01.11.1978
Neðri deild: 10. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í B-deild Alþingistíðinda. (277)

53. mál, verðjöfnunargjald af sauðfjárafurðum

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég tek undir það með hv. síðasta ræðumanni, að það er eðlilegt að fengið verði svar við þeim spurningum sem hann bar hér fram. Hv. þm. tjáði okkur að hann ætti ekki aðgang að upplýsingaöflun með sama hætti og flestir aðrir þm., þ.e.a.s. gegnum nefndakerfi þingsins. Ég er alveg sannfærður um að þm. Alþfl. mundu fúslega greiða fyrir hv. 1. þm. Reykv. í þessu skyni. Ef hann hefur áhuga á að fá upplýsingar í gegnum nefndakerfi þingsins, þá er ég sannfærður um, að þm. Alþfl. eru fúsir til þess að greiða þar fyrir honum, og hef ekki trú á öðru en t.d. fulltrúi Alþfl. í þeirri nefnd, sem hér er um að ræða, hv. 2. landsk. þm., muni leita eftir svörum t.d. við þessum fsp. frá hv. 1. þm. Reykv. og fleiri áhugamálefnum hans ef hann óskar eftir því.

Ég ætla ekki að fara ýkjamörgum orðum um það frv. sem hér er til umr. Ástæðan fyrir því, að ég kvaddi mér hljóðs, voru orð hæstv. landbrh. um landbúnaðarmál almennt. Ég tek það fram, að í stjórnarsáttmálanum er beinlínis sagt að stefnan í landbúnaðarmálunum verði tekin til endurskoðunar og m.a. í þá átt að eðlilegra markaðssjónarmiða gæti í meira mæli en verið hefur. Ég vænti að sjálfsögðu góðs af slíkri endurskoðun, því að við höfum lengi haft áhuga á því, Alþfl.-menn, að slík endurskoðun fari fram.

Um þær hugmyndir, sem hæstv. ráðh. lýsti hér úr ræðustól, vil ég aðeins segja það, að þær eru að sjálfsögðu allrar athygli verðar og ber að skoða þær gaumgæfilega, og ekki skal standa á okkur Alþfl.-mönnum að athuga þær vel. Með tilliti til þeirra upplýsinga, sem fram komu hjá hæstv. landbrh. um þau efni, takmarkaðar að vísu, héðan úr ræðustól áðan, skiptir þó að sjálfsögðu talsvert miklu máli hvort t.d. sá kjarnfóðurskattur, sem hæstv. ráðh. ræddi um, eigi að reiknast inn í búvöruverð til hækkunar eða ekki. Ef um er að ræða skatt sem á að verka til hækkunar á búvöruverði, þá er að sjálfsögðu um að ræða skattlagningu á neytendur búvara. Þá er um það að ræða, að verið er að leggja byrðar af — við skulum segja: umframframleiðslu á landbúnaðarafurðum á herðar neytenda í auknum mæli frá því sem nú er. Auðvitað ber að athuga allt slíkt mjög gaumgæfilega áður en frá því er gengið. Það verður sjálfsagt gert, og ég vænti þess, að hæstv. landbrh. muni greiða fyrir að allar slíkar upplýsingar fáist.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það, við höfum gert það áður. Alþfl.-menn, úr ræðustól í þessari hv. deild og raunar í hv. Ed. líka, að við teljum að sú landbúnaðarstefna, sem fylgt hefur verið á Íslandi undanfarna áratugi, hafi orðið bæði bændum í landinu, neytendum og ríkissjóði ákaflega dýr og til mikilla óheilla. Ég flutti í fyrravetur frv. til l. um breyt. á lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins o.fl. þar sem lagt var til að stiga fyrstu skrefin í átt að því sem ég tel eðlilegri skipun á verðábyrgð vegna útfluttra landbúnaðarafurða. Með þeim ákvæðum, sem sett voru í lög um þessi efni á sínum tíma, var verðábyrgðinni þannig hagað, eins og þm. er kunnugt, að áætlað er heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar í landinu, þ.e.a.s. allra hinna hefðbundnu búgreina og hliðarbúgreina enn fremur, svo sem tekna af hlunnindum, tekna af setadrápi, tekna af dúntöku, tekna af laxveiðum o.s.frv., o.s.frv. Þessi framleiðsluverðmæti allra þessara aðalbúgreina og hliðarbúgreina eru síðan lögð saman, tekin af þeim 10% upphæð og þessi 10% eru það sem verðábyrgðin vegna útflutningsframleiðslunnar á að nema. Menn vita að það eru fyrst og fremst afurðir tveggja búgreina sem fara til útflutnings, þ.e.a.s. afurðir sauðfjárræktar og afurðir nautgriparæktar, en verðmæti annarra búgreina og hliðarbúgreina styðja að bótum á útflutning þessara tveggja búgreina einna. Aðeins þessi þáttur í landbúnaðarstefnunni og framkvæmd hennar hefur að mínu viti beinlínis stuðlað að mikilli umframframleiðslu landbúnaðarafurða í landinu. Til dæmis að taka, svo að eitt örlítið dæmi sé nefnt, hafa útflutningsbæturnar í jafnvirðiskrónum hækkað frá árinu 1963–64 til ársins 1976–77 um 71.8%. Það eru sem sé 71.8% fleiri jafnvirðiskrónur, gullkrónur, sem fara í útflutningsuppbætur á árinu 197677, heldur en við fáum til þeirra hluta á verðlagsárinu 1963–64. Þannig hefur þetta kerfi beinlínis stuðlað að offramleiðslu og kallað á sífellt aukin framlög úr ríkissjóði til þess að standa undir kostnaði við útfluttar landbúnaðarafurðir. Á sama árabili, á árunum 1963–64 til verðlagsársins 1977–78, þetta eru alls 15 ár, hefur 7 sinnum — hvorki meira né minna en 7 sinnum þurft að borga hámarksverðábyrgð ríkissjóðs vegna útfluttra landbúnaðarafurða. Tvisvar sinnum á þessu tímabili hafa útflutningsuppbætur úr ríkissjóði vegna útfluttra landbúnaðarafurða numið meiru en lög gera ráð fyrir, og þrisvar sinnum til viðbótar hafa útflutningsuppbætur greiddar úr ríkissjóði numið meiru en 9% af samanlögðu heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslu.

Þá hef ég einnig upplýsingar um það, sem eru talsvert athyglis- og umhugsunarverðar, að ef ætti að mæta útflutningsbótaþörfinni fyrir verðlagsárið 1977–78 þyrfti að fara með útflutningsbæturnar upp í 13.8% af samanlögðu heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar, eða 3.8% fram yfir lögleyfð mörk. Útflutningsuppbæturnar, ef ætti að bæta útflutninginn allan fyrir verðlagsárið 1977–78, þyrftu að nema 4956 millj. kr. Það, sem alvarlegast er við þróun þessa árs, er þó að næstu ár á undan var útflutningurinn, umframframleiðsla miðað við neyslu innanlands, fyrst og fremst vegna sauðfjárafurða, en á árinu 1977–78 verður gríðarlegt stökk í umframframleiðslu mjólkurafurða, svo að frá verðlagsárinu 1976–77 til verðlagsársins 1977–78 þyrftu uppbætur á útfluttar nautgripaafurðir, þ.e.a.s. smjör og osta, að hækka úr 550 millj. kr. í hvorki meira né minna en 1870 millj. kr. eða rösklega að þrefaldast. Á sama tíma mundu uppbætur vegna útfluttra sauðfjárafurða hækka úr 2101 millj. kr. í 3086 millj. kr. Þessi þróun er mjög alvarleg, ekki síst sökum þess, að rannsóknir hafa verið gerðar á hagkvæmni útflutnings á ostum og smjöri, eins og hæstv. landbrh. var að lýsa hér áðan. Þær rannsóknir hafa leitt í ljós, að til þess að framleiða hvert eitt kg af smjöri þurfum við Íslendingar að eyða meiri gjaldeyri til fóðurbætiskaupa en við fáum fyrir að flytja út þetta sama eina kg af smjöri. Við þurfum sem sé að nota meiri gjaldeyri til þess að framleiða eitt kg af smjöri heldur en við fáum fyrir að selja þetta eina kg af smjöri á erlendan markað. Og þá fáum við að sjálfsögðu ekkert upp í innlendan kostnað. Það hefur ekki reynst unnt að gera sams konar athuganir á hagkvæmni útflutnings á sauðfjárafurðum og hægt hefur verið að gera varðandi smjör og osta. En sú þróun, sem orðið hefur á milli áranna 1976–77 og 1977–78, þar sem umframframleiðslan á mjólkurafurðum hefur vaxið svona gríðarlega, hlýtur að gera okkur bilt við og valda okkur miklum áhyggjum.

Ég ætla ekki að orðlengja þetta frekar, en aðeins að benda á það sem hæstv. landbrh. sagði áðan, að fjárþörf ríkissjóðs til þess að mæta tapi á útflutningi af offramleiðslu landbúnaðarafurða er á næsta ári, árið 1979, 5.5 milljarðar kr., mun hærri upphæð en t.d. nemur álögðu sjúkratryggingargjaldi á alla einstaklinga á Íslandi. Þegar þessi þörf er svona mikil, á sama tíma og verið er með öðrum ráðstöfunum að auka innanlandsneyslu á landbúnaðarafurðum um líklegast 16% þá sjáum við hvar þetta endar ef svo heldur fram sem horfir.

Vitur maður, maður kunnugur þessu máli, hefur sagt mér, að líklegast sé að í haust hafi verið slátrað 1 millj. dilka, þar af sé hægt að vænta þess, að innanlandsneyslan geti orðið 600 þús. dilkskrokka. Þá bætast 400 þús. dilkskrokkar við þær birgðir af dilkakjöti sem til er í landinu og þjóðin getur með engu móti komist yfir að borða. Á sama tíma og fé, sem varið er beint og óbeint í þessu skyni og m.a. verkar þannig, að auka neysluna innanlands mjög verulega, hækka útflutningsuppbætur um 80% milli ára, en það nægir ekki lengur og langt frá því til að standa undir offramleiðslu landbúnaðarvara.

Það eru mörg ár síðan við Alþfl.-menn vöruðum við þessu ástandi. Við höfðum ekki í því sambandi bara áhyggjur af fjárhagsafkomu ríkissjóðs eða þeim byrðum, sem skattborgarar þyrftu að taka á sig í þessu sambandi, eða þeim byrðum, sem neytendur þyrftu að axla, heldur höfðum við einnig áhyggjur af því, hvað mundi gerast hjá bændastéttinni þegar búið væri að leiða bændur út í slíka offramleiðslu með þeirri offramleiðslustefnu sem fylgt hefur verið á undanförnum árum af stjórnvöldum. Nú vita það allir, þegar við horfumst í augu við þessar staðreyndir, að ef aðeins væri miðað í þessu sambandi við þá aðstoð sem lög leyfa og verðlag á landbúnaðarafurðum innanlands væri á næstu árum svipað og það hefur verið á árunum áður, þá mundi blasa við auðn hjá íslenskri bændastétt, þá mundi hver bóndi af öðrum flosna upp verða hrakinn frá búi sínu eignalaus og tekjulaus vegna þeirrar stefnu sem fylgt hefur verið á undanförnum árum í þessum málum. Þetta ástand blasir nú við, og afleiðingarnar eru mun alvarlegri fyrir bændur en þær þó eru fyrir neytendur, ríkissjóð og skattborgara.

Það er enginn áhugi hjá okkur Alþfl.-mönnum að ganga af bændastéttinni dauðri, þó að við höfum oft verið bornir slíkum sökum. Það er ekki jafnauðvelt núna að snúa við til réttrar áttar í þessum málum og það var fyrir 5 árum eða 10 árum, ef ráðamenn þjóðarinnar þá hefðu fengist til að hlusta á sjónarmið okkar Alþfl.manna og breyta eftir ráðum okkar. En við teljum að núna sé það orðið svo augljóst, hvert þessi ranga stefna hefur leitt okkur, að allir stjórnmálaflokkar þjóðarinnar hljóti að skilja sinn vitjunartíma í þessum efnum og vilja taka höndum saman um að forða ekki síst bændastéttinni sjálfri frá þeim afleiðingum sem hin ranga og hættulega stefna í landbúnaðarmálum hefur fært yfir hana og þjóðina.