02.04.1979
Neðri deild: 69. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3762 í B-deild Alþingistíðinda. (2940)
22. mál, Framkvæmdasjóður öryrkja
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Núverandi meiri hl. á Alþingi er ekki treystandi til þess að leggja þessu máli lið með venjulegum framlögum á fjárl., en málið mjög knýjandi. Þess vegna er engra góðra kosta völ varðandi tekjuöflun, og þrátt fyrir ummæli 3. þm. Vestf. áðan hlýt ég að treysta því, að eftir vilja Alþingis verði farið nái málið fram að ganga nú, og segi já.