28.03.1979
Neðri deild: 68. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3706 í B-deild Alþingistíðinda. (2883)

22. mál, Framkvæmdasjóður öryrkja

Frsm. meiri hl. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Vegna ummæla hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar tel ég mig hafa skýrt það nægjanlega vel, að þetta hefur ekki verið fjármagnað á fjárl. og því hefur ekki verið sinnt nægjanlega vel hingað til, og þess vegna þarf þessi tekjustofn að koma til. Með þessari ábendingu er ég ekki að draga þm. í dilka, einungis að benda á staðreyndir.

Hv. þm. Halldór Blöndal taldi að þó frv. yrði samþ. yrði gildi þess næsta rýrt, þar sem endurskoðun á mörkuðum tekjum færi fram fyrir árslok ef frv. forsrh. nær fram að ganga. Ég vil mótmæla þessu, vegna þess að ég tel að það hljóti einmitt að verða sérstaklega tekið tillit til þessa máls sem svo mjög hefur verið svelt í fjárveitingum undanfarin ár, með þeim afleiðingum að það er á takmörkunum að þroskaheftir búi við þau mannréttindi sem öðrum þykja sjálfsögð.