26.03.1979
Neðri deild: 67. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3588 í B-deild Alþingistíðinda. (2803)

347. mál, fæðingarorlof

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Varðandi þá fsp., sem hér liggur fyrir, um fæðingarorlof, er orðið brýnt að leysa það mál. En það er engu síður ljóst að Atvinnuleysistryggingasjóður, sem staðið hefur undir greiðslum fæðingarorlofs, mun ekki geta tekið að óbreyttu við því álagi sem því fylgir að greiða fæðingarorlof, ef hann á í framtíðinni að geta sinnt því hlutverki sem honum var upphaflega ætlað. Hefur þetta fyrirkomulag fæðingarorlofsgreiðslna verulega dregið úr að hann geti risið undir því verkefni sem honum í reynd var ætlað áður en fæðingarorlofsgreiðslur voru fluttar yfir á hann.

Í ljós hefur komið að greiðslur Átvinnuleysistryggingasjóðs vegna fæðingarorlofs eru rúmur helmingur af greiðslum sjóðsins, eða meira en sem svarar öllum greiðslum vegna atvinnuleysisbóta og kauptryggingargreiðslum. Yrði því um mikið vandamál að ræða ef verulega bryddaði á atvinnuleysi hér hvað varðar greiðslugetu Atvinnuleysistryggingasjóðs. Brýna nauðsyn ber því til að leita annarra leiða í þessu efni og hlýtur það að verða eitt af veigameiri verkefnum þeirrar nefndar, sem skipuð hefur verið til að endurskoða almannatryggingakerfið, að finna leið til þess að létta þessu álagi af Atvinnuleysistryggingasjóði með breytingum á greiðslufyrirkomulagi vegna fæðingarorlofs til þess að Atvinnuleysistryggingasjóður geti staðið undir því hlutverki sem honum var upphaflega ætlað.

Jafnframt verður að leita réttlátrar leiðar til að allar fjölskyldur njóti sama réttar í þessu máli, því engum getur blandast hugur um að barnmargar fjölskyldur, þar sem ekki nema annað foreldra getur komið því við að vinna úti, þurfa ekki síður — og kannske oft og tíðum frekar — á slíkum greiðslum að halda en margar þær fjölskyldur þar sem báðir foreldrar vinna úti. Hér er því um tvíþætt vandamál að ræða sem verður að leysa, bæði að því er snýr að Atvinnuleysistryggingasjóði og eins þeim foreldrum sem eiga mörg börn og njóta ekki þess réttar vegna þess að konan er ekki á vinnumarkaðnum. Slíkar fjölskyldur eru oft í mikilli og brýnni þörf fyrir þá hjálp sem fæðingarorlof veitir. Réttur þeirra gleymist of oft og það verður að leiðrétta. Því vona ég að bæði þessi atriði verði einnig vandlega skoðuð og reynt að finna viðunandi úrlausn við endurskoðun á almannatryggingakerfinu.