01.11.1978
Neðri deild: 10. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í B-deild Alþingistíðinda. (278)
53. mál, verðjöfnunargjald af sauðfjárafurðum
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ríkisstj. fyrir þetta frv. Það er um sjálfsagða og nauðsynlega leiðréttingu á máli sem rak á fjörur í fyrravor. Ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar lagði aldrei þetta verðjöfnunargjald á, og það er rétt að hafa það í huga, það var framkvæmdanefnd Framleiðsluráðs landbúnaðarins sem gerði það upp á sitt eindæmi. Hún var svartsýn, hún var að vísu raunsæ, en hún gerði þetta án samráðs við þáv. hæstv. landbrh. Ég hefði í sporum framkvæmdaráðsmanna reynt að fara aðra leið. Ég hefði reynt að knýja þáv. landbrh. og alla hæstv. ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar til þess að koma þar fram með úrbætur sem dugað hefðu. Ég geri ráð fyrir að það hefði tekist. Ég geri ráð fyrir að framkvæmdanefnd Framleiðsluráðs hefði tekist að fá leiðréttingu mála sinna og fá ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar til þess að beita sér fyrir þeim leiðréttingum sem nauðsynlegar voru. En mestu máli skiptir að núv. ríkisstj. hefur tekið af skarið með þetta eins og ég sagði áðan, og ég þakka henni fyrir það. Þetta var einn af þeim köflum stjórnarsamnings sem ég lagði mjög mikið upp úr og gerði mér fýsilegra að styðja þessa ríkisstj.
Ég sagði áðan að þetta væri ákaflega mikið réttlætismál, að endurgreiða þetta fé, vegna þess að þetta er eign bænda. Þeir eiga það siðferðilega, því að það var tekið af þeim með þeim hætti, að það var komið aftan að þeim. Ég vil ekki neita því og skal raunar manna fúsastur játa að þróunin er að ýmsu leyti ískyggileg og henni þarf að breyta. En það þarf að gefa mönnum aðlögunartíma til þess að breyta háttum sínum. Það er ekki nóg að verðfella vöruna þegar búið er að framleiða hana. Það á að minnka framleiðsluna, en ekki gera hana að engu, þegar búið er að framleiða hana. Það er mergurinn málsins.
Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson flutti hér ræðu sem var reyndar í meginatriðum sama ræðan og hann flutti hér í fyrravor við langar umr. um landbúnaðarmál. Mér duttu nú í hug þessi vísuorð skáldsins: „og hlýddum á ræðu frá í fyrravor, sem flutt var eins og þá í minning hans“. Ég nenni nú ekki og ætla líka af góðvild minni við hv. þdm. að hlífa þeim við því að fara að lesa ræðurnar mínar eða flytja þær sömu sem ég flutti þá, og ég vona að aðrir þdm. taki mig til fyrirmyndar í því efni. En það er nógur tími fyrir okkur stuðningsmenn ríkisstj. til þess að ræða landbúnaðarmál, og ég er ekki að skorast undan því að eiga orðastað við hv. þm. Sighvat Björgvinsson út af þeim. Við erum sammála um það, að þróunin í framleiðslumálum landbúnaðarins er varasöm og ég treysti því, að hv. þm., sem er eins og ég einlægur stuðningsmaður núv. ríkisstj., sé fús að taka höndum saman við mig og aðra þm. um skynsamlegar úrbætur. Og ég fagna því, sem hann reyndar hefði ekki þurft að taka fram í ræðu sinni því að ég vissi það sjálfur, að hann vill ekki ganga af bændum dauðum.
Hvað varðar aths. sem hv. þm. Pálmi Jónsson gerði um þær álögur sem ríkisstj. hefur lagt á bændastéttina með skatti nú í haust, þá vil ég ekki hafa bændur sér á báti í þessu máli. Þetta nær til allra smáatvinnurekenda, en þeir skattseðlar smáatvinnurekenda voru nú með nokkuð öðrum hætti en ég hafði hugsað mér að þeir yrðu. Ég veit ósköp vel hvað ég samþykkti við undirbúning að málefnasamningi ríkisstj. Ég óttaðist að vísu nokkuð þá hugmynd Alþb. að fara að leggja sérstaka skatta á fyrirtæki, vegna þess að fyrirtæki smáatvinnurekenda eru ekki nákvæmlega skilin frá fjárhag þeirra, og að ætla sér að fara að elta uppi með sérstökum aðgerðum smáatvinnurekendur í landinu held ég að sé ekki farsæl stefna, enda var það samkv. orðanna hljóðan í okkar samkomulagi raunar ekki gert nákvæmlega á þann hátt sem raunin hefur orðið. Útkoman hefur sem sagt orðið ofurlítið önnur. Ráðuneytismenn eða skattayfirvöld hafa fært þetta út í lífið með öðrum hætti en ég gerði ráð fyrir að þeir mundu gera. Þessu er einfalt að breyta. Það er hægt að gera það í n. hér í hv. deild. Samstöðu þarf að ná um það og málinu er enn hægt að kippa í lag, og ég treysti því, að hæstv. ráðh. beiti sér fyrir að það verði gert.
Hæstv. landbrh. greindi frá áliti 7 manna nefndar. Það er að vísu ekki til umr. á þessum fundi og ég mun því ekki orðlengja það. Ég er sumpart sammála þeim ályktunum, sem þar eru dregnar, og þeim till., sem þar eru gerðar. Einstök atriði er ég ekki alveg búinn að fella mig við, og ég er ekki alveg viss um að sjálfsagt sé að frv. verði nákvæmlega í þeirri mynd, sem 7 manna nefnd gerði ráð fyrir að það yrði.
Ég vil endurtaka þakklæti mitt til landbrh. fyrir rösklega framgöngu hans í þessu máli, þakklæti mitt til ríkisstj. allrar fyrir að þetta frv. var lagt fram, og vona að það eigi greiðan gang hér í gegnum hv. deild.