01.11.1978
Neðri deild: 10. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (287)
9. mál, Seðlabanki Íslands
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á því að tilkynna hv. dm. það, að ég mun ekki halda hástemmda og fræðilega ræðu um verðbólguvandamálið í sambandi við þetta frv. Ég vil gjarnan fá að segja um það nokkur orð.
Hér er auðvitað verið að reyna að höggva á þann óleysanlega hnút sem verið hefur hingað til, annars vegar að vernda sparifjáreigendur og hins vegar að íþyngja ekki um of atvinnurekstri, húsbyggjendum og fleira af því fólki sem ýmissa nauðsynja vegna verður að taka fé að láni. Þetta hefur löngum reynst erfitt viðfangsefni, og hygg ég að svo muni enn fara. Út af fyrir sig efast ég ekki um það, að tilgangur flm. með þessu frv. er góðra gjalda verður, og það er mjög líklegt, að þeir trúi því, svo að ég segi ekkert annað en það sem ég held að sé rétt, að þarna hafi verið hitt á óskaráðið.
En mig langar að leggja fyrir mig og aðra hv. alþm. tvær spurningar í sambandi við þetta: 1) Er þörf á þessu frv., þörf á þessum lagaákvæðum? 2) Leysa þau vandann þótt þau verði samþykkt? Ég ætla aðeins að víkja að fyrra atriðinu.
Það var 1966 sem þáv. bankamálaráðh., Gylfi Þ. Gíslason, kynnti hér á Alþingi frv. til l. um verðtryggingu fjárskuldbindinga. Þetta frv. fékk góðar viðtökur á þingi, því að flestir, sem þar voru þá, þ. á m. sá sem hér stendur, töldu að þarna væri hugsanlega leið til þess að leysa þetta vandamál sem ég vék að í upphafi, að tryggja hag sparifjáreigenda án þess að íþyngja lántakendum um of. Þessi lög voru sett og þau heimila Seðlabankanum að leyfa verðtryggingu á fjárskuldbindingum sem eigi væru til skemmri tíma en þriggja ára, bönnuðu alla aðra verðtryggingu, þ. á m. að miða vexti við breytingar á vísitölu, vöruverði, gengi erlends gjaldeyris, verðmæti gulls, silfurs eða annars verðmætis, eins og í 1. gr. þessara laga segir. Þarna héldu menn sem sagt að væri verið að finna snjallræði til þess að tryggja hag sparifjáreigenda.
Nú eru liðin 12 ár síðan þessi lög voru sett og enn þá hefur mjög lítið af fjárskuldbindingum, þótt til lengri tíma sé, verið verðtryggt. Af hverju skyldi það vera nema af því að lántakendur hafa ekki getað risið undir þeim byrðum sem slík lán leggja á þá. Ég held að ég hafi það algerlega fyrir satt, að allan þann tíma, sem þessi lög hafa verið í gildi, hafi verið við æðstu stjórn í Seðlabankanum menn sem raunverulega trúa á gildi hárra vaxta til varnar gegn verðbólgu og til tryggingar sparifjár. Ég á þess vegna ekki von á því, að sú staðreynd, að þessi aðferð hefur ekki verið meira notuð en raun ber vitni, stafi af tregðu hjá þeim mönnum sem þar fara með völdin. Það eru aðrar aðstæður og ástæður sem koma þar til greina, nefnilega þær sem ég áðan nefndi, að lántakendurnir hafa ekki ráðið við þessar skuldbindingar. Annað hefur líka komið í ljós, að lán með þeim kjörum hafa hækkað verðlagið í landinu, vegna þess að þau hafa farið að verulegu leyti út í verðlag, eins og hér hefur raunar áður verið sagt og allir vafalaust vita.
Í öðru lagi leyfi ég mér að minna á að það er Seðlabanki Íslands sem ræður því, hvaða vaxtakjör eru í landinu á hverjum tíma. Í 13. gr. laga um Seðlabanka Íslands segir svo, með leyfi forseta:
„Seðlabankinn hefur rétt til að ákveða hámark og lágmark vaxta, sem innlánsstofnanir, er um ræðir í 10. gr., mega reikna af innlánum og útlánum. Nær þetta vald einnig til að ákveða hámarksvexti samkv. lögum nr. 58/1960“ o.s.frv.
Það hefur verið nokkrum sinnum reynt að hækka vexti til þess að tryggja hag sparifjáreigenda. En nú hefur því um nokkurt skeið verið hætt, ekki að ég hygg vegna þess, að bankastjórn Seðlabankans hafi skipt um skoðun, hún sé nú farin að trúa því, að háir vextir séu til óþurftar, heldur af hinu, að hún hefur ekki í þessu tilviki frekar en þegar um verðtryggingu fjárskuldbindinga er að ræða treyst sér til að leggja á lántakendur, atvinnureksturinn og einstaklinga sem þurfa á lánum að halda, þær kvaðir sem hærri vextir bera í sér. Ef menn hefðu trú á því, að vandann væri hægt að leysa annars vegar með verðtryggingu fjárskuldbindinga sem eru lengri en til þriggja ára og hins vegar háum vöxtum á styttri tíma skuldbindingum, þá hefði það að mínu mati verið gert, ef ekki hefðu komið til þær ástæður sem ég var að nefna, að menn hefðu ekki treyst sér til að leggja byrðarnar á.
Ég held því að frv. sé að þessu leyti óþarft. Og ég held að það sé ekki rétt að ákveða það skilyrðislaust, að vaxtafótur skuli ávallt fylgja verðbólgustiginu. Það geta ævinlega komið þau tilvik fyrir í þjóðfélaginu, að þess sé ekki kostur. Ég ætla ekki að fara að búa til nein dæmi um það. Ég hygg að menn hljóti að sjá að slík atvik geta orðið fyrir hendi, og þá álít ég að ekki sé hentugt að þurfa að breyta lögum til þess að breyta vöxtum. Þeir menn, sem trúað hefur verið fyrir því mikilvæga hlutverki að fara með stjórn Seðlabanka Íslands, hljóta að mínu mati áfram að verða að ráða því, hvenær hentugt sé að hækka vextina og hvenær nauðsynlegt sé að lækka þá.
Þá vil ég aðeins koma að hinu atriðinu, hvort þetta frv. muni leiða til lækkunar verðbólgu og þar af leiðandi til bættra lífskjara í þjóðfélaginu. Ég ætla ekki að hafa um það langt mál, því að ég er að ýmsu leyti sammála því sem síðasti ræðumaður sagði til rökstuðnings því, að ég tel að svo háir vextir sem hér er rætt um muni ekki vera til hagsældar, hvorki fyrir land né lýð. Það er staðreynd, sem ekki verður fram hjá gengið, að verulegur hluti af fjármagnskostnaði fer beint út í verðlagið hér á landi, fyrst og fremst vegna þess að þeir aðilar, sem lánin taka, hafa enga möguleika á því að greiða vextina úr eigin vasa. Ef ætti að skapa þeim skilyrði til þess yrði að auka möguleika þeirra á að hagnast á atvinnurekstri sínum miklu meira en þeir hafa nú möguleika á. Ef hægt er að finna ráð til þess má vera að hér sé farið inn á rétta braut, en fyrr en það ráð hefur verið fundið og á það bent og frá því skýrt tel ég að hér sé ekki um neitt snjallræði að tefla.
Auðvitað er æskilegt að sparifjáreigendur séu tryggðir. Það segir sig vitanlega sjálft, því að á sparnaði einstaklinga byggist möguleiki þjóðfélagsins til þess að fjármagna framkvæmdir af eigin fé. Þetta vita auðvitað allir. En ég óttast það og veit, að þótt vextir verði hækkaðir, þá munu sparifjáreigendur einnig verða fyrir barðinu á þeirri verðbólgu, sem óhjákvæmilega leiðir af vaxtahækkuninni, því að háir vextir eru ekki bara afleiðing af verðbólgu, þeir eru orsök verðbólgu ekkert síður. Það hljótum við að geta verið sammála um.
Hér hefur verið minnst á þann möguleika, sem sparifjáreigendur hafa til þess að verðtryggja sparifé sitt, þ.e.a.s. að kaupa ríkistryggð skuldabréf. Margir hafa notað sér það, og með þeim kjörum, sem á þeim eru, er það ekki óaðgengileg leið fyrir þá sem eiga nokkurt magn af sparifé sem þeir að öllu óbreyttu a.m.k., skulum við segja, þurfa ekki á að halda þann tíma sem féð er bundið, þ.e. þrjú ár. En auðvitað er og verður alltaf til annars konar sparifé í landinu líka. Það er sparifé sem fólk þorir ekki að binda, af því að það vill hafa það tiltækt ef eitthvað bjátar á, ef einhverjum óvæntum útgjöldum þarf að mæta. Og það er fyrst og fremst þetta fólk sem ég fyrir mitt leyti hef samúð með og vissar áhyggjur af, að ekki skuli vera hægt að tryggja fé þess betur en nú er gert.
Leiðin til þess að tryggja sparifé er auðvitað að vinna bug á verðbólgunni. Ég hef ekki við höndina patentlausn á lækkun verðbólgu frekar en ég býst við að aðrir hafi, nema þá ef vera kynnu flm. þessa frv. En með samverkandi aðgerðum, eins og núv. ríkisstj. stefnir að, hygg ég að hægt muni að halda til að byrja með verðbólgunni í skefjum og helst að lækka hana. Og ég legg áherslu á það, að í framtíðinni verði þess freistað a.m.k. og helst staðið við það, að þær tölur, sem gefnar verða út um verðbólgustig í framtíð, fáist staðið. Ég tel það ekkert minna atriði heldur en að lækka verðbólguna í einu vetfangi, af því að ég tel ekki að það sé hægt. En ástæðan til þess, að ég segi þetta, er sú, að mikið af erfiðleikum atvinnurekstrar og þá einkum þess, sem flytur vörur sínar og afurðir úr landi, stafar einmitt af því, að samið er á tilteknum tíma um sölu á afurðum fram í tímann. Þetta geta oft verið ágætir samningar, miðað við þær aðstæður sem fyrir hendi eru þegar þeir eru gerðir. En þegar á að skila vörunni hefur verðbólgan leikið framleiðslukostnaðinn þannig, að útilokað er fyrir framleiðandann að standa við gerða samninga eða þá hann stórtapar a.m.k. á þeim. Þess vegna legg ég áherslu á að þess verði gætt, að sú verðbólguspá, sem út verður gefin, ef að vanda lætur, verði gerð með þeirri aðgát, að ekki sé hætta á því að verðbólgan verði meiri. Minni mætti hún að sjálfsögðu gjarnan verða.
Það er mikið talað hér um verðbólgugróða, brask og spillingu sem af því leiðir, og síst ætla ég að fara að gerast málsvari fyrir þá sem hafa grætt á verðbólgu. En ég held að þeir séu ekki eins margir og af er látið. Og ég held að það sé að verulegu leyti hægt að ná til þessa verðbólgugróða með skattálagningu á svipaðan hátt og nú er verið að gera, og lýsi ég því þó í leiðinni yfir, að afturverkandi skattar eru ekki að mínu skapi. En nú er ég að tala um framtíðarskattlagningu, og ég tel að það sé hægt að ná til þess verðbólgugróða, sem myndast hefur í gegnum fasteignaöflun, með eignarskatti eins og nú er verið að vinna að.
Ég minnist þess frá mínum fyrstu dögum hér, — ég held að það hafi verið 1960, — að þá þótti mér það snjallræði og færði í tal hér, að það ætti að vera vaxtaþak á frádrætti þeim sem leyfilegt væri að draga frá áður en skattur er lagður á. Þetta þótti alger fjarstæða þá og málið komst ekki hænufet. Nú sýnist mér þó að margir hafi komist á þá skoðun, að eitt af því, sem gæti dregið úr áhuga manna á lántökum til fjárfestingar, sé að þeir verði þó a.m.k. að greiða að verulegu leyti skatt án tillits til þess hvað þeir skulda. Ég er ekki að mæla því bót, að engir vextir séu frádráttarbærir. Ég tel eðlilegt að hæfileg fjárhæð sé tiltekin, við skulum segja vextir af húsnæðismálalánum eða eitthvað slíkt, ég hef ekki reiknað út hvað það ætti að vera, en það sé ekki leyfilegt, eins og tíðkast hefur, að draga frá alla þá vexti sem menn geta yfir komist eða fá að borga í lánastofnunum.
Í sambandi við þetta frv. er eitt sem mig langar enn fremur að benda aðeins á, og það er að ég tel næsta óeðlilegt að allir innlánsreikningar séu með sömu vöxtum, en samkv. 1. gr. þessa frv. er ekki annað að sjá en inneignir í sparisjóði, á hlaupareikningum og ávísanareikningum eigi að vera með þeim vaxtakjörum sem hér um ræðir. Þetta tel ég fullkomlega óeðlilegt. Eins og allir hv. þm. vita, eru nú greiddir mjög lágir vextir af hlaupareikningum og ávísanareikningum. Það byggist á því, að við þá reikninga er yfirgnæfandi langmest vinna bankanna og það er dýrt fyrir bankana að fjalla um slíkt fé sem kannske stendur aðeins yfir nóttina í banka, eins og dæmi eru til. Og þetta er ekki íslenskt fyrirbæri, þetta er þekkt, að ég hygg, í öllum löndum, að vaxtamismunur er fyrir hendi. Ég tel að hér sé ágalli á frv. sem sennilega er auðvelt að laga, en a.m.k. vil ég benda hv. flm. á að athuga þetta. Sums staðar eru hlaupareikningar þannig, að menn verða að greiða fyrir að fá að hafa þá, eins og í Sviss og jafnvel víðar, sem sýnir hvað bankarnir telja og vita hvað er dýrt og fyrirhafnarsamt að geyma fé á slíkum vöxtum.
Hæstv. ríkisstj., sem nú hefur hafið göngu sína, hefur í samstarfsyfirlýsingu sinni þá stefnu að endurskoða vísitöluna. Ég tel höfuðnauðsyn á því, að þetta stefnuskráratriði verði framkvæmt. Ég viðurkenni það, sem hv. 1. þm. Austurl. var að segja áðan, og man vel þá tíð, þegar engin vísitala var á launum. Við, sem vorum þá í stjórnarandstöðu, reiknuðum út og sönnuðum með óyggjandi tölum, að aldrei hefði kaup á Íslandi hækkað meira en á árunum 1963–1964, þeim árum sem vísitalan var ekki í sambandi, svo að það út af fyrir sig að hafa engan mæli milli kaupgjalds og verðlags er ekki lausnin. Ég viðurkenni það og samþykki það með honum. Hins vegar tel ég að sú vísitala, sem við búum nú við, sé bandvitlaus, eldgömul og úrelt og það sé höfuðnauðsyn að endurskoða hana. Til að mynda í hvert skipti sem bifreiðaárekstur verður hér hækka laun manna, og maður sér, þegar ekið er inn Miklubraut, launin sín hækka kannske þrisvar, fjórum sinnum á leiðinni. Þetta er ekki kerfi sem er heppilegt við að búa. Og margt er fleira í þessum fræðum sem þarf að lagfæra, það hljótum við öll að vera sammála um.
Ýmislegt fleira hlýtur að geta komið til álita og til greina þegar talað er um baráttuna við verðbólguna. En ég sagði í upphafi ræðu minnar, að ég ætlaði ekki að halda fyrirlestur um hana að þessu sinni, ég ætlaði aðeins að ræða um frv. til. l. um breyt. á lögum nr. 10 29. mars 1961, um Seðlabanka Íslands.