01.11.1978
Neðri deild: 10. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í B-deild Alþingistíðinda. (282)
53. mál, verðjöfnunargjald af sauðfjárafurðum
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Af ummælum hv. 5. þm. Norðurl. e. um fsp. mína til hæstv. landbrh. kom glögglega í ljós, að hv. þm. hefur misskilið fsp. Ég talaði ekki um kostnað bænda við framleiðslu á landbúnaðarafurðum. Ég vil biðja hæstv. forseta um að sjá til þess, því að hæstv. landbrh. er ekki viðstaddur, að fsp. mín berist honum rétt til eyrna. Ég vona að hann hafi alla vega ekki heyrt eins illa og hv. 5. þm. Norðurl. e. virðist hafa gert.
Ég vil endurtaka fsp. til þess að hún fari ekki á milli mála. Ég spurðist fyrir um það, hvort rétt væri að sölulaun útflytjenda væru greidd af kostnaðarverði landbúnaðarvara eða af söluverði. Ef útflytjendur fá umboðslaun af niðurgreiðsluupphæðinni líka, þá tel ég það svo alvarlegt mál að hv. Alþ. þurfi að gera breytingar á því þegar í stað. Það er bændum og þjóðinni fyrir bestu. Vonandi verður hv. þm. Stefán Valgeirsson mér sammála um þetta, því að ég trúi því ekki að hann sem bændahöfðingi reynist meiri talsmaður milliliðanna en bændanna. Það yrði saga til næsta bæjar.