22.03.1979
Sameinað þing: 71. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3539 í B-deild Alþingistíðinda. (2755)

193. mál, endurskoðun laga um almannatryggingar

Flm. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég flyt hér ásamt hv. þm. Páli Péturssyni, Jóni Helgasyni, Vilhjálmi Hjálmarssyni og Ingvari Gíslasyni till. til þál. um endurskoðun laga um atmannatryggingar og undirbúning löggjafar um verðtryggðan lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn. Tillgr. hljóðar þannig:

Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að við heildarendurskoðun á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, sem gerð verði með það markmið í huga fyrst og fremst, að tryggingalöggjöfin verndi og styðji þá þjóðfélagsþegna, sem þurfa á samfélagsaðstoð að halda hverju sinni. Verði m. a. sérstaklega tekið tillit til eftirfarandi atriða:

a) Auk lífeyristrygginga, er taki til ellilífeyris, örorkulífeyris, makabóta, barnalífeyris, ekkjubóta og ekkjulífeyris, slysatrygginga, sjúkratrygginga og annarra bóta, verði í löggjöfina sett skýr ákvæði um að almannatryggingar annist fyrirgreiðslur til lamaðra og fatlaðra, hreyfihamlaðra, blindra og heyrnarskertra, málhaltra, þroskaheftra, ofnæmissjúklinga og annarra þeirra er eiga við erfiða sjúkdóma að stríða, útvegi og greiði nauðsynleg hjálpartæki og áhöld fyrir þetta fólk, greiddur verði að fullu kostnaður vegna sjúkrameðferðar, þar með talinn allur kostnaður vegna læknismeðferðar hjá erlendum sérfræðingum og sjúkrastofnunum.

b) Almannatryggingar greiði afnotagjöld af síma, útvarpi og sjónvarpi fyrir þá þjóðfélagsþegna, sem engar tekjur hafa aðrar en lífeyrisbætur tryggingakerfisins.

c) Fæðingarorlof greiðist af almannatryggingum til allra fæðandi kvenna í landinu, hvort sem þær eru útivinnandi eða við heimilisstörf.

d) Sett verði löggjöf um verðtryggðan lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn.“

Frá því að heildarlöggjöf um almannatryggingar var lögfest 1971 hafa verið gerðar margvíslegar breyt, á lögunum á hverju ári frá gildistöku. Allar þessar breyt. hafa miðað að því að bæta tryggingakerfið í vissum þáttum, en heildarendurskoðun, ekki síst miðað við breyttar þjóðfélagsaðstæður og ný vandamál, hefur ekki farið fram. Þess vegna teljum við flm. þessarar þáltill., að ekki megi draga lengur að hefja þessa endurskoðun, og viljum um leið benda á mörg vandamál þjóðfélagsþegnanna sem eiga heima í almannatryggingum. Við teljum að tryggingalöggjöfin eigi að vera þannig gerð, að hún veiti ekki aðeins fullkomið öryggi fólks á vissu aldurskeiði, heldur ekki síður vernd og afgerandi stuðning við alla þjóðfélagsþegna sem þurfa á samfélagsaðstoð að halda hverju sinni.

Við Íslendingar erum taldir stolt þjóð, viljum telja okkur til gildis að lífskjör okkar sem þjóðar séu með því besta sem gerist, svo og þjóðartekjur miðað við íbúa. Vissulega viljum við stefna að því markmiði, að við og niðjar okkar getum búið við afkomuöryggi sem frjáls og fullvalda þjóð. Kapphlaupið um lífsgæðin er sjálfsagt óskráð lögmál í hinum frjálsa heimi. En vill ekki oft gleymast, að ekki hafa allir þjóðfélagsþegnar jafnan rétt eða möguleika til að fylgjast með eða njóta lífsgæðanna? Það gleymist býsna oft, að ótalinn fjöldi meðbræðra og systra hefur af ýmsum ástæðum orðið fyrir áföllum sem skert hafa orku þeirra og getu til þátttöku í daglega lífinu og þannig útilokað frá eðlilegum samskiptum í þjóðfélaginu á mörgum sviðum.

Þetta á að sjálfsögðu við hvar sem er í heiminum. Við Íslendingar erum fámenn þjóð, þar sem segja má að allir þekki alla, og erum efnalega vel settir. Það ætti því að vera metnaður okkar og auðvelt fyrir okkur að sjá til þess, að þeir meðbræður og systur, sem hafa orðið fyrir áföllum í lífinu, fái eins góða meðhöndlun og samfélagslega hjálp og frekast er hægt að veita í nútímaþjóðfélagi. Það á virkt almannatryggingakerfi að gera. Við höfum fyrirferðarmikið tryggingakerfi og heilbrigðisþjónustu sem nemur yfir 40% af ársútgjöldum ríkis og sveitarfélaga. En því miður vantar stórlega á að þetta mikilvæga kerfi nái yfir það svið að aðstoða nægjanlega hinn mikla fjölda landsmanna sem eru öryrkjar, hreyfihamlaðir, blindir, heyrnarskertir, málhaltir, þroskaheftir, ellihrumir eða þjást af ýmsum alvarlegum sjúkdómum. Við rekumst daglega á þetta vandamál. Á þessu verður að ráða bót. Þess vegna má ekki draga lengur að endurskoða lög um almannatryggingar og aðlaga þau því hlutverki að vernda og styðja alla þá er verða fyrir áföllum og þurfa á samfélagshjálp að halda og þess sé gætt að sú aðstoð og hjálp komi að fullum notum og veiti öryggi til handa þessu fólki.

Við leggjum mikla áherslu á það atriði, að almannatryggingar taki til allra þarfa þessa fólks svo það þurfi ekki að leita annað, t. d. sjái almannatryggingar um innkaup á öllum hjálpartækjum og áhöldum fyrir hreyfihamlaða og öryrkja, kennslubókum og tækjum fyrir blinda og málhalta. Sömuleiðis verði tryggilega fyrir því séð í lögum, að öll sjúkrameðferð og endurþjálfun sé greidd að fullu, þar með talið þegar nm er að ræða sjúklinga sem sendir eru á sjúkrahús til erlendra sérfræðinga, þar með talinn allur ferðakostnaður.

Ég sagði áðan að núverandi virkni almannatrygginga væri of þung og seinvirk í mörgum tilfellum. Það vantar manneskjulega þáttinn í kerfið. Tökum dæmi: Eiginmaður fellur frá af slysförum, drukknar, ferst með skipi sem hverfur, leit ber ekki árangur. Ekkjan, e. t. v. með börn í ómegð, fær ekki greiddar bætur strax. Það kemur ekki til mála. Fyrst verður að sanna, jafnvel með málþófi og bíða eftir opinberum úrskurði, að maðurinn sé raunverulega dáinn. Tíminn, sem í þetta fer, getur tekið marga mánuði. Á meðan fær ekkjan engar bætur, sem oft veldur sársauka og efnahagslegum áhyggjum ofan á ástvinamissi. Almannatryggingakerfi okkar má ekki vera svona seinvirkt. Þessu þarf að breyta.

Það væri hægt að tilgreina í löngu máli óteljandi dæmi um hversu mjög skortir á að almannatryggingakerfi okkar fullnægi þörfum hins mikla fjölda landsmanna sem hafa orðið fyrir áföllum eða hafa skerta möguleika í einu eða öðru formi. Mitt mat er það, að tryggingakerfi okkar sé ranglega uppbyggt að því leyti til, að þeir, sem raunverulega þurfa á samfélagslegri aðstoð að halda, fái allt of lítið, en aðrir, sem eru efnalega vel settir, í mörgum tilfellum of mikið.

Eru nokkur skynsamleg rök fyrir því, að ekki sé til fjármagn til að láta t. d. blindu fólki í té nauðsynleg hjálpartæki, lestæki, kennslubækur, segulbönd o. fl. til að létta því lífsbaráttuna — eða heyrnarskertum og málhöltum. Við höfum horft of lengi fram hjá þessum vandamálum. Ef okkar þjóðfélag hefði verið með sívakandi augu og skilning á samhjálp þyrfti ekki sífellt að vera að tala um skort á fjármagni í þessum málum.

Það er skylda í lýðfrjálsu landi að tryggja almenn mannréttindi, að allir þegnar þjóðfélagsins eigi möguleika að almennum lífsgæðum. Það er þegar upplýst að hægt er með nútímaþekkingu að gera þær úrbætur að meiri hluti fólks, sem er öryrkjar, hreyfihamlað, blint, heyrnarskert, málhalt, þroskaheft, getur fengið þá meðferð í velferðarþjóðfélagi að það fái tækifæri til að lifa eðlilegu lífi og taka í vaxandi mæli þátt í störfum fyrir þjóðfélagið. Almannatryggingakerfi okkar á að stuðla að þessu hlutverki. Til þess verður það að breytast og verða manneskjulegra.

Fatlaður maður. sem misst hefur t. d. fót eða hönd, á ekki að þurfa að koma biðjandi um endurnýjun gervilims, sanna mál sitt með nýjum vottorðum og útfyllingum ótal eyðublaða og spurningalista. Kerfið á að vita allt um manninn, á að vera þannig uppbyggt að fylgst sé með slíkum aðilum og að fyrra bragði sé fylgst með högum hans og haft frumkvæði að því að uppfylla þarfir hans, bæði hvað varðar endurnýjun gervilima og hjálpartækja og eins um efnahagslegt öryggi, t. d. hjálpa til að koma viðkomandi í nauðsynlega þjálfun og vera ráðgefandi um vinnuútvegun. Sem sagt þetta mannlega samband má ekki gleymast.

Málefni þroskaheftra hafa verið talsvert til umræðu að undanförnu og er það vel. Stofnuð hafa verið landssamtök sem vinna að málefnum þroskaheftra, en þroskaheftur er nefndur hver sá sem af þekktum eða óþekktum ástæðum er þannig ástatt um, að hann geti ekki af eigin rammleik náð eðlilegum þroska, andlegum eða líkamlegum, til almennrar þátttöku í samfélaginu.

Engin sérstök lög eru til er tryggja þroskaheftum sömu réttindi og öðrum þjóðfélagsþegnum, þannig að þeim standi til boða bestu möguleikar til þjálfunar og náms, eins og þeir eru á hverjum tíma, eftir hæfileikum hvers og eins, og að þannig sé að þeim búið að þeir falli sem eðlilegast að þjóðfélaginu. Á þessu verður að ráða bót. Þótt margt sé vel gert fyrir þetta fólk í dag vantar samræmingu og stefnu í málin. Þarna eiga almannatryggingar að koma verulega inn í dæmið ásamt opnum skilningi fjárveitingavalds. Hér þarf til að koma löggjöf sem m. a. skipuleggur málin að því er varðar heilbrigðislöggjöfina.

Mér er kunnugt um að fullsamið frv. til l. um að aðstoð við þroskahefta hefur legið á borðum félmrn. síðan í des. s. l. Vil ég nota þetta tækifæri til að skora á hæstv. félmrh. að leggja þetta frv. fyrir Alþ. sem nú situr. Málefnið þolir ekki bið öllu lengur.

Eitt af nauðsynlegustu tækjum og um leið öryggismálum fyrir gamalt fólk, öryrkja og hreyfihamlaða eru sími, útvarp og sjónvarp. Við leggjum eindregið til að almannatryggingar greiði afnotagjald af þessum tækjum fyrir það fólk sem engar tekjur hefur nema lífeyrisbætur trygginganna. Þetta á hvergi heima nema í almannatryggingum. Það er alrangt að láta þetta vera mál landssíma, útvarps og sjónvarps. Almannatryggingar eiga að greiða beint til þessara stofnana þessi gjöld fyrir þetta fólk án afskipta hluteigandi. Almannatryggingar eiga að úrskurða hvaða fólk nýtur þessa.

Við flm. leggjum til að almannatryggingar greiði fæðingarorlof til allra fæðandi kvenna í landinu, hvort sem um er að ræða útivinnandi konur eða við heimilisstörf. Eins og öllum er ljóst er mjög mismunandi hvernig að þessu er staðið í okkar þjóðfélagi í dag. Hluti vinnandi kvenna fær fæðingarorlof gegnum stéttarfélög sem greitt er af Atvinnuleysistryggingasjóði, en mikill meiri hluti kvenna fær ekkert fæðingarorlof, enda þótt þær vinni við framleiðslustörf, eins og bændakonur í sveitum landsins svo og heimavinnandi konur. Okkur flm. finnst tími til kominn að tekið verði raunhæft á þessu máli og að allar fæðandi konur í landinu fái sama rétt. Þessar greiðslur eiga að okkar mati að koma frá almannatryggingum, en ekki úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Sá sjóður er myndaður til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og greiða atvinnuleysisbætur ef um atvinnuleysi er að ræða, en fyrst og fremst til að stuðla að atvinnuöryggi. Um fæðingarorlof þarf því að setja sérstök og skýr ákvæði í tryggingalöggjöfina.

Krafa um verðtryggðan lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn hefur orðið almennari með hverju ári. Löngu er ljóst að fjöldi lífeyrissjóða í landinu hafa ekki möguleika á að tryggja meðlimum sínum öruggan lífeyri og fjöldi landsmanna hefur engin lífeyrissjóðsréttindi. Við flm. teljum eðlilegt að endurskoðun almannatryggingakerfisins spanni yfir þetta verkefni og stuðli að setningu löggjafar um verðtryggðan lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn.

Við flm. viljum vænta þess, að endurskoðun almannatryggingakerfisins í heild verði tekin föstum tökum og þau atriði, sem við bendum sérstaklega á, verði tekin til meðferðar. Við leggjum áherslu á að tryggingalöggjöfin er fyrir fólkið, sem á að njóta hennar, og þess sé ávallt gætt að auðvelda samskiptin og gera þau manneskjulegri. Það er von okkar að endurskoðuð lög um almannatryggingar, sem m. a. feli í sér þær breytingar, sem hér hefur verið bent á, komi til meðferðar á Alþ. sem allra fyrst.

Ég vil að lokinni þessari umr., herra forseti, gera það að till. minni að málinn verði vísað til allshn.