27.03.1979
Sameinað þing: 74. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3666 í B-deild Alþingistíðinda. (2847)

222. mál, heilbrigðis- og félagsleg þjónusta fyrir aldraða

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Það er ljótt að heyra að við skulum fara svona illa með gamla fólkið okkar. Ég er ekki alveg viss um að þessar ljótu lýsingar, sem hafa komið fram eigi við allt landið og séu alveg hárréttar. Ég veit að við eigum í erfiðleikum, sérstaklega í Reykjavík, og það ekki að ástæðulausu. Það er, held ég, ekki bara viljaleysi. Það kemur ýmislegt þar til, t. d. að við lifum lengur en allar aðrar þjóðir í veröldinni. Afleiðingin af því er t. d. sú, að í Reykjavík, hefur 80 ára og eldri fjölgað um ca. 900 manns á síðustu 8–9 árum án þess að íbúum hafi fjölgað. Það er ósköp eðlilegt, þegar svona er, að vandamál skapist.

Ég verð að segja það, að ég held að gert hafi verið allmikið og stórt átak í því að koma til móts við þarfir aldraðra í þessu landi á undanförnum árum. Hitt er svo annað mál og það er alveg rétt, að það má deila um hvort rétt sé að farið. Það er t. d. rétt sem kom fram hjá síðasta ræðumanni, að hér eru „akút — spítalar“ okkar notaðir sem langlegudeildir fyrir aldraða. En þýðir það endilega að illa sé farið með aldraða og skorti þjónustu þó að sú aðferð sé notuð að nota fullkomnustu og bestu spítala landsins til vistar fyrir þá? Ég held að það sé rétt, að 30–40% sjúklinga á Reykjavíkurspítölunum einhvern ákveðinn dag ekki alls fyrir löngu hafi verið 67 ára eða eldri. Þarna er ekki um öldrunardeildir að ræða, heldur spítala sem hafa best menntuðu lækna landsins í sinni þjónustu, og ég held að það sé engin ástæða til þess að ætla að þeir sinni ekki verkefni sínu sæmilega. Fleiri en við gera þetta og kæra sig ekkert um að hafa sérstakar deildir fyrir aldraða. Það er nefnilega svo með gamla fólkið, að það vill ekki endilega láta einangra sig. Það vill gjarnan vera á sjúkradeildum sem eru ætlaðar fyrir almenning.

Síðasti ræðumaður gat nú um að í hans bæjarfélagi væri þetta eiginlega allt í lagi. Ég þekki annað bæjarfélag, sem er næst'stærsta bæjarfélag í landinu, Kópavog. Þar var gerð mjög rækileg könnun fyrir 1–2 árum. Þar var ekki talin þörf á umbótum, þar var þetta talið í besta lagi.

Það hefur líka komið í ljós við könnun, að aldrað fólk tekur lengur þátt í atvinnulífinu hjá okkur en nokkurs staðar annars staðar.

Það er alveg hárrétt að þjónustan er meira og minna óskipulögð. Það eru einstaklingar í þessu, það eru félög í þessu og ríkið hefur sloppið við þá ábyrgð, þ. e. a. s. það hefur oft veitt þessum félögum aðstöðu til starfa, og að mínu viti hefur þetta víðast hvar gengið vel.

Vegna þess að fólk flytur úr Reykjavík yfir í nágrannabyggðarlögin og hér verður samsöfnun á öldruðu fólki meiri en annars staðar skapast visst vandamál hérna. En hér er líka sérstök stofnun sem á að sjá um hag aldraðra. Mér er nokkuð kunnugt um það, að bæði heimahjúkrun og alls konar heimilishjálp við aldrað fólk er framkvæmd í Reykjavík. Ég kem nálægt stofnun þar sem eru á fjórða hundrað aldraðir í sínum íbúðum, og ég veit ekki betur en hvenær sem kallað er á sé heimilishjálpin í Reykjavík reiðubúin. Sama er að segja um heimilishjúkrun. Það má þó vel vera að við þurfum víðar að líta til og bæta um, og það er reyndar að ske. T. d. hefur það skeð á undanförnum árum að byggð eru hundruð íbúða ætlaðar öldruðum, og það er, eftir því sem mér heyrðist hæstv. heilbr.- og trmrh. segja frá í dag, verið að byrja á allmörgum íbúðum í ár fyrir aldraða og lána til þess fé.

Ein af þeim breytingum, sem orðið hafa í þessu landi á síðustu árum, er að hverfa frá stórelliheimilum og stefna að því að fólkið geti búið á heimilum sínum lengur en áður var, og þá er líka hægara að veita því ýmsa félagslega þjónustu. Hins vegar vitum við að bæði lækningum og aðbúð eru takmörk sett, og mér er kunnugt um að í Reykjavík er mikill vandi vissra aðila sem ekki komast á sjúkrahús.

Ég vildi sérstaklega taka það fram, að heilbrigðisþjónusta við aldraða hér fer fram á annan hátt en sums staðar annars staðar. Hún fer ekki fram á sérstökum öldrunardeildum nema að litlu leyti,-hún fer fram, eins og síðasti ræðumaður tók fram, að verulegu leyti á „akútspítölunum“ okkar þar sem besta starfsfólkið í landinu er, þar sem fullkomnustu læknarnir eru og þar sem best þjónusta er veitt.