27.03.1979
Sameinað þing: 74. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3664 í B-deild Alþingistíðinda. (2845)

222. mál, heilbrigðis- og félagsleg þjónusta fyrir aldraða

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Ég styð þessa þáltill. af heilum hug og tek mjög undir allt, sem í grg. hennar segir, svo og allt sem hv. flm. sagði í framsöguræðu sinni. Satt að segja hef ég verið núna þessa dagana að hleypa af stokkunum starfshóp eða nefnd til að vinna það verk sem þáltill. gerir ráð fyrir, en auðvitað er það mikill styrkur fyrir mig og starfshópinn eða nefndina, að starfið byggist á þál. frá hinu háa Alþingi. Þáltill. er mjög góð. Að mínu mati er hún reyndar svo góð að ég hefði helst viljað nota hana svo til orðrétta í erindisbréf til starfshópsins sem ég gat um. — Ég mæli eindregið með samþykkt þessarar þáltill.