22.03.1979
Sameinað þing: 71. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3544 í B-deild Alþingistíðinda. (2757)

193. mál, endurskoðun laga um almannatryggingar

Flm. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég vil þakka síðasta hv. ræðumanni fyrir undirtektir hér. Ég vil aðeins undirstrika að það var einmitt vitað og er ekkert leyndarmál, að búið var að skipa sérstaka n. eða tilnefna sérstaka þingmannanefnd til að hefja endurskoðun almannatryggangalaga, og ég vona að sú endurskoðun sé hafin. Ekki síst þess vegna var nauðsynlegt að koma að þeim ábendingum sem eru í þessari þáltill. Mér finnst vera miklu eðlilegra að það komi fram á Alþ. skýrar og greinilegar umr. um það sem menn hafa áhuga á að komi inn í þessa löggjöf, því ef það liggur ekki fyrir þannig eins og hér er fram sett er hætt við að fari í sama farið og hefur verið á undanförnum árum. Löggjöfin hefur verið tekin til endurskoðunar, gerðar á henni ýmsar breytingar, en heildarendurskoðun hefur ekki náð því marki sem að hefur verið stefnt og reynslan hefur sýnt og sannað að hefði verið þörf á að gera. Þess vegna held ég að einmitt slík till. sem hér liggur fyrir sé nauðsyn. Hér er bent á marga þætti tryggingalöggjafarinnar sem ekki hafa náð fram að ganga, en ættu vissulega heima í samræmdri löggjöf. Þar af leiðandi vil ég endurtaka það, að ég vonast til að einmitt þessi þáltill. verði gott vegarnesti í þá vinnu sem þegar er hafin og ég vona að árangur af sjái dagsins ljós á því þingi sem nú situr.