03.04.1979
Sameinað þing: 77. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3774 í B-deild Alþingistíðinda. (2959)

Umræður utan dagskrár

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Svo sem hv. þm. er kunnugt er deila félagsmanna Félags ísl. atvinnuflugmanna við stjórn Flugleiða hf. þegar orðin langvarandi, enda hefur sáttanefnd sú, sem ég skipaði samkv. 3. gr. laga nr. 33 frá 1978, starfað ósleitilega frá 18. jan. s. l. og nánast fram á þennan dag og hefur haldið 46 formlega fundi. Ítrekaðar tilraunir hafa verið gerðar til þess að ná sáttum og hafa ekki færri en þrjár miðlunartillögur verið lagðar fram formlega og gengið til atkvgr. hjá deiluaðilum, auk fjölda óformlegra viðræðufunda sem sáttanefndin hefur átt með þeim.

Ég hef áður svarað hér í þinginu fsp. vegna þessarar deilu og gerði þá grein fyrir því, að hún er á ýmsan hátt frábrugðin venjulegum kjaradeilum. Nær sú sérstaða bæði til deiluaðila og deiluefnisins og skal ekki frekar út í það farið að sinni.

Þrátt fyrir allt hafa enn ekki hlotist mjög tilfinnanlegar truflanir af völdum deilunnar þótt margir hafi orðið fyrir óþægindum, enda hafa forráðamenn Félags ísl. atvinnuflugmanna ætíð tekið því af velvild og skilningi að fresta aðgerðum á meðan reynt er að leita sátta.

Nú er hins vegar svo komið, að frekari sáttatilraunir eru bersýnilega tilgangslausar. Tvær miðlunartillögur voru felldar af báðum deiluaðilum, en þriðja tillagan, sem gekk mjög langt til móts við kröfur flugmanna, var samþ. af félagi þeirra, en kolfelld af stjórn Flugleiða hf. Var sú tillaga að mínu mati haldin þeim ágalla að fjalla aðeins um launaþátt deilunnar, en ekki um aðrar hliðar hennar, sem þó má ætla að séu forsenda þess að frambúðarlausn geti fengist á flugrekstrarstarfsemi Flugleiða hf. Hafði sáttanefndinni virst að vilji væri til þess af hálfu beggja aðila að samþykkja slíka tímabundna lausn deilumálsins, en sú varð hins vegar ekki raunin þegar á hólminn kom.

Ég hef ekki farið dult með það álit mitt, að skásta lausnin hefði verið sú að lögfesta miðlunartillögu nr. 2. Hafði ég reyndar gert nauðsynlegar ráðstafanir til þess að það væri unnt, en um það varð ekki samstaða í ríkisstj. Ríkisstj. taldi rétt að halda áfram að gera sáttatilraunir, taldi rétt að allt yrði gert til þess að ná sáttum áður en til lagasetningar kæmi. Sáttatillaga nr. 2 fól í sér launajöfnun í áföngum og ákveðna tilhögun á sameiningu starfsaldurslista félaganna.

Nú er sú staða komin upp í þessu máli, að boðaðar aðgerðir flugmanna munu að verulegu leyti lama þessa bráðnauðsynlegu þjónustustarfsemi og bitna á fjölda manns, og ekki bæta úr skák, eins og hv. fyrirspyrjandi kom inn á, þeir erfiðleikar sem fyrir eru víða um land vegna hafíssins. Enn fremur má minnast á skólanemendur í heimavistarskólum víða um land sem ekki komast heim til sín í páskafríinu ef svo heldur fram sem horfir. Er vart þörf á að fjölyrða um nauðsyn þess að koma í veg fyrir að flugrekstri, þörfum almennings og atvinnu fjölda manns sé þannig stefnt í tvísýnu. Er í því sambandi rétt að hafa í huga að í sumum landshlutum er flugið nánast eini möguleiki fólks til þess að komast leiðar sinnar um þetta leyti árs. Fyrirsjáanlegt óhagræði vegna aðgerða flugmanna er auðvitað tvöfalt um þá miklu ferðahelgi sem nú fer í garð.

Af þessum sökum lagði ég til á fundi ríkisstj. í morgun að sett verði lög, sem m. a. fela í sér frestun hvers kyns verkfallsaðgerða fram yfir næstu áramót, nema aðilar nái samkomulagi áður. Tillagan fékk ekki fullnaðarafgreiðslu og bíður því næsta fundar ríkisstj.