyrir sig ekki kjarni málsins. Kjarni málsins ætti að vera hinn, enda hygg ég að það vaki fyrir flm., að kanna rækilega og á rökstuddan hátt hvort ekki sé fyrir löngu kominn tími til þess að setja hér sérstaka auðhringalöggjöf — löggjöf sem á almennan hátt kemur í veg fyrir of mikið samansafnað auðmagn og of mikil pólitísk völd sem slíku fylgja. Í annan stað er ósvarað spurningum eins og þeim, hvert sé raunverulegt samspil fyrirtækja, eins og þeirra sem hér um ræðir, og pólitískra ákvarðana, sem teknar hafa verið á undanförnum árum og áratugum. Sér löggjafinn ástæðu til þess að koma þessum málum haganlega fyrir? Sannleikurinn er auðvitað sá, að að því er tekur til afstöðu til suðhringalöggjafar og afstöðu til þess samansafnaða valds, sem verður iðulega í skjóli fjármagns, erum við í þessu landi ákaflega aftarlega á merinni. Af þessum sökum, ekki vegna þess að ég vilji vera að taka, hvorki af eða á, undir dóma sem fallið hafa á þessu stigi málsins, heldur í upplýsingaskyni, tel ég fullkomlega tímabært að till. þessi nái fram að ganga.

Hv. flm. fór nokkuð vítt og breitt um og m. a. drap hann á mikið aðalatriði þessa máls, sem sé hvort Alþ. ætli að fara að afsala sér völdum. Hvar liggja valdmörk t. d. þjóðþingsins annars vegar og auðhringa hins vegar? Og vilja menn eins og hv. þm. Alexander Stefánsson líta svo á, að undir engum kringumstæðum komi Alþ. við með hverjum hætti auðurinn hefur safnast saman? Ég er hv. flm. hjartanlega sammála um að það séu hnignandi sjónarmið sem hv. þm. Alexander Stefánsson talaði fyrir. Þessi glæra ræða, sem hv. þm. flutti í dag, hefði getað verið upp úr auglýsingapésa. Slíkt held ég að eigi afskaplega lítið erindi inn á hið háa Alþingi, alla vega tel ég að málflutningurinn sé nokkrum áratugum á eftir tímanum.

Á hinu vil ég vekja athygli, vegna þess að hv. 1. flm. þessa máls gerðist sérstakur talsmaður þingræðis, sem ég kunni mjög vel að meta, og í þessu tilfelli gagnvart samansöfnuðum auði og gagnvart embættismannakerfi, að það er svolítil úlfakreppa í þessum málflutningi þegar sömu aðilar eru hins vegar þeirrar skoðunar að ekki megi setja lög um efnahagsmál nema spyrja Guðmund J. Guðmundsson leyfis eða aðra fulltrúa hins lélega lýðræðis sem stundum er í fjöldahreyfingum. Þetta tel ég vera grein af sama meiði. Mér fannst satt að segja vanta þennan þriðja kapítula í að öðru leyti ágæta ræðu hv. 1. flm. þessa máls um það nútímalega vandamál, hvar liggi valdmörk hinna þjóðkjörnu fulltrúa annars vegar og uppsafnaðs valds, auðs eða embætta úti um samfélagið hins vegar. Sjálfur er ég ekki í hinum minnsta vafa um, að slíkt vald á Alþ. að hafa, og hef margreifað þær hugmyndir. Stundum hefur það verið kallaður sérstakur fjandskapur við verkalýðshreyfinguna, sem menn rugla þá saman við launþega almennt, og aðrir kalla till. hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar sérstakan fjandskap við frjálst framtak í landinu. Hvort tveggja held ég að sé jafnrangt. Hér er aðeins verið að túlka og boða nútímaleg sjónarmið, sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson virðist þó ekki skilja enn sem komið er nema að 213 hlutum og er miður farið.

Hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni þótti miður hvernig annar hv. þm., Friðrik Sophusson, hefði leikið persónu hans í þingræðu. Það er auðvitað rétt, að persónulegan skæting af þessu tagi á að forðast. En hv. þm., sem varla skrifar svo blaðagrein að hann noti ekki orðið Aragata sem atviksorð, er ég ekki viss um að sé sá heppilegasti til að fjalla um þessa hluti. Ég er honum samt sammála almennt.

En kjarni málsins er sá, að það er fyrir löngu orðið tímabært í fyrsta lagi að skilgreina upp á nýtt valdmörkin milli þjóðþingsins annars vegar og hinna einstöku þátta þjóðlífsins hins vegar. Ég vil að þeim hluta, sem ég hef þegar nefnt, taka undir með flm. þessarar tillögu. Ég held að almennt og efnislega horfi hún til réttrar brautar. En í annan stað er það auðvitað rétt, og ég undirstrika það þunglega, að enga dóma er verið að fella. Það fer ekkert á milli mála að þau fyrirtæki, sem hér hafa verið gerð að umræðuefni, hafa í okkar litla samfélagi fengið á sig margháttuð einkenni þess sem annars staðar mundi vera kallað einokunarviðskipti. Um allt slíkt á Alþ. að hafa hinar fyllstu upplýsingar í því skyni að undirbúa löggjöf, ef þurfa þykir. Þennan grundvallartón tel ég vera réttan í þessari till. og enn fremur alla þá röksemdafærslu hv. flm. um þingræði, sem kom fram í dag, og af þeirri ástæðu finnst mér ekki vera ástæða til að vera að tíunda um hvað er spurt í grg. eða hvernig málflutningurinn að öðru leyti hefur verið. Það er ekki aðalatriði málsins. Aðalatriði málsins er hitt, að hér er verið að leggja til að Alþ. fari út á nýjar brautir — brautir sem Alþ. á að fara út á hvort sem um er að ræða samansafnað fjármagn, of mikil völd embættismanna eða vanþroskað lýðræði, sem iðulega setur heilbrigðri efnahagslöggjöf stólinn fyrir dyrnar.