29.03.1979
Sameinað þing: 75. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3727 í B-deild Alþingistíðinda. (2909)
216. mál, áætlanagerð
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég vil aðeins í mjög stuttu máli fagna því, að till. er komin fram um þetta efni, og fagna því, að þeir hv. þm. Friðrik Sophusson og meðflm. hans skuli hafa tekið upp þessar till. sem Björn Friðfinnsson lögfræðingur, eins og kom fram í máli síðasta ræðumanns, vakti að ég held fyrstur manna máls á hér og kynnti ásamt fleirum. Þetta bar m. a. á góma í umr. í Nd. fyrr í vetur er rætt var frv. til l. um ríkisendurskoðun sem hv. þm. Halldór Ásgrímsson flutti á sínum tíma. Þá vakti ég máls á þessu. Ég lýsi stuðningi við þessa till., en tel þó að n. sú, sem fær þetta mál til skoðunar, ætti að athuga, ef flm. geta fallist á, að þetta sé ekki takmarkað við „núllgrunns áætlanagerð“, heldur komi þarna einnig til álita fleiri nútímahugtök og nútímaaðferðir við stjórnun. Má þar minna t. d. á svokallaða „sólseturslöggjöf“, sem hefur einnig vakið athygli og verið að ryðja sér til rúms. Þetta bendi ég á til athugunar. Ég tel að þarna mætti taka inn í fleiri atriði af nútímastjórnunaraðgerðum heldur en „núllgrunns áætlanagerðina“ eina, þótt góð sé, en lýsi annars stuðningi við málið.