02.04.1979
Neðri deild: 69. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3761 í B-deild Alþingistíðinda. (2935)
22. mál, Framkvæmdasjóður öryrkja
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Aðdragandi þessarar lagasetningar, ef að lögum verður, er með fullkomlega eðlilegum hætti. Eðlilegasti háttur á því að setja þessari þjóð lög er að Alþ. sjálft hafi með það að gera. Rn. og ráðh. hæstv. eru þjónar Alþingis að framkvæma þau lög og þær reglur sem settar eru af okkur. Þess vegna er það óeðlileg leið að það eigi fyrst erindi til hæstv. ráðh. Þetta mál hefur fengið eðlilega meðferð í Alþ. og hafi hæstv. ríkisstj. eða hæstv. fjmrh. haft eitthvað við þetta mál að athuga, þá gat hann komið aths. sínum miklu fyrr á framfæri. Þetta er 22. mál í Alþ., hefur haft eðlilega meðferð, eins og ég segi, gengið til 2. umr. og nefndar, nefnd skilað samdóma áliti, enda þótt með fyrirvara sé hjá einum hv, þm. og annar sem ekki var viðstaddur. Því er það, að allur aðdragandi þessa máls er eðlilegur, fyrir utan það að málefnið er gott, og segi ég já við þessari grein sem og öðrum.