03.04.1979
Sameinað þing: 77. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3775 í B-deild Alþingistíðinda. (2960)
Umræður utan dagskrár
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. þau svör sem hann gaf. Hins vegar er ég mjög óánægður með að ríkisstj. skuli fresta máli eins og þessu eftir allan þann langa aðdraganda sem hún hefur haft og sérstaklega með tilliti til þess, sem hæstv. félmrh. sagði, að hann teldi að það væri ekki grundvöllur til þess að ná samkomulagi á milli þessara aðila sem væru búnir að deila þessa mánuði. Hið alvarlega ástand, sem fram undan er í samgöngumálum, gerir það að verkum að það hlýtur að vera krafa þjóðarinnar til ríkisstj., að hún hafi markað stefnu hvernig hún ætli að leysa þessa deilu. Og ég tek undir það og geri það að kröfu minni til ríkisstj., að það liggi fyrir, áður en Alþ. fer í páskaleyfi, hvað hún hyggist fyrir til að leysa þessa deilu sem getur ekki beðið öllu lengur að leyst verði.