02.04.1979
Sameinað þing: 76. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3735 í B-deild Alþingistíðinda. (2916)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Gíls Guðmundsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 31. mars 1979.

Eiður Guðnason, 3. þm. Vesturl., hefur ritað mér á þessa leið: „Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Vesturlandskjördæmi, Gunnar Már Kristófersson vélgæslumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ingvar Gíslason, forseti Nd.

Hér liggur fyrir kjörbréf til handa Gunnari Má Kristóferssyni og vil ég nú óska þess, að kjörbréfanefnd taki það til athugunar, og gef 8 mínútna fundahlé meðan það verður athugað. — [Fundarhlé.]