02.04.1979
Neðri deild: 69. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3763 í B-deild Alþingistíðinda. (2948)
22. mál, Framkvæmdasjóður öryrkja
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Það hefur gjarnan verið sagt á undanförnum árum, að það séu blaðamenn og aðrir viðlíka dónar sem hafi átt þátt í því að grafa undan rótum þingræðis hér í landinu. Ég held, að almennt og yfirleitt sé þetta ekki rétt kenning. Það verður ekki á annan hátt og skjótvirkari grafið undan þingræðinu hér í landinu og virðingu Alþingis heldur en um það bil helmingur þm. hefur tekið þátt í hér í dag með fjarveru sinni. Ég segi já.