27.03.1979
Sameinað þing: 74. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3603 í B-deild Alþingistíðinda. (2820)

Umræður utan dagskrár

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Það hefði verið mjög æskilegt að geta orðið við tilmælum hæstv. forseta, af því að um er að ræða umr. utan dagskrár, til okkar þm. um að vera stuttorðir og beina frekar formlegum fyrirspurnum. En mér finnst að það hafi orðið æðimikil breyting á umr. þessum utan dagskrár eftir svar hæstv. sjútvrh., sem svaraði ekki eingöngu spurningum hv. 4. þm. Norðurl. v., Páls Péturssonar, heldur fór um fiskveiðistefnuna eða aðgerðir til fiskverndar almennum orðum og flutti allítarlega ræðu, og síðan hafa komið aðrir þm. í kjölfarið. Þó að ég tilheyri stjórnarandstöðu og taki fyrstur til máls af stjórnarandstæðingum eftir að hv. stuðningsflokkar og stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar hafa rætt þessi mál, hlýt ég að eiga sama rétt til þess að ræða ítarlega um þessi efni og þeir sem hafa talað á undan.

Hæstv. sjútvrh. minntist ekki einu orði á að hann óskaði eftir því í fyrri hluta febrúar í vetur að þingflokkarnir tilnefndu fulltrúa í nefnd, sem átti að heita samráðsnefnd með sjútvrh. og rn. um takmörkun veiða á þessu ári eða a. m. k. á þessari vertíð. Það er að sumu leyti eðlilegt að hæstv. sjútvrh. hafi ekki minnst á nefnd þessa, því að samráðið var ekki að sama skapi. Þessi nefnd hélt fyrstafund sinn 16. febr., annar fundur hennar var 23. febr., þriðji fundurinn var 7. mars og þrátt fyrir mjög sæmilegar samgöngur innan Stór-Reykjavíkursvæðisins fékk ég ekki það fundarboð fyrr en fundur var byrjaður. En þá tók nefndin, eða réttara sagt sjútvrn., æðilanga „pásu“, því að síðasti fundur var ekki boðaður fyrr en 22. mars og þar með lauk starfi þessarar nefndar, ef starf skyldi kalla.

Það vantar ekki að það voru reifaðar allmargar hugmyndir og m. a., sem bókað er eftir mér á fundinum 23. febr: er: „Taldi hann þörf á því að gefa þegar út reglugerð um bann á þorskveiðum um páskana.“ En síðan líður febrúarmánuður allur og það er ekki fyrr en 27. mars, sem sagt í dag, að hæstv. sjútvrh. gefur út reglugerð um takmörkun þorskveiða sem nær til 30. sept. á þessu ári. Hann svaraði ekki þeirri fyrirspurn Páls Péturssonar, hvort reglugerð hefði verið gefin út, en það er mér sagt að hafi skeð í dag. Ég spyr í framhaldi af því: Hafa ráðh. í ríkisstj. lagt blessun sína yfir þessa reglugerð? Ég skal sýna fram á hvernig unnið var í þessum efnum þau 4 ár sem ég gegndi starfi sjútvrh. Ég bar allar slíkar reglugerðir undir samráðh. mína í ríkisstj. og þegar um mikilvægar reglugerðir var að ræða fengu menn þær til umfjöllunar í nokkra daga. Sömuleiðis hafði ég samband við þá menn úr þáv. stjórnarandstöðu sem létu sig þessi mál mestu varða, þannig að þeir gætu sagt frá málum í flokkum sínum og gert athugasemdir eða komið með ábendingar, sem við töldum, sem áttum að segja síðasta orðið, að hefði átt að taka tillit til og var oft tekið tillit til þegar þær voru gerðar.

Starf samráðsnefndarinnar endaði á því, að sjútvrh. hélt sér dauðahaldi í ákveðna valkosti, sem voru þeir að stöðva þorskveiðar að verulegu leyti hjá togurum um 5 mánaða skeið. Bæði ég og hv. 1. þm. Austurl., sem báðir höfðu gegnt starfi sjútvrh., lýstum yfir fullri andstöðu okkar við þessa hugmynd, en sögðum að við værum þeirrar skoðunar að taka ætti upp líkar takmarkanir og hefðu verið í gildi á s. l. ári, en værum fúsir til að bæta þar allmiklu við frá því sem verið hefði til þess að ná víðtæku samstarfi. Nú segir hæstv. sjútvrh., að hann hafi náð samstarfi við L. Í. U. Það er nú svo komið málum í landi okkar, að L. Í. Ú. er orðið umsagnaraðili fyrir sjómenn og landverkafólk í fiskiðnaði. Ekki hefði því einhvern tíma verið spáð, að ættjörðin frelsaðist þar. Það get ég sagt hæstv. sjútvrh., að það er engin gleði meðal meðlima L. Í. Ú. yfir þeirri blessun sem samþ. var á sennilega síðasta stjórnarfundi. Hins vegar voru sumir menn hræddir til þess að samþ. þessar till. með því að segja að ekki væri annars úrkosta en samþ. 5 mánaða stöðvun togaranna á þann veg að þeir mættu fiska 600 tonn af þorski á 5 mánaða tímabili. Á þeim grundvelli samþ. sumir þessara manna tillöguna.

Ég spyr: Hvernig stendur á því að hæstv. sjútvrh. mannar sig ekki upp að gefa út reglugerð í ársbyrjun? Hvers vegna bíður hann til dagsins í dag til að gefa þessa reglugerð út, þegar liðnir eru þrír mánuðir af árinu? Er það vegna þess að netaveiðinni fer senn að ljúka? Var verið að bíða eftir því að hún væri svo að segja búin til þess að hægt væri að gefa út reglugerð? Þegar ég tók ákvörðun um að gera netaveiðarnar leyfisskyldar og stöðva um páskana á s. l. ári ætluðu sumir menn að tryllast gersamlega. Þá var það talin svívirðileg árás á menn að stöðva veiðarnar um páskana og talið stórhættulegt að skipa bátum að taka netin upp um páskana. Það voru að vísu ekki sjómennirnir sem svona létu. Það voru nokkrir sérhagsmunaseggir sem létu eins og blöðruselir dag eftir dag. Nú er sennilega orðið fullkomið öryggismál að taka upp net um næstu páska hjá þessum blöðruselum sem þá lét hæst í sér heyra.

Hæstv. ráðh. sagði að togarar gætu farið á aðrar veiðar en þorskveiðar. Telur hann hækkun olíunnar og hækkun útgerðarkostnaðar, sem hefur orðið nú, gera mönnum fýsilegra að fara í aðrar veiðar en þorskveiðar? Á sama tíma liggur ekkert fyrir um að hækka eigi verð á þeim fiskitegundum sem nú eru ekki fullnýttar. Það er kominn 27. mars og ekkert heyrist um það. Er það leiðin til að auka veiðar á þessum tegundum að láta verðlag þeirra standa í stað við síðustu verðákvörðun? Þegar verðið hækkaði um aðeins 1.9% að meðaltali stóð í stað verð á karfa, grálúðu og þeim fisktegundum sem hæstv. sjútvrh. segist vera að rembast við að hækka. Það kemur ekkert frá honum þó þrír mánuðir séu liðnir af árinu.

Hvað er hugsanlegt að gera áfram í þeim áformum hæstv. sjútvrh. samhliða því að skera niður þorskveiðar að skattleggja þorskveiðarnar og sókn í aðra fiskstofna sem eru taldir ofnýttir eða fullnýttir? Er breyting á stefnu ríkisstj. í þeim efnum frá Ólafsfrv., þar er gert ráð fyrir slíkri skattlagningu? Alþfl. hefur talið það heilagt alveg fram á þennan dag að lögfesta hvert orð í þeirri vitleysu allri saman, sem hefur nú verið lögð á borð okkar alþm. Er þetta það sem koma skal? Er þetta til verndar útgerð, sjómönnum, vinnslustöðvum og vinnu fólksins í landi? Það er ekki að ástæðulausu að fólk víðs vegar um landið er orðið uggandi um sinn hag ef þannig á að standa að málum.

Ég ætla ekki að fara í meting á milli einstakra landshluta, það dettur mér ekki í hug að gera, eða að gera lítið úr einhverri annarri útgerð og hefja togaraútgerðina til skýjanna. Það, sem ég lét koma frá mér í þessari nefnd, var að þær aðgerðir, sem gerðar yrðu, samdrátturinn, ættu að koma við alla og eins jafnt og hægt er.

Við skulum taka bátaútgerð hér á Suðvesturtandi. Hún hefur átt mjög í vök að verjast á undanförnum árum. Afkoma hennar hefur verið mjög léleg vegna þess hve aflabrögð hafa verið rýr. En það hefur aldrei verið eiginlega minnst á að á þessu sama tímabili hófust að nýju eftir síldveiðibann síldveiðar sem bátar á þessu svæði fyrst og fremst fengu leyfi til og allt til Austfjarða. Það er ekki heldur minnst á að minni bátarnir á þessu svæði öllu hafa möguleika til humarveiða. Hins vegar er það líka satt og rétt að humarveiðin hefur dregist mjög saman, einkum á s. l. ári. En var ekki ástæða til þess, þegar vitað var um stórfellda breytingu á þorskveiðinetum með tilkomu blýteinsins í netunum, að breyta reglugerðinni um netafjölda? Ég hefði talið að það hefði verið full ástæða til þess, og þó slíkt hafi ekki verið gert í haust hefði mátt gera það a. m. k. áður en netavertíðin byrjaði. Það mátti gjarnan takmarka netafjöldann. Og ég spyr líka: Telur hæstv. sjútvrh. að það sé alveg óhugsandi að aflatoppar geti átt sér stað nema í júlí eða ágúst af því þeir voru þá í fyrra? Það hafa verið aflatoppar núna. Skip, sem ekki hafa komið aflanum til vinnslu á fleiri en einum og fleiri en tveimur stöðum, hafa neyðst til þess að sigla.

Togaraútgerðin býr ekki öll við það sama. Annars vegar eru það togarar sem eru ekki alveg rígbundnir við ákveðna staði að landa afla sínum og sækja eftir þeim fisktegundum, sem ekki eru fullnýttar, til þess að sigla með þær úr landi og selja þær á erlendum mörkuðum. Það er gott út af fyrir sig og nauðsynlegt. Þar fá þeir gífurlega hátt verð að jafnaði, þó það sé mjög misjafnt. Hins vegar er aftur stór hluti togara algerlega bundinn við að landa afla sínum í heimabyggð sinni, þar sem hann er unninn, og það er líka mismunandi eftir landssvæðum og innan landssvæða. Á sumum stöðum er togaraútgerðin eiginlega það sem allt atvinnulíf byggist á. Á öðrum stöðum í öllum landsfjórðungum eru líka til staðir sem byggja allt á bátaútgerð. Þetta er ekki einsýnt eftir landshlutum;

Hæstv. ráðh. sagði að loðnuskipum hefði verið veitt leyfi í fyrra, 46 skipum. Ég skora á hann að senda Alþ. grg. um það, hver nöfn þessi skip bera og hver veiði þeirra 46 skipa hafi verið á s. l. vetri. Ég held það sé dálítið frávik frá þessari tölu, þó ég hafi það ekki alveg í kollinum. Sömuleiðis mætti gjarnan fylgja listi yfir þau 35 skip sem nú hafa fengið netaveiðileyfi.

Ég skal taka undir það, vegna þess að ég skil það mjög vel, að það er ekkert gaman að segja alfarið að neita skuli bátum um leyfi til netaveiða. Hins vegar átti auðvitað að auglýsa eftir netaveiðileyfum með tilskildum fyrirvara og þeir, sem ekki sæktu um veiðileyfi innan þess fyrirvara, kæmu ekki til greina. En við báta, sem fara á loðnu kannske örskamman tíma og fiska sáralítið, er auðvitað ekki alfarið hægt að segja: Þið fáið alls ekki leyfi til þorskveiða í net. — Það verður að setja þar einhver mörk. Ég er sammála hæstv. ráðh. hvað þetta snertir, að slíkt verður auðvitað að meta og vega í einstökum tilfellum. Hins vegar fannst mér ekki koma til greina annað en að setja ákveðin stærðarmörk fyrir þá sem gætu sótt um netaveiðileyfi, því það er töluvert annað að hleypa stórum skipum, sem vel hafa aflað af þeirri fisktegund sem mest veiðist nú af, í stofn eins og þorskinn.

Mér finnst eðlilegt að gera sér grein fyrir því, hver verður samdrátturinn í þorskveiðunum á þessu ári. Ég leyfi mér að fullyrða, og það liggja fyrir tölur um það, að þorskaflinn er fyrstu tvo mánuði ársins 20 þús. lestum meiri en hann var þessa sömu tvo mánuði á árinu 1978, og allt bendir til að þessi munur verði í lok mars orðinn 35 þús. lestir. Ef við tökum meðaltalið af því sem sjútvrh. segist vilja heimila skipum að veiða af þorski á þessu ári og segjum 285 þús. lestir, þegar hann hefur nefnt 280–290 þús. lestir, þá er niðurskurður frá árinu á undan 35 þús. lestir. M. ö. o. eiga þorskveiðar að vera 70 þús. lestum minni á níu mánuðum en á sama tíma í fyrra. Með því að vakna ekki fyrr en í mars er búið að eyða ansi miklum möguleikum og gera enn meiri ójöfnuð á milli fiskiskipa, fiskimanna og landverkafólks en ella hefði þurft að gera.

Hitt er svo annað mál, hverjar skoðanir manna eru á því hvað óhætt sé að veiða mikið af þorski. Sumir trúa á fiskifræðinga, að þær tölur, sem þeir nefna, séu heilagar tölur, eins og kristinn maður trúir á Biblíuna. En svo eru aftur aðrir ekki alveg eins sannfærðir í þeim efnum, draga sínar ályktanir af reynslu fjölmargra manna sem við fiskveiðar hafa fengist árum og áratugum saman. Ég segi fyrir mitt leyti, að ég hef verið ólatur við að ræða við sjómenn, skipstjórnarmenn og aðra um fiskveiðar og fiskveiðimál, hlusta á skoðanir þeirra sem hafa reynslu og hvað þeir telja um þorskstofninn. Vísindamennirnir og vísindin eru góð út af fyrir sig, og ég tel alveg tvímælalaust rétt hjá fiskifræðingum að vera varfærnir í áætlunum sínum í þessum efnum, en ég tel það ekki heilaga skyldu að fara eftir því sem þeir segja. Ég er ekkert hræddur við það þó þorskaflinn verði 300 þús. tonn á þessu ári miðað við þá miklu fiskgengd, sem alls staðar er. Það er verið að drepa þúsund tonn af fiski sem er búið að spá og segja okkur frá í nokkur ár að sé allur útdauður. Þetta hljóta því að vera afturgöngur, allur þessi fiskur sem er verið að veiða. (Gripið fram í: Það er ekki rétt.) Þetta er víst rétt, (Gripið fram í: Nei.) þó að faðir fiskifræðingsins segi annað. (Gripið fram í: Já, þetta er rangt.) Það er líka rétt, að fiskifræðingar sögðu að það mætti veiða 1–11/2 millj. lesta af loðnu, því það væri nóg loðna í sjónum. Aldrei voru veiddar nema 820 þús. lestir, en þá urðu þeir lafhræddir og sögðu að nú mætti ekki fara yfir milljón lestir. Er það kannske ekki rétt?

Ég skil ekki menn sem gera svona mál að trúaratriðum. Hins vegar skilur maður ýmis fjölskylduvandamál sem kunna að koma upp ef menn hafa einhverjar aðrar skoðanir. Ég segi það alveg hiklaust, að sjútvrh. er búinn að missa af strætisvagninum þrátt fyrir þessar reglur. Hann getur ekki haldið sig við þetta, nema þá að stöðva veiðar allt haustið að auki. Og þá spyr ég hann: Hvar er atvinnan þá í þessu landi? Ekki í neinum einum stað eða einum landsfjórðungi frekar en öðrum, heldur um allt land verður geigvænlegur samdráttur og atvinnuleysi.

Við lifum í þjóðfélagi þar sem er mikið orðið af sérfræðingum og allir hafa þeir rétt fyrir sér og þó alveg sérstaklega þegar þá greinir á innan einnar og sömu stofnunar. Ef stjórnmálamenn ættu að fara eftir því, sem hagfræðingar og efnahagsráðunautar segja á hverjum tíma, og eftir því, hvað fiskifræðingar segja og yfirleitt allir sérfræðingar, ráðh. ættu að fara eftir áliti þeirra allra, mundi — (Gripið fram í.) — margt rekast á. Já, sumir eldgosafræðingar hafa spáð gosi dag eftir dag. (Gripið fram í: Það kemur.) Já, það kemur. Já, vonandi kemur það, segir Garðar.

Það er þannig með hin ýmsu vísindi. Menn vita þetta ekki sem ekki er von.

Fiskifræðingar hafa margt gott gert. Þeir hafa látið margt gott af sér leiða. Þeir hafa lagt fram margar góðar tillögur. Það hefur verið farið eftir flestum tillögum fiskifræðinga á liðnum árum, en það hefur ekki verið látið eftir þeim að framkvæma algert atvinnuleysi í landinu. Ég hef ekki séð hagfræðinga, ef stjórnvöld hafa ekki farið eftir till. þeirra, fara í blöð og sjónvarp og leggja undir sig dagskrárnar dag eftir dag. (Gripið fram í:Þeir hafa víst gert það.) Það hafa aðallega verið þínir gömlu kollegar sem hafa lyft þeim upp, Stefán Jónsson. Ef sérfræðingar eiga að segja fyrir öllu í þessu landi þarf enga ríkisstj. Þá þarf ekkert Alþ. Þá látum við sérfræðinga stjórna. En þeir draga úr tekjunum. Þeir segja þetta og hitt: Þá skal minn málaflokkur upp, en svo varðar okkur ekkert um hvar á að afla peninganna til þess að halda starfseminni uppi. — Og menn, sem setjast í ráðherrastóla og trúa algjörlega á sérfræðinga, þó þeir hafi sjálfir haldið lengi á reikningsstokknum, mega sannarlega passa sig þegar líður á vorið.