26.03.1979
Efri deild: 72. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3560 í B-deild Alþingistíðinda. (2769)

208. mál, fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég hafði í raun ekki sérstaklega hugsað mér að taka til máls við þessa umr. um þetta mál þar sem ég á sæti í þeirri n. þar sem fjallað verður um málið. Um leið og ég þakka hv. 5. þm. Vestf. fyrir mjög glögga og greinagóða framsöguræðu og þeim hv. þm., sem til máls hafa tekið, einnig fyrir ábendingar þeirra, vil ég samt gjarnan að það komi fram nú þegar við þessa umr. hver forsendan var fyrir fylgi fjölmargra þm. við lögin eins og þau nú eru. Það kemur fram í Alþingistíðindum frá þeim tíma, í fyrirvörum við atkvgr., að þm. almennt ætluðust til að þessi lög yrðu túlkuð þröngt, heimildin til fóstureyðingar af félagslegum ástæðum yrði túlkuð þröngt. Ég óttast hins vegar að framkvæmdin hafi orðið rýmri eða enn frjálsari en þm. raunverulega ætluðust til. Ég var þeirra skoðunar sjálf, og mér er kunnugt um að margir aðrir þm. voru einnig þeirrar skoðunar, að sú heimild, sem nú er í 9. gr. laga um fóstureyðingar, hafi í raun og veru ekki þá orðið miklu rýmri en hún var í gömlu lögunum. Gömlu lögin voru samkv. orðanna hljóðan allmjög frjálsleg. Framkvæmdin var aftur á móti mjög örðug og ekki frjálsleg.

Ég minnist þess, að forsendan fyrir fylgi margra þm. við þessa 9. gr., þann part sem fjallar um félagslegar ástæður, byggðist á því að tekið var fram að heimildin væri vegna óviðráðanlegra félagslegra ástæðna. Hvorki ég né margir aðrir þm. voru þeirrar skoðunar að nú á dögum væru fjárhagsástæðurnar óviðráðanlegar.

Ég held að hinar óviðráðanlegu félagslegu ástæður séu í ýmsum tilfellum einmitt ekki einvörðungu fjárhagslegar. Hins vegar hef ég ekki óyggjandi upplýsingar um þetta. Væri mjög gott ef n. gæti fengið glöggar upplýsingar um hvort þessi er raunin. Mig grunar að það sé misskilningur, sem ég raunar varð vör við að fram kom í hinni ágætu ræðu flm. frv., að ástæðan sé í mjög mörgum tilfellum fjárhagsleg örbirgð. Ég held, því miður, að það séu ýmsar aðrar ástæður sem þarna koma til, og ég segi: því miður, vegna þess að mér finnst fóstureyðingar hafa orðið tíðari en ég hélt þegar við samþ. þessi lög að þær yrðu.

Mér virðist skorta upplýsingar um það fyrir n., sem um þetta fjallar, hve stór hluti af öllum fóstureyðingum, sem framkvæmdar eru, er einvörðungu af félagslegum ástæðum. Það þyrftum við að vita til að átta okkur á hvort einhverju þyrfti að breyta, hvort þrengja þyrfti þá heimild sem þarna er fyrir hendi. Við þyrftum einnig að vita hvort nægilega tryggilega er frá því gengið í framkvæmd að fyrir liggi skrifleg og rökstudd grg. tveggja lækna eða læknis og félagsráðgjafa, sé eingöngu um félagslegar ástæður að ræða, eins og sagt er í 11. gr. frv.

Ég vil ekki halda því fram að þessi grein laganna sé ekki nægilega vel framkvæmd. Hins vegar þurfum við að hafa um það upplýsingar, hversu hart er gengið eftir að þetta ákvæði laganna sé framkvæmt eins og til var ætlast þegar lögin voru sett.

Ég lít ekki svo á að lögin, sem nú gilda í landinu, heimili frjálsar fóstureyðingar. Ég lít svo á að ákvæðið í 11. gr. laganna, ákvæðið í 9. gr. laganna og svo ákvæðið í 12. gr. laganna, sem fjallar um skyldu til að fræða konuna um þá áhættu sem samfara sé aðgerðinni, — allar þessar lagagreinar reisi skorður við því að fóstureyðingar séu algjörlega hömlulausar. Hins vegar verður það að liggja ljóst fyrir, að skilyrði, sem sett eru til þess að reisa skorður við hömlulausum fóstureyðingum, séu tryggilega uppfyllt. Það er líka réttur konunnar og réttur barnsins að þessi skilyrði séu uppfyllt. Þegar menn ræða þau mannréttindasjónarmið sem þarna liggja til grundvallar, þá þarf líka að vera ljóst að það eru ekki einungis mannréttindi konunnar að losna við þunga sem henni finnst í bili vera óvelkominn. Það eru líka mikilsverð mannréttindi að konan fái vitneskju um þá áhættu, sem slíkri aðgerð fylgir, og hún fái þá að njóta þeirra mannréttinda að fæða barn sitt í heiminn. Viðhorf hennar breytast oft á meðgöngutímanum og eftir að barnið er fætt. Og það er ekki einungis um að ræða réttindi konunnar. Það er líka um að ræða réttindi föðurins og réttindi barnsins sjálfs. Þess vegna kann ég því ekki vel þegar rætt er um þessi lög svo sem verið sé að fjalla um málefni er einvörðungu varði rétt konunnar. Ég held að það sé einfaldlega misskilningur að svo sé. Þarna er ekki einn aðili, heldur þrír sem koma til greina: móðirin, faðirinn og hið ófædda barn.

Eins og hv. flm. málsins heyrir, þá er ég ekki algjörlega sannfærð um að það sé rétt að anga svo langt í breytingu laganna og hann leggur til. Ég held hins vegar, að að fengnum nánari upplýsingum geti það vel komið til greina að við verðum að grípa til þess að þrengja eitthvað þá heimild sem lögfest var á sínum tíma.

Fleira hafði ég ekki séð ástæðu til að láta sérstaklega koma fram á þessu stigi, en vil að við athugum þetta mál mjög vandlega í n. með þau sjónarmið í huga sem fram hafa komið í umr.