29.03.1979
Sameinað þing: 75. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3712 í B-deild Alþingistíðinda. (2899)
183. mál, endurskipan varnarmálanefndar utanríkisráðuneytisins
Flm. (Gunnlaugur Stefánsson):
Herra forseti. Við Ólafur Björnsson höfum leyft okkur að flytja hér á Alþingi till. til þál. um endurskipan varnarmálanefndar utanrrn. Þessi þáltill. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela utanrrh. að endurskoða varnarmálanefnd utanrrn. á þann hátt að fulltrúum frá samtökum launþega, vinnuveitenda og sveitarfélaga á Suðurnesjum verði tryggð aðild að nefndinni.“
Þannig hljóðar till. og síðar fylgir henni grg.
Eins og öllum hv. þm. er kunnugt skipar utanrrh. varnarmálanefnd til að fara með og fylgjast í umboði hans og þá náttúrlega Alþingis að nokkru leyti líka með samskiptum við bandarísk stjórnvöld vegna framkvæmdar varnarsamningsins um veru bandaríska setuliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þessi n. hefur verið skipuð fyrst og fremst embættismönnum sem hafa aðsetur hér í Reykjavík. Þessi till. gengur aftur á móti út á það að fulltrúum þeirra aðila, sem mikilla hagsmuna eiga að gæta í samskiptum við bandarísk stjórnvöld vegna veru hersins á Keflavíkurflugvelli, verði tryggð aðild að nefndinni með fullum réttindum. Þá er hér fyrst og fremst átt við samtök launþega, vinnuveitenda og sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Það hlýtur að liggja í augum uppi, eins og oft hefur komið í ljós hér á Alþ., að fólkið, sem býr í nágrenni Keflavíkurflugvallar, hefur mikilla hagsmuna að gæta um það, hvernig málum er raunverulega skipað á Keflavíkurflugvelli. Má benda á að fjöldi fólks á Suðurnesjum vinnur jafnan á Keflavíkurflugvelli, í öðru lagi, að sveitarfélög hafa orðið að leggja út í nokkurn kostnað vegna bandaríska setuliðsins á Keflavíkurflugvelli og einnig að þola ýmsan kostnað vegna ýmiss konar rasks, sem ekki er endurgreitt, vegna þeirrar starfsemi sem fer fram á Keflavíkurflugvelli, og síðast, en ekki síst, að nokkur atvinnufyrirtæki á Suðurnesjum veita þjónustu á Keflavikurflugvelli sem rétt er að taka tillit til að einhverju leyti þegar þessi mál eru til umr. Það má segja að varnarmálanefnd sé nokkurs konar hreppsnefnd á Keflavíkurflugvelli, og það hefur oft verið gagnrýnt og sú gagnrýni komið fram hér í þingsölum.
Ef hv. þm. bregða sér suður á nes verða þeir fljótt áskynja um það, að sú gagnrýni er hávær að samráð um skipan mála á Vellinum við þá aðila, sem mál snerta sérstaklega, eru ósköp lítil oft og tíðum. Það má t. d. benda á það mál sem hefur verið í deiglunni að undanförnu hér á þingi, olíumengunarmálin, að þrátt fyrir það að vilji sveitarfélaga hafi verið mikill til að eitthvað yrði gert í olíumengunarmálunum til úrbóta fyrir mörgum árum tókst aldrei að koma málinu fram, m. a. vegna þess að það voru engin bein tengsl á milli hagsmunaaðila á Suðurnesjum og þeirra sem ákvarðanirnar áttu að taka, og þá á ég við varnarmálanefnd utanrrn. Málið kom að vísu ekki til kasta Alþingis í tillöguformi fyrr en nú þennan vetur, og því reynir nú fyrst á hvað Alþ. getur gert í málinu. Þetta vildi ég benda á til að undirstrika nauðsyn þess að þessi till. nái fram að ganga á þessu þingi.
Svo er einnig hitt, að samskiptin við bandarísk stjórnvöld vegna hersins á Keflavíkurflugvelli, meðan hann er hér, verða að vera í stöðugri endurskoðun. Það hlýtur að segja sig sjálft varðandi það fólk, sem býr í nágrenni við jafnmikinn flugvöll og Keflavíkurflugvöllur er og býr við alla þá flugumferð sem um þann flugvöll fer, að af slíkri umferð hlýtur að stafa nokkur hætta umfram það sem önnur sveitarfélög í landinu þurfa að setja sig í. Það eru til nokkrar skýrslur með frásögnum um það að hætta hefur verið á ferðum þegar flugvélar á vegum hersins á Keflavíkurflugvelli í æfingaflugi og áætlunarflugi hafa nærri verið búnar að valda slysum. Það hlýtur að segja sig sjálft að þetta svæði er í nokkurri hættu vegna nágrennis við þennan alþjóðlega flugvöll. Síðast, en ekki síst, er spurt: Hverjir eru ábyrgir ef eitthvað kæmi upp sem ylli þarna stórtjóni vegna nágrennis við flugvöllinn? Um þetta hefur oft verið spurt, en aldrei fengist svör. Hitt er rétt, að varnarmálanefnd fjallar í mörgum tilfellum um þessi mál að nokkru leyti, a. m. k. hvað snýr að hernum og þeirri umferð sem herinn stjórnar um Völlinn. Þess vegna tel ég rétt og eðlilegt að fulltrúum þessara aðila, sem ég hef nefnt, verði gefinn kostur á að fá sæti í þessari nefnd sem fer með þessi mál á Keflavíkurflugvelli.
Herra forseti. Ég held að ekki beri brýna nauðsyn til að hafa fleiri orð um þetta mál. Það er einfalt í sniðum. Þetta tel ég vera sjálfsagt lýðræðis- og réttindamál gagnvart því fólki sem þarna býr. Við þekkjum það að málin varðandi samskipti við herinn hafa oft verið í brennidepli og kannske stundum valdið ágreiningi. En ég held að það þurfi ekki að valda neinum ágreiningi, sérstaklega með tilliti til þess hvað þm. bera hagsmuni lýðræðisins heitt fyrir brjósti, að þessari einföldu breytingu verði komið á. Nú felur þessi till. í sér að Alþingi álykti að fela utanrrh. að gera þessa breytingu, enda er það hann sem skipar þessa nefnd. Nú er utanrrh. fjarstaddur, því miður, þannig að hann er ekki hér til að gefa eina eða aðra yfirlýsingu um það, hvernig honum líst á málið. Eigi að síður skiptir það ekki meginmáli, heldur skiptir það meginmáli að Alþ. sameinist um þessa beiðni og að þessi beiðni verði síðan framkvæmd ef Alþ. fellst á hana.
Að lokum, herra forseti, legg ég til að umr. verði frestað og málinu vísað til utanrmn. Alþingis.