28.03.1979
Efri deild: 73. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3675 í B-deild Alþingistíðinda. (2854)

239. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Flm. (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Ég þakka hv. ræðumönnum fyrir góðan stuðning við mál þetta, sem ég átti reyndar fyllilega von á að fengist.

Ég er alveg sammála því, að hér er um hluta af stærra máli að ræða. Til þess er einnig vísað í frvgr., en lengra var vitanlega ekki hægt að ganga, þar sem um frv. er að ræða um tiltekna stofnun, en að vísa í skipulags- og verkfræðiskrifstofur annars vegar og þjónustumiðstöðvarnar hins vegar. Ég er fyllilega sammála hv. þm. Alexander Stefánssyni, að hér mætti sannarlega auka við, en bendi á að frv.-forminu þyrfti auðvitað að breyta nokkuð vegna þess að það snertir þessa tilteknu stofnun.

Hins vegar finnst mér slíkt sjálfsagt, enda höfum við oft komið inn á það mál áður. Ég hafði það einnig í huga, að e. t. v. væri rétt að flytja þáltill. varðandi þetta atriði og tengja það þá fleiri atriðum sem hann réttilega kom hér inn á. En reynsla okkar af þáltill. er sú, að það er heppilegra og vænlegra til árangurs að flytja mál í frv.formi og reyna þá að ná fram því sem unnt er með þeim breytingum sem nefndum þykja eðlilegastar.

Það er alveg rétt, sem kom fram í máli hv. þm. Þorv. Garðars Kristjánssonar, að afgreiðsla félmn. á sínum tíma var miðuð við að þetta mál fengi jákvæða meðferð í þeirri endurskoðun sem þá fór fram. Þeirri endurskoðun er að vísu lokið að þeim hluta til sem sú nefnd, sem þá var að störfum, vann að. Hún skilaði tveimur álitum, menn urðu þar ekki alveg sammála, en hún mun hafa bundið verksvið sitt í raun og veru algerlega við hina ýmsu þætti Byggingarsjóðs ríkisins og meðferð þeirra mála og ekki tekið þetta svið beinlínis fyrir, eins og þó var fyrir mælt á sínum tíma. Hins vegar er það staðreynd, að hin mikla og öra þróun í byggingarmálum hér kallar vitanlega á stöðuga endurskoðun. Það er auðvitað spurning, eins og hv. þm. varpaði fram, hvort ætti að vera um heildarendurskoðun að ræða, en a. m. k. endurskoðun sem tæki til þeirra atriða sem breyttir tímar kölluðu beinlínis á.

Ég vil alveg sérstaklega taka undir með síðasta hv. ræðumanni, Oddi Ólafssyni, um upplýsingastreymið, sem ég er ekki í nokkrum vafa um að mundi aukast með útibúum. Það er svo í fjöldamörgum tilfellum, — þar á ég við tryggingalöggjöf okkar alveg sérstaklega og eins snertir það t. d. hópa sem um margt eiga erfiða aðstöðu. — að fólkið hefur hreinlega enga hugmynd um rétt sinn. Ég veit að fólk, sem hefur sótt um einmitt í tengslum við það ákvæði sem hv. þm. Oddur Ólafsson kom inn á, hefur sent inn umsóknir, en þær hafa þó þótt þess eðlis að ekki væri ástæða til að fylgja þeim eftir. Ég þekki dæmi þess. Það kann að vera að þarna hafi verið um ófullkomnar upplýsingar og ófullkomin vottorð að ræða, en engu að síður hefur þetta ákvæði ekki, a. m. k. að því er ég veit til, komið þannig til framkvæmda. Menn hafa almennt litið svo á að það næði eingöngu til öryrkja, en ekki aldraðra og öryrkja, eins og var fyrst ákveðið. Menn hafa sem sagt hreinlega ekki tekið eftir þeirri breytingu sem varð þegar öldruðum var bætt inn í, að mig minnir að frumkvæði hv. þm. Odds Ólafssonar.