28.03.1979
Efri deild: 73. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3667 í B-deild Alþingistíðinda. (2849)

239. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Flm. (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Ég hafði hugsað mér að geyma það örlítið að flytja framsögu um þetta mál og forseti gaf mér vissulega kost á því, en hér eru mál á dagskrá, sem hæstv. ráðh. eiga að mæla fyrir náttúrlega miklu merkari en það mál sem hér er um að ræða. En til þess að reyna að bjarga heiðri hv. d. þannig að hún hafi eitthvað við að vera í dag er rétt að ég fari út í það að mæla fyrir þessu máli og í trausti þess að hæstv. ráðh. séu að vinna þjóðþrifaverk, eins og þeirra er von og vísa, sem réttilega var bent á.

Ég hef leyft mér á þskj. 484 að flytja ásamt hv. þm. Stefáni Jónssyni frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins. Efni frv. er í raun og veru það, að Húsnæðismálastofnun ríkisins skuli starfrækja útibú frá stofnuninni í öllum kjördæmum landsins utan Reykjaneskjördæmis, en við höfum ekki séð ástæðu til þess vegna nálægðar þess við höfuðstofnunina að leggja til útibú þar. Það er hugmynd okkar að útibú þessi veiti alla sömu þjónustu og stofnunin sjálf veitir hvað snertir upplýsingar, teikningar og hvers konar fyrirgreiðslu. Það er einnig ætlun okkar, að þau taki við umsóknum hvert af sínu svæði, yfirfari þær og afgreiði í samræmi við yfirstjórn stofnunarinnar, annist þá þætti, sem lúta að byggingu verkamannabústaða og leigu íbúða sveitarfélaga á starfssvæði sínu, svo og aðra þá þætti félagslegra framkvæmda er til greina koma, enda hljóti þeir samþykki yfirstjórnar stofnunarinnar. Útibúin skulu hafa nána samvinnu við skipulagsskrifstofur landshlutanna eða þjónustumiðstöðvar er þeim verður komið á. Afgreiðsla og útborgun lána skal fara fram í samvinnu við útibú Landsbankans á hverju svæði eða útibú annars ríkisbanka, en Landsbankinn er tekinn hér sérstaklega út úr vegna þess að veðdeild Landsbankans sér um þessi útlán öll í dag, og bankaútibúin skulu ganga frá öllum skilmálum og veðtryggingum. Húsnæðismálastofnun ríkisins sér útibúunum fyrir nægilegu fé til afgreiðslu umsókna hverju sinni með tilliti til heildarútlána stofnunarinnar.

Í grg. frv. er það rakið, að þetta frv. sé flutt í fjórða sinn. Í þriðja skiptið sem það var flutt var því vísað til hæstv. þáv. ríkisstj. með mjög jákvæðri umsögn, sem ekki var síst að þakka jákvæðum vilja hæstv. forseta þessarar d., sem taldi um að ræða hið markverðasta mál, sem hann vildi láta skoða gaumgæfilega í tengslum við þá endurskoðun á húsnæðismálastjórnarlögunum sem þá var í undirbúningi.

Nú veit ég að fram hefur farið mjög náin athugun á öllu kerfi Húsnæðismálastofnunar ríkisins eða Byggingarsjóðs ríkisins og ég veit að frv.-drög eða nál. þar að lútandi hafa verið á borði félmrh. um nokkurt skeið, þar sem ýmsir hagsmunaaðilar, verkalýðssamtök o. fl. áttu fulltrúa í þeirri nefnd. Mér er kunnugt að nokkru um niðurstöður þær sem þar liggja fyrir. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða, að þar sé ekki komið inn á það tiltekna atriði, sem hér er á minnst, í sambandi við þessi útibú. Nú má auðvitað starfrækja útibú þessi með ýmsum hætti eða framkvæma þetta með ýmsum hætti. Við bendum á það í grg. að ný byggingarlög auðveldi þessa skipan um margt og þá kannske jafnvel aðra skipan en hér er lögð fyrir, með einu útibúi í hverju kjördæmi.

Með hinum nýju byggingarlögum var komið miklu fastari skipan á starf byggingarfulltrúa. Byggingarfulltrúarnir annast vissulega mikilsverða þjónustu á hinum ýmsu stöðum, þó hvergi nærri þá sem við flm. vildum að þeir hefðu. Ég fagna því líka, að síðan þetta frv. var flutt hefur samvinna milli Húsnæðismálastofnunar ríkisins og hinna ýmsu byggingarfulltrúa orðið miklu meiri. Ég benti einmitt þá í framsögu fyrir sams konar frv. á það, að fræðsla byggingarfulltrúa þyrfti að stórbatna, og það hefur hún svo sannarlega gert. Húsnæðismálastofnunin hefur gengist fyrir námskeiðum og gert verulegt átak í þeim efnum að efla bæði samskiptin og almenna fræðslu fyrir þá byggingarfulltrúa — sem ég tel alvörubyggingarfulltrúa — sem starfa sem slíkir í fullu starfi, og með nýjum byggingarlögum mun þessum alvörubyggingarfulltrúum, sem ég kalla svo, sem eru í fullu starfi, fjölga og þeir munu taka að sér enn viðameiri verkefni þegar hin nýju byggingarlög verða komin að fullu til framkvæmda.

Það er að vísu alveg rétt, að þegar kemur að spurningunni um útibú í hverjum landshluta hafa æðioft komið upp þær spurningar frá íbúum í kjördæmunum, á hvern hátt auðveldara væri að sækja þjónustu til þessara útibúa en jafnvel til Reykjavíkur. Það hefur því miður ærið oft komið sú spurning. Ég segi þetta vegna þess að þegar frv. var flutt komu upp einmitt í hv. þd. miklar efasemdir um gagnsemi þessara útibúa, vegna þess að sums staðar væri samgöngum þannig háttað innan kjördæmanna — og kemur það inn á till, sem var mjög til umr. í gærkvöld og langar umr. urðu um, varanlega vegagerð m. a. og samgöngumál almennt þá um leið. Þá kom það mjög til umr. hvort samgöngur innan kjördæma væru þá slíkar og svo vel fyrir þeim séð og greið samskipti meðal íbúanna að kannske væri, þegar á allt væri litið, auðveldara að sækja beint til Reykjavíkur. Þetta hefur raunar verið viðkvæðið í sambandi við hvaðeina af hinni opinberu þjónustu sem hefur átt að flytja út á landsbyggðina, og þarf ekki að rekja um það frekari dæmi.

Við flm. erum vitanlega alveg á gagnstæðri skoðun. Úr þessum samskiptaörðugleikum, sem vissulega eru fyrir hendi, þarf hreinlega að bæta. Það verður auðvitað ekki gert með öðrum hætti en að auðvelda samgöngur innan kjördæmanna og miða ekki samgöngukerfi okkar allt við það hvernig er að komast til og frá Reykjavík, eins og raunin hefur orðið á um samgöngumál okkar í heild allt of lengi.

Ég varð var við það, þegar þetta frv. kom á dagskrá, að frá landshlutasamtökum sveitarfélaga, sem eru hinir virku aðilar sveitarfélaganna úti um landið, komu ákveðnar samþykktir og áskoranir um að þetta frv. yrði samþykkt og því komið á með einhverjum hætti. Raunar var kveikjan að þessu frv. upphaflega komin frá mikilli ráðstefnu sem Húsnæðismálastofnun ríkisins ásamt Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi gekkst fyrir austur á Hallormsstað, þar sem í raun og veru varð sú niðurstaða helst að skora á Húsnæðismálastofnun ríkisins að stofna slík útibú úti um landið eða þá, eins og þar kom einnig til álita, að fela bankaútibúunum ásamt byggingarfulltrúum afgreiðslu á þessum málum. Ég bendi á það, að síðan hafa sveitarfélögin mjög haft það á dagskrá að koma upp svokölluðum þjónustumiðstöðvum þar sem t. d. húsnæðismálaþátturinn yrði einn af forgangsþáttum.

Ég lofaði því í grg. að vitna sérstaklega til ítarlegra hugmynda, þeirra sem Logi Kristjánsson bæjarstjóri á Neskaupstað hefur sett fram um þetta efni, en ástæðan til þess að ég hikaði svolítið við að hafa framsögu fyrir málinu nú, var sú, að ég hef ekki undir höndum þær ágætu hugmyndir, sem hafa verið reifaðar hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga, og ætla ekki að fara að lýsa þeim hér, svo að ég fari ekki með rangt mál, því að mörgum þykir sem nógu oft sé farið með rangt mál hér á Alþ. þó að ekki sé farið beinlínis að gera það að leik á þann hátt.

Í núgildandi lögum er kveðið þannig á, að allt veðlánakerfið skuli starfrækt undir stjórn húsnæðismálastjórnar og veðdeildar Landsbankans. Þess vegna er verið að leggja það til varðandi afgreiðslu lána, að útibú Landsbankans eða útibú annars ríkisbanka sjái um þennan þátt mála undir yfirstjórn veðdeildar Landsbankans í Reykjavík, sem hlýtur áfram að verða yfirstjórnaraðili hvað snertir afgreiðsluna, eins og við leggjum reyndar til að yfirstjórn Byggingarsjóðs ríkisins eða Húsnæðismálastofnunar ríkisins hafi áfram með alla yfirstjórn þessara mála að gera.

Ég þarf ekkert að tíunda það fyrir mönnum, a. m. k. ekki þeim sem eitthvað þekkja til erfiðleika húsbyggjenda á landsbyggðinni, að það getur verið dýrt, erfitt og seinlegt að sækja þjónustu til þessarar annars ágætu stofnunar í Reykjavík. Hér er um geysilega mikið vottorða-fargan að ræða t. d., og ég dreg ekkert úr því, að þar þykir mér seilst langt um of í mörgum tilfellum, en þetta stafar líka af því að þeir, sem starfa að þessu í stofnuninni í Reykjavík, eru náttúrlega ókunnir með öllu því ástandi sem er í hinum einstöku þáttum, eða a. m. k. mjög ókunnugir öllum staðháttum, og vita ekki eins glögg deili á vanda manna og þeir menn gera sem mundu standa fyrir útibúum af þessu tagi, eins og t. d. byggingarfulltrúarnir gera út á landi. Hins vegar kemur auðvitað alltaf að því að við stönsum við það, hvað yfirstjórn stofnunarinnar í Reykjavík eigi að hafa mikið vald og hvað útibúin eigi að hafa mikið vald. Það er fjarri okkur flm. að ætla þessum útibúum að vera hreinar afgreiðslustofnanir frá höfuðstöðvunum og taka aðeins við því sem þeim er þaðan rétt. Við teljum hins vegar óhjákvæmilegt að um vissa samræmingu sé að ræða hjá yfirstjórninni um þá einstöku málaflokka, sem veitt er til hverju sinni, og að yfirstjórnin sjái til þess að nægilegt fjármagn sé fyrir hendi hjá hinum einstöku útibúum. En við erum líka ákveðnir í því, að þessum útibúum sé fyllilega treyst til þess að ganga frá og afgreiða þær umsóknir sem til þeirra berast, og þá gildir einu hvort þar er um að ræða hinn einstaka húsbyggjanda eða t. d. sveitarfélögin, sem þurfa að vinna að sínum félagslega þætti, eða stjórnir verkamannabústaða eða byggingarsamvinnufélaga, svo að einhver dæmi séu tekin, — þau geti alfarið átt viðskipti við þessi útibú og þurfi ekki til annarra að leita nema þá í sérstökum vandatilfellum.

Ég er líka viss um að ef við færum að forma þetta frekar en hér er gert mundi ég að sjálfsögðu leggja til að sveitarfélögin, sem eru afgerandi aðili í þessum málum, fengju hlutdeild í yfirstjórn þessara útibúa. Það þykir okkur vitanlega sjálfsagt, og þar sem landshlutasamtökin eru nú orðin svo heildstæðar einingar'sem þær eru í dag er auðvitað eðlilegast að fela þeim að sjá um hluta af yfirstjórn þessara stofnana í samráði við stjórnir byggingarfélaga verkamanna og annarra, sem þau reyndar tengjast einnig.

Við munum ekki reikna með neinu bákni í kringum þetta. Við höfum einmitt reiknað með því, að í einstaka tilfellum mætti jafnvel útfæra starf ákveðins byggingarfulltrúa að hluta til með einhverju viðbótarstarfsliði, og við drögum ekkert úr því að fólki, sem yfirfer alla þá pappíra í Reykjavík sem því eru sendir, mætti þá gjarnan fækka í leiðinni. Og ég er ekki í nokkrum vafa um að heildaraukning starfsfólks af þessum ástæðum, sem hér er verið að leggja til, yrði ekki mikil ef rétt væri að staðið, ég tala nú ekki um ef sveitarfélögin tækju myndarlega á þessu máli, sem ég efast ekki um að þau mundu gera ef þau fengju til þess tækifæri.

Við leggjum sem sagt áherslu á að þarna er um ýmis vandaatriði að ræða. Þetta mál þarf vissulega góða skoðun. Ég harma það þess vegna að sú nefnd, sem hefur haft húsnæðismálin í heild til athugunar, skuli lítið sem ekki, — ég vil ekki segja ekkert, en lítið sem ekki hafa sinnt þessum þætti, heldur verið að fara næstum alfarið ofan í hina ýmsu þætti byggingarmála og hvernig þeim mætti skipa með öðrum hætti. Auðvitað er það eðlilegast, eins og við bendum á, að ef þessum þjónustumiðstöðvum verður komið á, hvernig sem þeim verður komið á, — það eru ýmsar hugmyndir til um skipulag þeirra, — þá verði þessar afgreiðslur í tengslum við þær eða þá þær skipulags- og verkfræðiskrifstofur sem er vonandi að landshlutasamtökunum auðnist að koma á fyrr en síðar.

Ég ætla ekki að hafa öllu lengri framsögu fyrir máli þessu. Ég þarf ekki að rekja það, hverjar kröfur koma frá landsbyggðinni, eðlilegar og réttlátar, um að aukin þjónusta verði færð til þeirra og miðstýringu frá höfuðborginni linni eins mikið og unnt er. Ég veit að ekki síst brenna húsnæðismálin þarna á fólki. Fyrst og fremst eru þau auðvitað þess eðlis að þau snerta hvern einasta mann meira og minna, og ekki síður er þetta hagsmunamál sveitarfélaganna. Ég harma því líka að sú athugun eða sú umsögn, sem fór frá Ed. á sínum tíma, mjög jákvæð, sem hæstv. forseti Ed. mælti mjög myndarlega fyrir og lagði áherslu á við ríkisstj. sína á þeim tíma, skuli ekki hafa fengið aðra afgreiðslu en þá sem ég var að lýsa áðan. En ég veit að hæstv. forseti d. er enn þá í þeirri ágætu nefnd, sem fær þetta mál til meðferðar, og ég efast ekki um að hann taki þar á því ásamt öðrum nm. af þeirri sanngirni sem honum er lagin.

Ég held að hér mætti hafa um langt mál fyrir hönd okkar flm., en ég veit líka að nú munu ráðh. komnir hér til húsa og þar af leiðir að störf d. geta haldið áfram í eðlilegum farvegi. En ég ítreka að þetta er okkur mikið alvörumál varðandi þennan þátt þjónustunnar við landsbyggðina og við trúum ekki öðru en á því verði tekið þannig að einhver breyting verði á, að menn þurfi ekki að sækja alla hluti til Reykjavíkur varðandi húsnæðismál eins og þeir gera raunar í dag. Þó ég dragi ekkert úr því aukna verkefni, sem byggingarfulltrúarnir hafa fengið, eru þeir samt algerlega háðir þessari stofnun hér og því skrifstofu-„apparati“ sem er í Reykjavík í kringum hana. Sama er að segja um sveitarfélögin, byggingarsamvinnufélögin, byggingarfélög verkamanna, þau eru allt of háð þessu í dag og heimaaðilar ráða sáralítið ferðinni, því miður.

Ég vil svo leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. félmn.