26.03.1979
Neðri deild: 67. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3594 í B-deild Alþingistíðinda. (2811)

Umræður utan dagskrár

Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Eins og kom fram hjá fyrirspyrjendum hefur verið mótuð stefna af hálfu sjútvrn. um þorskveiðar á komandi ári. Sú stefna er auðvitað sett fram með því hugarfari að henni verði fylgt fram, en þó þannig, að hún komi til endurskoðunar með hliðsjón af hugsanlegum breytingum á ytri aðstæðum eftir því sem á árið liður og eftir því hvernig miðar að ná því marki að heildarþorskaflinn á árinu verði á bilinu 280–290 þús.

Að því er varðar fsp. hv. þm Árna Gunnarssonar tel ég að hún varði hinar ytri aðstæður, sem ég hef gert fyrirvara um, og það yrði að sjálfsögðu lítið á það.

Hv. þm. Páll Pétursson gerði sérstaklega að umræðuefni þorskveiðar eða netaveiðar loðnubátanna, og það er þá best að afgreiða það mál fyrst. Á netavertíðinni 1978 voru netaveiðar í fyrsta skipti gerðar leyfisbundnar. Jafnframt var þá stigið fyrsta skrefið í þá átt að takmarka netaveiðar loðnuskipa. Það var gefin út fréttatilkynning þess efnis að ekki fengju netaleyfi loðnuskip yfir 350 lestum, nema þau hefðu áður stundað netaveiðar. Samkv. þessu var á vertíðinni 1978 veitt leyfi 46 skipum, sem loðnuveiðar höfðu stundað um veturinn. Þeim var veitt leyfi til netaveiða. Á yfirstandandi vertíð var sama regla látin gilda og á s. l. vertíð og hefur 35 bátum, sem stunduðu loðnuveiðar, verið veitt netaveiðileyfi.

Við útilokun loðnubáta frá netaveiðum, þ. e. a. s. báta sem hafa stundað netaveiðar eftir loðnuvertíð, þá verður að gæta að ýmsum atriðum. Í fyrsta lagi þarf slík ákvörðun að liggja fyrir með nægum fyrirvara, einkum vegna netakaupa bátanna. Slík ákvörðun þyrfti þess vegna að liggja fyrir strax að hausti, svo menn viti að hverju þeir ganga. Í öðru lagi verða menn að horfa á það, að ekki er hægt að útiloka alla báta sem loðnuveiðar hafa stundað, frá netaveiðum, t. d. minni báta sem stunda veiðar þegar kemur fram á vorið og veiða einkum til frystingar. Þess vegna yrði að miða við einhverja ákveðna stærð eða burðargetu, eins og reyndar var gert í reglunum frá 1978. Ákvörðun um, að þeir bátar, sem stundi loðnuveiðar, fái ekki leyfi til netaveiða, gæti haft þau áhrif að minni bátar færu ekki á loðnuveiðar, heldur vildu þá einungis stunda þorskanetaveiðar. Þetta styður það líka að ákvörðun verði að taka í þessu efni með verulegum fyrirvara ef hún á að hafa almennt gildi.

Jafnframt því sem sú regla hefur verið látin gilda, sem gilti á s. Í. vertíð, er þess að geta, að í stefnumörkun rn. frá því um helgina hefur verið ákveðið að netaveiðar yfirbyggðra báta verði takmarkaðar með þeim hætti að þeir verði eftir 1. apríl n. k. að koma með net sín að landi, er þeir koma inn til löndunar, og jafnframt að þeim sé gert að ísa fisk í kassa ef afli verður ekki dreginn daglega. Þessi regla tekur til 26 af þeim 35 loðnubátum, sem hér um ræðir, og er nokkur takmörkun á svigrúmi þeirra.

Það kom fram í máli ræðumanns áðan, að hann væri samþykkur áliti fiskifræðinganna um nauðsyn þess að byggja upp þorskfiskstofninn, og hann deildi ekki á aflamagnið, ef það dygði til að fleyta þjóðarbúinu. Þetta er einmitt sú forsenda sem við höfum haft í rn. við þá stefnumörkun sem hér um ræðir. Tillögur fiskifræðinga voru um 250 þús. tonn og á s. l. ári veiddum við 317 þús. tonn. En það kom líka fram í áliti fiskifræðinga, að nokkurt svigrúm væri í veiðum á öðrum fisktegundum, t. d. ýsu, ufsa, karfa, skarkola, grálúðu og steinbít, og með hliðsjón af þessu hefur verið metið að það svigrúm, sem þarna væri fyrir hendi, gæti numið um 47 þús. tonna þorskígildi, þ. e. a. s. að skiptaverðmæti upp úr sjó. Á vegum rn. hefur verið kannað hver yrðu hin efnahagslegu áhrif af því að takmarka heildaraflamagn við 250, 280 eða 290 þús. tonn. Það er skemmst frá að segja að sú takmörkun, sem fæli í sér 250 þús. tonn, mundi hafa svo alvarleg áhrif í þjóðarbúinu að menn geta tæpast treyst sér til þess á þessu stigi, hversu æskilegt sem sumir kunna að telja það. Hins vegar er ljóst að það má ná nokkurn veginn sömu forsendum og við er miðað varðandi þjóðhagsáætlun og þjóðhagsspá fyrir næsta ár þó að aflamagn yrði takmarkað við 280–290 þús. tonn.

Til þess að ná þessu marki verður sjálfsagt að beita fjölþættum aðgerðum, og ýmsir valkostir hafa verið til umræðu í þessu sambandi að undanförnu. En þó er þess að geta í því sambandi, að um leið og menn hverfa frá því marki að heildarafli sé 250 þús. tonn eru menn auðvitað að hverfa líka frá því marki að uppbygging hrygningarstofnsins geti verið eins ör og fiskifræðingar gera ráð fyrir í till. sínum. Uppbyggingin mundi því miðast við nálægt 400 þús. tonna hrygningarstofn á árinu 1983 í stað 500 þús. tonna.

Við athugun á valkostum greinir menn gjarnan á og telja að þar sé ekki réttlátlega að farið. Það er nú eins og gengur og eins og kom fram í ræðu áðan, að menn eru reiðubúnir til friðunaraðgerða, menn eru reiðubúnir til þess að hindra smáfiskadráp, menn eru jafnvel reiðubúnir til þess að binda flotann. En menn verða að gæta að því, að friðunaraðgerðir og bann við smáfiskadrápi nær ekki því markmiði í sjálfu sér að heildaraflamagnið sé bundið eða nálgist eitthvert tiltekið mark. Þar þarf fleira til að koma.

Í sambandi við þá umr., sem hér hefur farið fram, verða menn að hafa í huga að það er meginmarkmið þessara aðgerða að beina veiðum úr þorski og yfir í aðra vannýtta stofna. Hvers vegna taka þá þessar aðgerðir alveg sérstaklega til togaranna? Jú, það er vegna þess að þeir geta fremur en aðrir — og í sumum tilfellum einir — sótt að ráði í þá vannýttu stofna sem nauðsynlegt er að nýta til þess að halda þeirri undirstöðu þjóðarbúsins sem ég gat um áðan, að ná nokkurn veginn því marki sem að er stefnt, bæði að því er takmörkunina á þorskveiðum varðar og að hinu leytinu að afkomu þjóðarbúsins sé ekki stefnt í voða á þessu ári og að menn stefni nokkurn veginn að þeim þjóðartekjum og því skiptaverðmæti sem hefur verið lagt til grundvallar áætlunum fyrir næsta ár. En menn verða líka að gæta að því í sambandi við þessar takmarkanir, að ekki er verið að stöðva togarana. Það er verið að beina þeim á tilteknum tímum í aðra stofna. Það er verið að beina þeim frá þorskveiðum. Það er gert ráð fyrir að þeir sæki í aðra stofna á tilteknum tímum. Það er ljóst að með þeim aðgerðum, sem hér er lagt til og ákveðið að farið verði eftir, verða útgerðaraðilar að skipuleggja veiðarnar að verulegu leyti sjálfir. Það getur vel hugsast, að einhvers staðar verði að taka sumarfrí í þessum efnum, en þeir ættu líka að geta miðlað og jafnað sín í milli, sbr. till. sem hefur komið fram í þinginu frá hv. þm. Lúðvík Jósepssyni o. fl., og það ættu útgerðaraðilarnir einkanlega að geta vegna þess að takmarkanirnar eru að verulegu leyti að sumarlagi:

Fleiri rök, sem styðja takmarkanir að sumarlagi, eru t. d. þau, að á þeim tíma hafa aflatoppar gjarnan verið hvað mestir og þess vegna hefur afli ekki nýst sem skyldi. Þess vegna er sérstök ástæða til þess að binda sig við sumarið að svo miklu leyti sem mögulegt er í þessum efnum. Önnur ástæða er auðvitað sú, að þeir vannýttu fiskstofnar, sem hér um ræðir, verða helst veiddir á þeim tíma. Skerðing togaranna af takmörkunum á þorskveiðiafla ætti a. m. k. að mestu leyti að nást upp með auknum afla úr öðrum botnfisktegundum.

Að því er smærri báta varðar er augljóst, að þeir eiga erfiðara með að rísa undir takmörkunum af þessu tagi. Hagur þeirra stendur tæpt, möguleikar þeirra til sóknar í þá stofna, sem eru vannýttir, eru takmarkaðir og þess vegna er erfiðara við það dæmi að fást, þó ég geti viðurkennt og skuli taka undir það, að til lengri tíma litið hljóti menn að líta á hagkvæmni veiðitækjanna, en þá jafnframt samræmi milli veiða og vinnslu í öllum landshlutum. Þær ákvarðanir, sem hér um ræðir, verða alls ekki teknar þannig að hér hafi verið mótuð fiskveiðistefna endanlega, en þar er mikið verk að vinna.

Til þess að auka gæði fiskafla og reyna að tryggja sem best, að sá þorskur, sem á land berst, sé eins góður og kostur er, hefur jafnframt verið ákveðið að eftirlit með netaveiðum verði aukið bæði á sjó og landi í því skyni að bátar fari að settum reglum um netafjölda og dragi daglega, en leyfissviptingum verði beitt, vegna brota á settum reglum. — Ein slík leyfissvipting átti sér reyndar stað í dag.

Að því er varðar takmörkun á netaveiðum báta, sem stunda loðnuveiðar, hef ég sérstaklega getið um þær aðgerðir sem í gildi eru, en jafnframt tel ég sjálfsagt að athugað verði með hvaða hætti sé unnt að takmarka það nánar og að það miðist þá við burðarþol skipanna og nái til afkastamesta hluta fiskveiðiflotans. Í því skyni að draga úr aflatoppum er gert ráð fyrir að bannað sé að koma með fisk á millidekki nema hann sé ísaður í kassa á fullnægjandi hátt, og enn fremur er til athugunar að endurskoða reglur um útivistartíma skipa með tilliti til þess, hvort ástæða þyki til að setja ákvæði um geymslutíma hráefnis í vinnslustöðvum. Enn fremur verði óheimilt að skip fari aftur til veiða fyrr en öllum afla hefur verið landað úr því. Í því sambandi hafa komið fram hugmyndir um að heimilt verði að stöðva skip í einhverja daga berist mikið hráefni á land, en á því kunna að vera ýmsir annmarkar. Jafnframt þessu verður auðvitað fylgst með vetrarvertíðinni núna. Rn. hefur í huga, að það geti fyllilega komið til greina að stöðva vetrarvertíð á tilteknum degi ef svo þykir horfa.

Að því er togarana varðar að öðru leyti tel ég rétt að geta þess, að það hafa verið ræddir ýmsir valkostir í sambandi við takmörkun á veiði togaranna. Þessir valkostir hafa í rauninni verið til umræðu aftur og aftur á undanförnum árum og ýmsum vettvangi. Það hefur verið talað um kvótakerfi. Það hefur ýmsa augljósa galla. Það hefur verið talað um till. eins og þær sem komu frá Fiskifélagi Íslands um að aðeins þriðjungur af afla yfir sumartímann mætti vera þorskafli. Og það hefur verið talað um útfærslu af þeirri leið með þeim hætti, að ákveðið væri forskot á þessa hlutfallstölu. En engin þessara leiða hefur hlotið stuðning. Í þriðja lagi hefur verið talað um takmarkanir sem væru svipaðar að formi og þær sem giltu á s. l. ári, en mun strangari og beindust einkum að sumarmánuðunum. Það er sú leið sem hefur verið valin.

Ég tel ekki að með þessum aðgerðum sé á nokkurn hátt verið að níðast á neinum. Hitt er hins vegar ljóst, að allar aðgerðir af þessu tagi hljóta að koma að einhverju leyti — misjafnt niður — alveg með sama hætti og hinir ýmsu landshlutar hafa með mismunandi hætti notið þess, hvernig þorskveiðarnar hafa þróast á undanförnum árum. Ég tel að sú samstaða, sem náðist um þessar aðgerðir á vettvangi Landssambands ísl. útvegsmanna, styðji það, að sú leið verði farin sem hér hefur verið ákveðin, og ég tel alls ekki að togaraútgerð verði sett á hausinn með þessum aðgerðum né verið sé að stefna að því að skerða tekjur sjómanna í heild um 20%, þegar það liggur fyrir að möguleikar eiga að vera á því að halda því skiptaverðmæti sem upp úr sjó kemur. Hitt er ljóst, að allar aðgerðir af þessu tagi hafa í för með sér nokkurn tilflutning milli veiðitækja, milli landshluta og milli stöðva. En það verður verkefni þeirra, sem veiðarnar stunda, að skipuleggja þær með sem skynsamlegustum hætti innan þeirra marka sem hér eru sett fram.

Ég trúi því, að almenningur í landinu hafi skilning á að þorskveiðar verði takmarkaðar. Ég trúi því, að það sé skilningur meðal sjómanna og útvegsmanna og þeirra, sem í fiskvinnslu eru, á því, að það verði að grípa til takmarkana af einu eða öðru tagi. Og ég trúi því, að það sé skilningur á því, að með því að fara þá leið, sem hér er gert ráð fyrir, hafi menn verulegt svigrúm til þess að stjórna veiðum sínum sjálfir og menn muni gera það, þannig að það svigrúm, sem menn hafa, nýtist þeim sem best.