27.03.1979
Sameinað þing: 74. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3598 í B-deild Alþingistíðinda. (2817)
Umræður utan dagskrár
Menntmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Hv. 11. landsk. þm., Árni Gunnarsson, vakti máls á samgönguvandamálum á Norðurlandi eystra af völdum hafíss. Ég held að það leyni sér ekki, að mjög alvarlegt ástand er að skapast á Norðurlandi og Norðausturlandi, þar sem nú er ís að leggjast að landinu og á nokkrum stöðum orðinn landfastur.
Hv. þm. spurðist fyrir um það, hvort ekki gæti komið til greina að styrkur yrði veittur til að halda uppi nauðsynlegum fiskflutningum þannig að ekki kæmi til langvarandi atvinnuleysis á þeim stöðum sem verst eru settir, og í máli hans lá það einnig, að gera yrði sérstakar ráðstafanir til snjómoksturs á þessu svæði. Ég held að það geti ekki verið neitt vafamál, að þegar samgöngur stöðvast á sjó verða landflutningar enn mikilvægari, og mér virðist að ekki verði undan því komist að auka snjómokstur þar sem mönnum eru allar bjargir bannaðar á sjó. Vissulega þarf að athuga vandlega hvernig ráðstafanir í þessa átt verða best fjármagnaðar og þ. á. m. hvaðan þeir styrkir áttu að koma sem veittir yrðu til að örva og styðja flutninga til þeirra staða sem svo er komið fyrir. En ég held að það geti ekki verið neitt áhorfsmál að sérstakar ráðstafanir séu óhjákvæmilegar: Hafís hlýtur að flokkast undir náttúrhamfarir — hamfarir sem við megum alltaf eiga von á og höfum að nokkru leyti búið okkur undir. Í því skyni höfum við komið upp sérstöku kerfi: viðlagatryggingu. Það er nú áratugur liðinn síðan vandamál af þessu tagi voru hér á ferðinni og þá hafði ekki verið komið upp því fjárhagskerfi viðlagatrygginga sem nú er, þannig að auðveldara ætti nú að vera að mæta vandanum en þá var.
Það ástand, sem nú hefur skapast, getur staðið stutt, en svo kann að fara að það verði langvarandi. Um þetta getum við ekkert vitað. En allur er varinn góður. Ég minnist þess, að þegar ástandið var verst um miðjan seinasta áratug var talið sjálfsagt og eðlilegt að koma á fót sérstakri þingmannanefnd — nefnd sem skipuð var fulltrúum allra þingflokka — sem ætlað var að gera till. um aðstoð og fyrirgreiðslu við íbúa á þeim svæðum þar sem hafís þá ógnaði afkomu manna. Ég held satt að segja að það hljóti að vera tímabært fyrir okkur að gera eitthvað af þessu tagi, koma á fót þingmannanefnd sem gerir till. til ríkisstj. um þær ráðstafanir sem óhjákvæmilegar og nauðsynlegar eru. Ég minnist þess, að seinasta nefnd sem starfaði hafði ekki lengi starfað þegar í ljós kom að hafís var allur á brott og ekki þörf á neinum ráðstöfunum. Við skulum vissulega vona að svo fari enn. (Gripið fram í.) Já, ekki verði þörf á því að gera miklar ráðstafanir. Ég hygg að þeir, sem voru í seinustu hafísnefnd, séu ekki margir hér á þingi nú. (Gripið fram í: Aðalmennirnir.) En kannske einhverjir. Og það mundi því vera framlag mitt til þessara umr. á þessari stundu, að við ræddum hvort ekki væri rétt að snúa við vandanum að setja nefnd, sem væri skipuð mönnum úr öllum flokkum, og hún áttaði sig fullkomlega á því við hvaða vanda væri þarna að etja og hvaða ráðstafanir væri eðlilegt að gera og hvernig þær yrðu helst fjármagnaðar.