27.03.1979
Sameinað þing: 74. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3631 í B-deild Alþingistíðinda. (2830)

Umræður utan dagskrár

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Ég kem varla hér upp að þessu sinni til þess að leggja neitt verulega nýtt til málanna, heldur vil ég leyfa mér að gera örstuttar aths. við það sem tveir hv. ræðumenn hafa sagt hér.

Það er í fyrsta lagi vegna ræðu hv. þm. Sighvats Björgvinssonar. Það er auðvitað alveg sjálfsagt mál, að hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, sem er formaður sjútvn. Nd., kveðji sér hljóðs hér í þinginu um sjávarútvegsmál. Hins vegar er það dálítið leiðinlegt þegar maður í þeirri stöðu talar þannig um netaveiðar að það er eins og hann hafi hvergi fengið neina hugmynd um hvernig þær ganga fyrir sig nema úr einni grein í Morgunblaðinu, og er ég þó síst að setja út á þá grein. Það er bara eðlileg frásögn blaðamanns sem fer um borð í veiðiskip og segir sína reynslu. Hins vegar held ég að hv. þm. Sighvatur Björgvinsson hafi misskilið eða ekki skilið það sem var á ferðinni í þessum róðri og einnig það sem hann hafði hér eftir fiskimálastjórna. Hann sagði að fiskimálastjóri hefði alveg rétt fyrir sér, en það var greinilegt að Sighvatur skildi ekki það sem fiskimálastjóri skrifaði.

Ég vil þá aðeins víkja að því fyrra, þar sem hv. þm. vitnaði í greinina í Morgunblaðinu og hneykslast mikið á því að fiskimenn úr Grindavík, minnir mig, hafi plantað niður trossum, eins og hann orðaði það, út af Reykjanesi. Þarna er auðvitað ágætis þorskveiðisvæði fyrir veturinn, margsinnis verið þar góður afli á undanförnum árum einmitt, meira að segja mjög grunnt. En staðreyndin er sú, að á þessu geysilega stóra netaveiðisvæði frá Hornafirði og vestur á Snæfellsnes, gífurlega mikla hafsvæði, þar er ekki trossunum lagt í tvær samhliða lengjur á þessari leið, heldur eru þær settar þar sem helst er von á fiski. Og þó að menn tali nú mikið um að fiskirí sé mikið, þá er staðreyndin sú, að það þýðir ekki mikið að leggja netatrossurnar núna, eins vel og þær eru útbúnar og góð veiðarfæri, hvar sem er. Það þýðir ekkert að leggja þær á gömul hefðbundin mið á góðum botni, sand- eða leirbotni, þar sem mikið fiskaðist þegar ég var að byrja að róa á vertíð. Nú fæst þessi fiskur hvergi nema á hæstu hraunhólunum og versta botninum, á þeim stöðum þar sem hann hafði þó lengi frið því að menn köstuðu ekki veiðartærum sínum á slíkan botn vegna þess hversu illa botninn fór með þau. Þess vegna er það, að þegar margir bátar fara að leggja á einu veiðisvæði, þá er það á mjög litlum blettum, mjög takmörkuðum blettum á hraunsnögunum, og þeir, sem eru búnir að leggja sína trossu þar, hafa helgað sér það svæði eða þann stað væri kannske rétt að segja, því að plássið er oft og tíðum ekki mikið. Það er þess vegna sem þessi mikli fiskimaður hafði sett þarna 4 trossur. Hann ætlar að vera búinn að helgs sér þetta svæði þegar fiskurinn fer að ganga þarna við Reykjanesið. Auðvitað draga þeir netin til þess að sjá hvort þorskurinn er farinn að ganga. Á meðan hann er ekki farinn að gera það í neinum verulegum mæli, þá er kannske afsakanlegt þó að það sé ekki dregið nema annan hvern dag. Hitt er svo annað mál, að þegar mjög langt er á milli staða, þegar bátar leggja kannske 3–4 trossur á þremur svæðum, þá er auðvitað hætta á því að menn dragi ekki daglega eins og menn þurfa yfirleitt að gera, og það að hafa allt of mikil veiðarfæri í sjó getur auðvitað leitt til þess að hráefnið verði ekki nægilega gott. Þetta var ég einmitt að tala um þegar ég tók til máls í fyrra skiptið, að taka þyrfti til verulegrar endurskoðunar í því skyni að bæta hráefnanýtingu allrar netaveiðinnar. En það er alger misskilningur að menn planti þarna niður trossum og fari svo að draga þær þegar fer að vora. Þetta er ósköp eðlilegt og venjulegt, að menn leiti fyrir sér á þessum veiðisvæðum, sem skyndilega geta gefið mikinn afla, og hafi þá þegar helgað sér þá bletti sem líklegastir eru. Að flatarmálinu til eru þessir blettir ekki stórir miðað við svæðið í heild. Við skulum athuga að það er oft þröngt á þingi þar sem fiskjar er von. Það þýðir ekkert að dreifa þessu einhvers staðar þar sem er pláss. Þar er enginn fiskur lengur.

Ég varð svolítið undrandi á þeirri meðferð hv. þm. Sighvats Björgvinssonar þegar hann vitnaði í fiskimálstjóra þegar hann sagði að þetta mál væri ekki bara það að tryggja viðgang þorskstofnsins, heldur kannske ekki síður það að útgerð og fiskverkun á Austurlandi og Suðvesturlandi fengi meiri möguleika á veiðum, og það væri svo, að þetta væri ekki aðeins til að koma þorskstofninum upp, heldur væru þarna, eins og hann orðaði það, líka félagslegar og efnahagslegar ástæður. En hvað eru efnahagslegar ástæður ef ekki það að tryggja að við göngum ekki af þorskstofninum dauðum. Og svo segir hv. þm. að lítill stofn gæti gefið eins mikla útkomu í hrygningu og stór. Auðvitað er það rétt, auðvitað er stærð stofnsins aðeins einn þátturinn. En það gefur auðvitað auga leið, að við jafngóð skilyrði gefur stór stofn meiri möguleika en lítill. En menn skulu hafa það alvarlega í huga, að ef hrygningarstofninn fer niður fyrir ákveðið lágmark, þá geta vond skilyrði í sjónum það árið gersamlega gert það að verkum að ekkert komi út úr hrygningunni. Hins vegar ef stofninn er miklu, miklu stærri, tvisvar, fjórum sinnum stærri, þá hljóta að vera meiri möguleikar, tölfræðilegar a. m. k., fyrir því að útkoman verði betri. En ég er ekki viss um, að þessir þættir vegi alveg hlutfallslega — það veit ég ekkert um. En það gefur auga leið og þarf ekki mikla reikningskúnst til að sjá það að stór hrygningarstofn er okkur alla vega, hvernig sem á er litið, meira öryggi en lítill. Þess vegna er það hreint hneyksli þegar menn segja að sú þorskverndarstefna, sem menn eru farnir að taka upp núna, sé ekki bara verndun, heldur átök milli hagsmunahópa. Það er ekki byrjað að tala um vernd fyrr en Sunnlendingar fóru að grípa í tómt, eins og hv. þm. orðaði það.

Af hverju gripu þessir menn í tómt? Það var vegna þess að hrygningarstofninn var ekki orðinn nema lítið brot af því sem hann var þegar hann var stærstur — lítið brot. Það er háskalegt. Hins vegar tel ég ekki ástæðu til þess að vera að rífast um slíkt. Það er augljóst. Við verðum að gæta hrygningarstofnsins. Það er auðséð að ef enginn fiskur fær að hrygna, þá geta menn ekki heldur drepið hæfilega stóran smáfisk á Vestfjörðum, þriggja eða fjögurra ára gamlan. Hann verður ekki heldur til. Sá, sem aldrei fæðist, verður ekki fjögurra ára.

Hv. þm. Páll Pétursson sagði hér margt skynsamlegt eins og hans er vandi, en þurfti að sjálfsögðu að hnýta svolítið í Þjóðviljann, og það er ekki nema gott að reyna að klekkja á þeim sem ekki geta svarað fyrir sig. En ég vil nú taka upp hanskann fyrir það ágæta blað. Hann var að tala um lygi þessa blaðs o. s. frv. og það væri svona og svona mörg prósent. En það, sem þar var sagt, var haft eftir heimildarmanni sem Þjóðviljinn hafði haft samband við, sem áætlaði þetta svæði svona og svona stórt. Þjóðviljinn skrökvaði þar engu fremur en hann er vanur. Og að loðnuflotarnir hefðu útbúið sig fyrir þetta og hitt og svona, það hefði kannske verið ástæðan til þess að þeir hefðu fengið að veiða, ég skal ekkert vera að tala um það. Hins vegar sagði hann að þeir þarna fyrir norðan, í Húnavatnssýslunni, væru búnir að útbúa sig með frystihús með svona og svona mikil afköst og togara o. s. frv. Við skulum aðeins athuga það, að Íslendingar hafa útbúið sig býsna vel til þess að taka á móti miklum afla. Ég held að það sé ekki ágiskun, það sé nokkurn veginn öruggt að íslenskur fiskiðnaður væri ekki tilbúinn að taka á móti tvöföldu þorskmagni á við það sem veitt var hér í fyrra. Ég þori að fullyrða að það væri hægt að vinna hér með góðu móti hálfa milljón tonna af þorski, afköstin eru slík. Og að miða stefnu okkar og afstöðu við það, hversu mikið við erum búnir að útbúa okkur, það er hættulegt því að þá værum við ekki lengi að ganga af þessum kvikindum dauðum.

Það er varla þess virði að minnast á þá fullyrðingu að loðnubátarnir hafi í margt annað að sækja, það er.alger misskilningur. Þeir hafa ekkert að fara ef þeir fara ekki á net. Þá fara kannske nokkrir þeirra á spærlingsveiðar, sem eru a. m. k. stundum býsna vafasamar. Ef lítið er á þann afla sem kemur upp á sumum spærlingsveiðisvæðunum, þá er hann stundum býsna rauðleitur vegna humars. Í honum er oft talsvert af fiskseiðum, það fer dálítið eftir dýpi og ýmsum öðru, þannig að ég teldi ekki skynsamlegt að vísa mjög mörgum á þann nægtabrunn. En þeir hafa ekki mikið að sækja í kolmunna á þessum árstíma. Menn geta ekki farið og veitt kolmunna bara eftir einhverjum reglugerðum eða tilskipunum eða hugmyndum sem hv. þm. Húnvetninga fá í höfuðið, því að það verður að veiða fiskinn þegar hann er veiðanlegur, þegar hann gefur sig til, en ekki eftir einhverjum fyrir fram úfbúnum kokkabókum af þessu tagi.

Ég sagði það og get sagt það aftur í sambandi við þann fisk sem loðnubátarnir eru að fiska og bátarnir hér við suðurströndina, að þessi fiskur getur auðvitað farið í neytendapakkningar alls ekki síður en sá fiskur sem hinir göfugu þjóðflokkar á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi verka. Svar hv. þm. Páls Péturssonar, lesið upp úr einhverjum skýrslum án þess að skilja þær, tölurnar koma málinu nákvæmlega ekkert við.

Ég var að tala um að þessi fiskur gæti alveg eins farið í neytendapakkningar. En því svarar hv. þm. Páll Pétursson þannig, að nýtingin á þorski, sem fer í frystingu fyrir norðan, sé 40%, en í Reykjavík og á Reykjanesi sé nýtingin á þorski í frystingu 331/3, þ. e. a. s. þriðjungur. Hvað kemur þetta málinu við? (Gripið fram í.) Nei, þessi mismunur er ekki vegna þess. Það eru ýmsar ástæður sem eru til þess að nýting er mismunandi. En ég vil leyfa mér að segja þessum hv. þm. það, að hjá okkur úti í Vestmannaeyjum er nýtingin á fiski, sem fer í frystingu, og framlag þess fisks jafngott og eða betra en hann sagði að væri fyrir norðan, 40% og yfir, þannig að þessi hv. þm. þyrfti að lesa þessar opinberu skýrslur af ofurlitlum meiri skilningi.

Ég undrast það þegar menn eru að reyna að vekja upp úlfúð á milli landshluta, þegar menn tala þannig. Sú aðgerð að leyfa þessum stóru loðnubátum að fara núna á netaveiðar getur auðvitað orkað tvímælis. Það er spurning hvað á að gera í þeim efnum. En að endilega þessi viðbót verði til þess að drepa allan fisk áður en hann hrygnir og þessi afli, sem þessir bátar koma með að landi, fari í salt og skreið frekar en af einhverjum öðrum skipum, það er misskilningur.

Þessi hv. þm. vill láta þorskinn hrygna áður en þessir vondu menn á loðnuskipunum drepa hann. En hvar í ósköpunum heldur þessi hv. þm. að togararnir hafi verið að veiða að undanförnu? Hann hefur auðvitað enga hugmynd um það, hann hefur ekki séð þá. Þeir hafa nefnilega verið fyrir sunnan býsna margir, úti í köntum að hirða þar þorskinn áður en hann gengur upp á grunn, þannig að það var eins og ljós í heimsborg að sjá togaraflotann þar fyrir utan. Hann lætur sig ekki vanta ef fiskurinn gefur sig til, hvort sem hann á eftir að hrygna eða ekki eða kemst aldrei til þess. Ég held að menn eigi ekki að dæma fyrr en þeir vita svolítið um hvað þeir eru að dæma.