27.03.1979
Sameinað þing: 74. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3621 í B-deild Alþingistíðinda. (2825)

Umræður utan dagskrár

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Minnugur þeirrar brýningar, sem mér fannst felast í orðum hæstv. forseta þegar hann setti fund í Sþ. í dag, hafði ég ekki hugsað mér að taka til máls í umr. þessum utan dagskrár þegar þær hófust, og ég skal reyna að fara að beiðni hæstv. forseta um að verða stuttorður í máli mínu, þó hins vegar sé vafasamt hvort ég geti orðið gagnorður.

Þegar maður situr jafnlangan tíma og við erum búnir að sitja undir umr. þessum utan dagskrár, þá verð ég að segja að óneitanlega hvarflar að manni stundum, bæði í dag og hefur komið reyndar fyrir áður, þegar menn hafa verið að kveðja sér hljóðs utan dagskrár, að oft sé það gert með tilliti til þess að vekja á sér athygli og fá auglýsingu í fjölmiðlum.

Hv. 11. landsk. þm. kom í stólinn utan dagskrár til að segja okkur frá því, að löng vera hafíssins á slóðum, sem loka fiskimiðum fyrir Þórshafnarbúum og þeim öðrum sem sækja sjó á Þistilfirðinum, gæti haft slæm áhrif á atvinnuástand og afkomu fólksins sem þar býr. Og honum fannst ástæða til þess að spyrja hæstv. sjútvrh. utan dagskrár að því, hvort hann teldi ekki möguleika á því að þörfum þessara fiskimanna yrði sinnt með ívilnun og undanþágum til fiskveiða á þessum miðum síðar í sumar. Ég get ekki að því gert, að þegar ég heyrði þennan hv. frummælanda vera að tala máli sinu utan dagskrár finnst mér að það hefðu verið hæg heimatökin hjá þessum ágæta þm. að grennslast um viðhorf hæstv. sjútvrh. án þess að hefja umr. um þetta mál utan dagskrár.

Ég tók reyndar eftir því, að hv. 5. þm. Norðurl. e., Stefán Valgeirsson, sem oft hefur verið nefndur einn mest áberandi „alfaðirinn“ í stjórnmálum á þingi, sefur auðvitað í þessu máli eins og öðrum aldrei nema með annað augað opið, því auðvitað hefur hann allan tímann frá því að fréttirnar komu af fyrsta íshraflinu þarna fyrir norðan verið í sambandi við hæstv. forsrh. og látið hann athuga þessi mál við hæstv. sjútvrh., og svo hafa skilaboðin náttúrlega gengið þarna á milli.

Það er nú svo, að það hvarflar stundum að manni þegar hv. 5. þm. Norðurl. e. er að túlka afstöðu sína til hinna ýmsu mála á hinu háa Alþingi, því að opinberlega er talað um að stjórnarflokkarnir séu þrír, stuðningsflokkar ríkisstj., hvort hv. 5. þm. Norðurl. e. sé eiginlega ekki fjórði stuðningsflokkurinn, svo sjálfstæður virðist hann vera í skoðunum og öllum aðgerðum.

Mér finnst ég ekki vera að troða neinar illsakir við þá hv. þm. sem ég er að ræða um í sambandi við þetta mál, sem var tekið til umr. utan dagskrár, þó ég bendi á að venjan hefur nú verið sú, a. m. k. þann tíma sem ég hef setið á þingi,.að þegar staðbundin vandamál hefur borið að innan kjördæmisins hefur sú venja verið viðhöfð að haldnir hafa verið fundir allra þm. kjördæmisins til að ræða slík mál. Af minni reynslu í þeim málum held ég að hvað bestur árangur hafi fengist til úrlausnar aðsteðjandi vandamálum hverju sinni hafi sá háttur verið hafður, að þau hafi verið rædd sameiginlega af þm. kjördæmisins. Sú aðferð þeirra hv. þm., sem ég hef verið að gera að umtalsefni, að vekja athygli á sér utan dagskrár, er ástæðan fyrir því að mér finnst einhvern veginn að þarna gæti of mikillar ásóknar í að vekja athygli á sér og láta geta sín í fjölmiðlum, enda er sönnun þess, að áhuginn á að fylgjast með hvaða undirtektir umr. þessar utan dagskrár mundu fá á hinu háa Alþingi, var ekki meiri en svo, að sá, sem fyrst tók þátt í og vakti umr. á þessu máli, hv. 11. landsk. þm., yfirgaf salinn skömmu eftir að hann hafði flutt mál sitt.

Ég vil í sambandi við þessi mál lýsa því yfir, að mér sem öðrum er fullkomlega ljóst að það getur verið mikið alvörumál fyrir íbúa þess svæðis, þar sem hafísinn getur orðið hinn mikli vágestur. En ég vil í því sambandi taka það mjög skýrt fram, að þó ég sé ekki stuðningsmaður núv. ríkisstj. dettur mér ekki sem þm. í hug eitt augnablik að ríkisstj. og ráðh. einnar ríkisstj., hvar í flokki sem hún er og hvaða flokkum hún nýtur stuðnings hjá, séu sér þess ekki meðvitandi á hverjum tíma og hafi ekki vakandi auga á því að í vandamálum eins og þessum verði þjóðfélagið að koma til hjálpar og það verði að finnast úrlausnir á þeim. Ég gangrýni aðeins vinnubrögð eins og þessi, þegar menn eru að koma í ræðustól utan dagskrár til þess að vekja athygli á slíkum málum og auglýsa sjálfa sig sérstaklega. Ég gæti skilið það ef reynt hefði verið til þrautar að reyna að skapa samstöðu aðila, sem málið er skylt og líklegir væru til þess að vinna að slíkum málum, og þeir hefðu brugðist þeirri ósk að veita stuðning og hetja samstarf í málinu.

Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr., aðeins lýsa því yfir, að ég trúi því ekki að þetta mál verði ekki athugað — að ríkisstj. og aðrir aðilar, sem um þetta fjalla, muni ekki reyna að leysa þetta mál á þann hátt sem bestan árangur gefur, hvort heldur stjórnin kýs að hafa þann hátt á að skipa sérstaka nefnd í málið eða ráða úr aðsteðjandi erfiðleikum á annan hátt. Ég vil a. m. k. lýsa því yfir, að ég er reiðubúinn til þess að leggja hverri till., sem jákvæð getur talist til þess að leysa vandræði þessa fólks, það litla lið sem ég get.

Út af þeim löngu og miklu umr., sem hafa farið fram um ákvarðanir í sambandi við fiskveiðitakmarkanir, skal ég ekki hafa mörg orð. Þar munu leggja hönd á plóginn aðilar sem hafa meiri sérþekkingu og reynslu á slíkum málum til að bera en ég. En einhvern veginn er það þó í huga mínum að ekki verði komist hjá því, a. m. k. að því er snertir þessi mál, eins og hv. 3. þm. Norðurl. e., Bragi Sigurjónsson, benti réttilega á í ræðu sinni áðan að því er snertir þessi mál fyrir Norðausturland, að þá þurfi áreiðanlega að taka þessi mál til einhverrar endurskoðunar þegar líður á árið.

Herra forseti. Ég skal svo ekki lengja þessar umr. og lýk því máli mínu.